Viðskipti
203 204 205 206 207 208 209 210 211 … 223 ›
Væntingavísitalan aldrei hærri Væntingavísitala Gallup hefur ekki áður mælst hærri í desembermánuði en í desember í ár. Hún mælist nú 111 stig og lækkaði lítillega á milli nóvember og desember, eða um 0,6 stig, að sögn Íslandsbanka. Vísitalan hefur lækkað um 18,4 stig frá því í september. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:15
Einungis tvö félög hafa hækkað Einungis tvö af fimmtán félögum í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hafa hækkað í verði á fjórða ársfjórðungi en þrettán hafa lækkað. Er þar miðað við lokagengi á markaði í gær. Þau félög sem hafa hækkað eru Opin kerfi Group (5,1%) og Atorka (3,9%). Félögin sem mest hafa lækkað eru hins vegar Actavis (-24,4%), Burðarás (-21,9%) og Samherji (-17,8%). Viðskipti innlent 13.10.2005 15:15
Hætta að bjóða upp á 100% íbúðalán Landsbankinn hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á 100% íbúðalán og verður hámarkið því 90% af markaðsverðmæti íbúða að nýju. Landsbankinn hvetur jafnframt stjórnvöld til að endurskoða sem fyrst lagalega umgjörð íbúðalána. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:15
Gengi dollars fallið um 6,9% Gengi dollars hefur fallið alls um 6,9% gagnvart evru á árinu og um 3,3% gagnvart japönsku jeni. Opinberir aðilar í Bandaríkjunum hafa látið hafa eftir sér að ekki verði gripið inn í flotgengi dollarans með kaupum á gjaldeyri samkvæmt hálffimmfréttum KB banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:15
Mikil aukning í verðbréfakaupum Erlend verðbréfakaup námu 8,6 milljörðum króna nettó í nóvember samanborið við 6,4 milljarða í nóvember í fyrra samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Það sem af er ári (jan-nóv) nema erlend verðbréfakaup 65,4 milljörðum.króna samanborið við 54,2 milljarða allt árið í fyrra. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:15
Össur selur eigur dótturfélags Össur hf. hefur gengið frá kaupsamningi við fyrirtækið DRT Mfg.Co. Corporation um yfirtöku á eignum dótturfélagsins Mauch, Inc. í Dayton, Ohio, í Bandaríkjunum. Um er að ræða framleiðslutæki og viðskiptasambönd vegna framleiðslu á íhlutum til hryggígræðslu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Morgan Stanley sér um sölu Símans Framkvæmdanefnd um einkavæðingu og fjármálafyrirtækið Morgan Stanley rituðu í dag undir samkomulag um að fyrirtækið veiti nefndinni ráðgjöf og aðra þjónustu í tengslum við sölu ríkisins á hlutabréfum í Landssíma Íslands. Salan ætti að geta farið fram á fyrri hluta næsta árs. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Orkuveitan kaupir Austurveitu Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Austurveitu í Ölfusi og tekur við rekstri hennar 1. janúar. Austurveita er svokölluð bændaveita með borholu við Gljúfurárholt og liggur að býlum undir Ingólfsfjalli, meðal annars að Efri-Saurbæ og Sogni. Veitan mun falla undir jaðarveitur Orkuveitu Reykjavíkur. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Verðbólgan étur launahækkanir Verðbólga var 3,9 prósent í desember og hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða. Líkur eru á enn meiri verðbólgu í janúar að mati Alþýðusambands Íslands. Laun hafa hækkað að meðaltali um 5,4 prósent. Verðbólgan hefur verið 3,8 prósent og hefur étið upp stóran hluta af launahækkunum. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Samið um ráðgjöf Einkavæðingarnefnd skrifaði í gær undir samkomulag við fjármálafyrirtækið Morgan Stanley um að fyrirtækið veiti nefndinni ráðgjöf og aðra þjónustu við sölu ríkisins á hlutabréfum í Símanum. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Hæsta álverð í níu ár Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið hærra að meðaltali frá árinu 1995. Eftirspurn áls hefur aukist hraðar á árinu en á síðustu tuttugu árum. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Yfirtaka sænska kvikmyndahúsakeðju Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, og Róbert Melax, stofnandi Lyfju og eigandi Skífunnar, Regnbogans og Smárabíós, skoða nú ásamt hópi fjárfesta að yfirtaka sænsku kvikmyndahúsakeðjuna Sandrews, sem er sú næst stærsta á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í morgun. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Bréf í deCode hækka Verð á hlutabréfum í deCode hefur hækkað umtalsvert á bandaríska Nasdaq markaðinum að undanförnu. Fyrir opnun markaðar í gær stóðu bréfin í 7,86 dölum á hlut. Bréfin hafa hækkað um 22 prósent á einum mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Kjötmjöl ehf til sölu Milli jóla og nýárs funda forsvarsmenn förgunarverksmiðjunnar Kjötmjöls ehf. með hugsanlegum kaupendum. Fyrirtækið, sem brennir sláturúrgang í kjötmjöl, hefur átt í rekstrarerfiðleikum og blasir að sögn Torfa Áskelssonar verksmiðjustjóra lítið annað við en að hætta rekstrinum ef ekki rætist úr. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Ekki truflandi áhrif Fréttir af rannsókn lögreglu og skattyfirvalda hafa ekki áhrif á viðskipti félagsins erlendis. Þetta er mat Hreins Loftssonar, stjórnarformanns Baugs. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:14
