fréttamaður

Telma Tómasson

Telma er fréttamaður og fréttaþulur á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Um sex­tán þúsund greitt at­kvæði utan kjör­fundar

Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi.

Rann­saka kyn­ferðis­brot og líkams­á­rás á Lands­móti

Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að öðru leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassviðri er á Norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið. Varað er við því að fólk sé á ferðinni á ökutækjum eða með eftirvagna. Telma Tómasson fréttamaður er á Hólum og hefur fylgst með gangi mála.

„Allir eru hér að skemmta sér í sátt og sam­lyndi“

Landsmót hestamanna, sem að þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal, stendur nú sem hæst. Fjöldi gesta er nálægt sex þúsund og von á fleiri áhorfendum í kvöld, sem vilja sjálfsagt ekki missa af hápunktum helgarinnar. „Mótið stendur fyllilega undir væntingum,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LM 2026. „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi, allt er eins og það á að vera. Bara gaman.“

Öll hí­býli full­bókuð og hest­húsin verða stapp­full

Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins.

„Best að taka menn og sekta dug­lega“

Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér.

Ó­vissa með haustið en sér nú vonar­glætu

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað eftir að Bandaríkjamenn og klerkastjórnin í Íran náðu saman um frið og opnun Hormússunds. Til stendur að undirrita samkomulagið á föstudag og hafa stjórnvöld í báðum ríkjum lýst því sem miklum sigri. Hér á landi eru kjarasamningar áfram í hættu en hagfræðingur segist nú sjá vonarglætu.

Ari Edwald enn undir feldi

Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni.

Býr sig undir það versta en vonar það besta

Bændur á Austurlandi og Norðurlandi hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga vegna norðaustanhrets sem væntanlegt er á morgun. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Austurland að Glettingi og þá hefur lögreglan á Norðurlandi vestra beðið bændur um að huga að lambfé.

„Auð­vitað hef ég í­hugað það“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist „auðvitað hafa íhugað“ að einhver hafi verið að reyna að koma höggi á sig með því að vekja athygli á kreditkortafærslum hennar í borgarstjóraembætti. Hún vill ekki svara því hvort hún telji andstæðinga eða jafnvel samflokksmenn sína standa þar að baki. Heiða segist ekki íhuga stöðu sína vegna málsins.

Sjá meira