Brynjólfur skoraði þegar Groningen vann stórsigur Brynjólfur Willumsson skoraði eitt marka Groningen þegar liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 16.8.2026 13:07
Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik Liverpool og Como gerðu markalaust jafntefli, 0-0, í fyrri af tveimur æfingaleikjum liðanna í dag. 16.8.2026 12:44
West Ham kaupir Arne Engels West Ham United hefur gengið frá kaupum á belgíska miðjumanninum Arne Engels frá skoska liðinu Celtic. Erlendir miðlar greinar frá því að kaupverðið sé 22 milljónir punda en samningurinn er til fimm ára. 16.8.2026 12:00
Hafrún skoraði í öruggum sigri Hafrún Rakel Halldórsdóttir og liðsfélagar hennar í Brøndby unnu sannfærandi 3-0 sigur á Aarhus í dönsku A-deildinni í dag. Brøndby situr nú í 4. sæti deildarinnar með 5 stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar. 16.8.2026 11:43
Hlynur nokkuð frá sínu besta Hlynur Andrésson hafnaði í 45. sæti í maraþonhlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í morgun. Tími Hlyns var 2:22:09 klukkustundir. 16.8.2026 10:50
Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Stjarnan hefur gengið frá samningi við serbneska miðherjann Miloš Stajčić fyrir komandi keppnistímabil í Bónus-deildinni. 16.8.2026 10:01
Íslandsmet hjá íslensku karlasveitinni Íslenska karlasveitin setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Sveitin synti á 3:42,35 og bætti gamla Íslandsmetið um 0,79 sekúndur. 16.8.2026 09:42
Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, vann í dag magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta þegar hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleik í Skotlandi. 15.8.2026 16:14
Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad sem mætti Chelsea í æfingaleik á Stamford Bridge í dag. Chelsea hafði betur, 3-1, í síðasta æfingaleik sínum fyrir nýtt tímabil. 15.8.2026 15:18
Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, hefur lokið félagaskiptum sínum til Atlético Madrid. 15.8.2026 14:34