Slökkvilið
1 2 3 4 5 6 … 69 ›
Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Eldur kom upp í þaki Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík klukkan hálf eitt í nótt. Slökkvistarf tók um tvær klukkustundir fyrir fjórar stöðvar slökkviliðs. Innlent 3.9.2026 06:23
Þjófnaður í þremur verslunum Tilkynnt var um þjófnað í verslun á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 til 5 í morgun. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglumenn á þremur stöðvum, 1, 3 og 4, hafi verið tilkynnt um þjófnað í verslun. Í öllum tilvikum var málið leyst með vettvangskýrslu. Innlent 3.9.2026 06:09
Talsvert tjón og týndar tennur Eldur kviknaði í kjallara að Laugavegi 16 þar sem Hótel Skjaldbreið og verslunin Andrá eru til húsa. Einn var handtekinn grunaður um íkveikju og ljóst er að tjónið er verulegt. Innlent 2.9.2026 15:07
Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Einn er grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið á Laugarvegi 16 í nótt. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir hann hafa verið handtekinn um klukkan fimm í nótt en slökkvistarf var í gangi til um klukkan fjögur. Innlent 2.9.2026 10:35
Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Eva Katrín Baldursdóttir og Steinunn Hrólfsdóttir voru vaktar í nótt við það að viðvörunarkerfið í verslun þeirra, Andrá, var farið í gang. Eldur var í kjallara hótels í sama húsnæði og töluverður reykur í versluninni sem er full af nýjum vörum fyrir haustið. Þær segja þetta mikið áfall og tjónið líklega verulegt. Innlent 2.9.2026 10:22
Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Bruce Allen Ednie frá Connecticut í Bandaríkunum var gestur á hótel Skjaldbreið í nótt þegar eldur kom upp. Alls voru um 60 gestir á hótelinu þegar kviknaði í um klukkan hálf eitt í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild. Einn var handtekinn stuttu eftir að aðgerðir hófust. Slökkvistarfi lauk um klukkan fjögur í nótt. Innlent 2.9.2026 09:55
Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, segir tjónið verulegt á Hótel Skjaldbreið, hóteli þeirra í miðbænum, þar sem kom upp bruni í nótt. Hann segir um 60 gesti hafa verið flutta á önnur hótel í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Innlent 2.9.2026 08:40
Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Karlmaður var handtekinn í nótt eftir að bruni kom upp í kjallara á Hótel Skjaldbreiður á Laugavegi 16 í miðbæ Reykjavíkur. Tveir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Innlent 2.9.2026 06:10
Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi mannskap af öllum stöðvum vegna elds í Holtagörðum í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en einn var fluttur á slysadeild vegna mögulegrar reykeitrunar. Innlent 1.9.2026 10:28
Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Eldur kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut við Arnarnesveg nú á níunda tímanum í morgun. Slökkvilið er komið á vettvang. Innlent 1.9.2026 08:55
Kveiktu bál á bílastæði Bál blasti við vegfaranda á bílastæðinu við Fjölbrautarskólann í Garðabæ á tólfta tímanum í nótt. Innlent 30.8.2026 23:32
Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Það vakti undrun einhverra að slökkviðliðsfólki úr röðum Brunavarna Suðurnesja skyldi bregða fyrir í auglýsingu nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland á dögunum. Slökkviliðsstjóri segir að í beiðni sem honum barst um að taka upp kynningarefni hafa hvergi verið minnst á að það væri fyrir auglýsingu hreyfingarinnar. Áfram Ísland segir slökkviliðsmennina ekki mótfallna því að vera í auglýsingunni. Innlent 27.8.2026 16:45
Eldur í bíl í Vesturbænum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í morgun eftir að tilkynnt var um eld í bíl á Víðimel í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 24.8.2026 08:28
Eldur kviknaði við Stálhellu Eldur kviknaði við Stálhellu í Hafnarfirði í kvöld. Slökkvilið var sent á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins. Innlent 20.8.2026 00:28
Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Vinna við að færa flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun af vettvangi tók rúmar sjö klukkustundir. Umferð var stýrt um svæðið á meðan og gekk það vel þrátt fyrir að einhverjar teppur hafi myndast. Innlent 19.8.2026 20:34
Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Einstaklingur sem tengist trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi þa sem eldur kviknaði í morgun var fluttur til að aðhlynningar á sjúkrahús. Búið er að slökkva eldinn sem byrjaði í útsogskefi fyrir vélar verkstæðisins. Innlent 12.8.2026 11:20
Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Bílar frá öllum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sinna nú útkalli vegna elds í byggingu við Gylfaflöt í Grafarvogi. Eldurinn er sagður í loftstokki við hlið trésmíðaverkstæðis. Innlent 12.8.2026 10:25
Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Eldur kviknaði í verslun Bónuss á Egilsstöðum um helgina. Framkvæmdastjóri Bónuss segir það lán í óláni að eldurinn hafi ekki dreift sér um alla verslunina. Hann er þakklátur fyrir skjót viðbrögð slökkviliðs og starfsmanna. Innlent 10.8.2026 13:10
Árekstur á Suðurlandsbraut Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsbraut um hálfníuleytið í kvöld. Einhverjir voru fluttir á sjúkrahús vegna hans. Innlent 9.8.2026 21:56
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. Innlent 9.8.2026 11:22
Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Töluvert sírenuvæl vakti athygli íbúa þegar slökkviliðið brást við tilkynningu úr Mjölnisholti nærri miðbæ Reykjavíkur. Innlent 8.8.2026 10:59
Hafnaði úti í fjöru Bíll hafnaði út í fjöru við Gufunes rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður. Innlent 8.8.2026 10:37
Slökktu eld á Kársnesi Eldur kom upp við Kópavogshöfn á Kársnesi nú á tíunda tímanum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo bíla á staðinn en þegar þangað var komið sást eldur í ruslahrúgu. Innlent 6.8.2026 23:07
„Það bara fannst ekki neitt“ Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða. Innlent 6.8.2026 17:24
Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning klukkan 13:20 um eld í jepplingi á bílastæði við verslun Hagkaupa í Skeifunni. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins á örskotsstund. Innlent 4.8.2026 14:04
„Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Eigandi bústaðarins sem brann til kaldra kola við Þingvallavatn segir það hafa verið mikið áfall að ekki geta gert neitt til að sporna við logunum nema horft á. Logarnir voru það fljótir að breiða úr sér að ekki gafst tími nema til að hlaupa og sækja börnin. Innlent 2.8.2026 18:12
Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Eldur kviknaði í sumarhúsi í Miðfellslandi við Þingvallavatn og varð húsið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. Fjöldi fólks fylgdist með slökkvistarfinu en útkallið barst á tíunda tímanum. Innlent 1.8.2026 22:52
Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Eldur kviknaði í sumarhúsi við Þingvallavatn á laugardagskvöld og varð húsið fljótt alelda. Greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi lokið um eittleytið í nótt. Húsið er talið gjöreyðilagt. Innlent 1.8.2026 21:57
Alelda bíll í Reykjanesbæ Eldur kviknaði í bíl við smábátahöfn í Reykjanesbæ. Bíllinn varð alelda og lagði mikinn svartan reyk yfir bæinn. Innlent 31.7.2026 13:17
Bruni við Breiðhöfða Eldur kom upp í gámasamstæðu á byggingarreit við Breiðhöfða í Reykjavík í kvöld. Slökkvistarf hefur gengið vel. Innlent 30.7.2026 20:16