„Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Þingforseti hvatti þingmenn til þess að vera á tánum í þingsal í dag í röð atkvæðagreiðslna. Til stendur að ljúka þingstörfum á morgun og þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu. Þingmaður Framsóknar vonar að þingsályktunartillaga um greiningu á jarðakaupum erlendra aðila nái í gegn. 18.6.2026 14:00
Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Tugum flugferða Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda á sama tíma og félagið á í kjaraviðræðum við flugmenn. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mætir í myndver og fer yfir stöðu mála í beinni. 16.6.2026 18:05
Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Gert er ráð fyrir að þingið ljúki störfum fyrir sumarfrí á föstudag. Þingflokksformaður Viðreisnar telur samstarfið við stjórnarandstöðu hafa gengið mun betur en síðasta vor en segir þó miður að ekki hafi náðst að afgreiða frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Umræða um þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verður tekin síðar í vikunni. 16.6.2026 12:37
Áhyggjufullir ferðalangar, sólbrunnin þjóð og sögulegt sund í beinni Ríflega sjö þúsund farþegar hafa orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda. Kjaradeila flugmanna og Icelandair er í algjörum hnút og engin lausn í sjónmál. Við ræðum við lögfræðing hjá Neytendastofu sem segir óvissu valda ferðalöngum miklum áhyggjum. 15.6.2026 18:07
„Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar. 15.6.2026 12:25
Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim. 11.6.2026 18:12
Flekahreyfingar innan Samfylkingar Hópur félagsmanna Samfylkingar mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og lýsir krappri hægri beygju sem hafi ekki verið rædd á vettvangi flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Mikil sóknarfæri séu á vinstri væng stjórnmálanna. 11.6.2026 12:22
Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Fjórtán ára stúlka hlaut talsverða áverka eftir að eldri stúlka lét spörkin dynja á henni í Hafnarfirði síðustu helgi. Í kvöldfréttum verður rætt við aðstoðaryfirlögregluþjón um málið en hann segir árásina hafa verið fólskulega. 5.6.2026 18:05
Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Fundur samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefst klukkan sjö hjá ríkissáttasemjara. Við verðum í beinni frá Karphúsinu í kvöldfréttum og förum yfir stöðuna í harðri deilu. 4.6.2026 18:05
Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Fyrsta vindmyllan er risin í Vaðölduveri. Hún er eitt hundrað og fimmtíu metra há að meðtöldum spaða, eða því sem nemur um tveimur Hallgrímskirkjum. Þá er þvermál spaðahringsins 138 metrar. 3.6.2026 19:39