VSP fær starfsleyfi Verðbréfaþjónusta Sparisjóðsins fékk í gær starfsleyfi sem verðbréfaþjónsta. Fyrirtækið er dótturfélag Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Forseti og ráðherra í stjórn KB banki hefur stofnað sjóð með dönskum lífeyrissjóði. Sjóðurinn mun sérhæfa sig í hlutabréfum óskráðra félaga. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 15:14
Geest samþykkir tilboð Bakkavarar Bakkavör náði mikilvægum áfanga í yfirtöku á Geest þegar samkomulag náðist um verð fyrir það. Framundan er sex vikna vinna við að kanna rekstur Geest en fátt bendir til annars en að af kaupunum verði. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 15:13
Prentsmiðjan rifin Prentsmiðja Moggans verður rifin og verslunarhúsnæði reist í staðinn. Lóðin er talin ein sú eftirsóknarverðasta á landinu og því verðið hátt. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 15:13
Meiri kortavelta Notkun á greiðslukortum var 19,9 prósentum hærri í nóvember í ár en í fyrra. Velta kreditkorta innanlands jókst um 10,3 prósent en debetkortaveltan er 23,8 prósentum hærri. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:13
Samkomulagt um verð fyrir Geest Bakkavör hefur náð samkomulagi um verð í breska matvælafyrirtækinu Geest. Tilboð Bakkavarar mun hljóða upp á 655 pens á hlut, en samkvæmt því er markaðsvirði Geest um sextíu milljarðar króna. Á óvart kemur hversu hratt sú niðurstaða fæst, en það bendir til þess að góð samstaða hafi náðst milli Bakkavarar og stjórnar Geest. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:13
Sama lánshæfismat og ríkið Íbúðalánasjóður er með sama lánshæfismat og íslenska ríkið að mati Moodys sem metur lánshæfi fyrirtækja og opinberra aðila. Sérfræðingar Moodys heimsóttu landið í haust og fóru ítarlega yfir skuldabréfaskipti íbúðalánasjóðs síðastliðið sumar og afleiðingar þess fyrir áhættu og fjárstýringu sjóðsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Umfangsmestu viðskipti íslenskrar viðskiptasögu Baugur hefur tryggt sér fjármögnun upp á 112 milljarða til kaupa á bresku verslunarkeðjunni Big Food Group. Bank of Scotland leggur til níu prósent hlutafjár við kaupin. Íslenskir bankar og aðilar þeim tengdir taka þátt í fjármögnun viðskiptanna. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Samningar um fjármögnun í höfn Samningar náðust í gærkvöldi um fjármögnun Baugs og annarra fjárfesta á yfirtökutilboði í bresku verslanakeðjuna Big Food Group. Heildarfjármögnunin nemur hundrað og tólf milljörðum króna. Formlegt tilboð í keðjuna verður lagt fyrir hlutahafafund í næsta mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Baugur kaupir Big Food Group Baugur hefur tryggt sér fjármögnun á kaupum á Big Food Group. Eftir mikla dramatík aðfaranótt laugardags lá ljóst fyrir að búið væri að ganga frá öllum þáttum málsins og tilboð var lagt fram með samþykki stjórnar Big Food Group sem hljóðar upp á 95 pens á hlut. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Taugspenna á lokasprettinum Með kaupunum á Big Food Group er Baugur stærsti einstaki viðskiptavinur Bank of Scotland. Síðustu metrarnir í samningaferli um fjármögnun Big Food Group voru hlaðnir spennu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Matvöruverð lækkar við kaupin Matvöruverð lækkar á Íslandi með kaupum Baugs og annarra fjárfesta á bresku verslanakeðjunni Big Food Group, segir forstjóri Baugs. Ef hluthafar keðjunnar samþykkja formlegt yfirtökutilboð, eignast Íslendingar eitt stærsta einkahlutafélag í Bretlandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Yfirtökutilboði Íslandsbanka tekið Eigendur 90% hlutafjár í BNbank, að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka, samþykktu í dag yfirtökutilboð Íslandsbanka í BNbank (Bolig- og Næringsbanken ASA) í Noregi. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41
Erlendir aðilar eignast meirihluta Flest bendir til þess að erlendir fjárfestar eignist innan tíðar meirihluta í stoðtækjafyrirtækinu Össuri og sitja þeir um öll hlutabréf sem boðin eru til sölu í fyrirtækinu. Þannig keyptu útlendingar þau bréf sem nýlega voru í boði og eiga þeir nú samtals um 41 prósent í félaginu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12
Baugur hagnast um 2 milljarða Baugur hefur þegar hagnast um tæpa tvo milljarða á kaupunum á Magasin du Nord. Dönskum kaupsýslumönnum vex þetta í augum og ekki bætti um betur þegar forstjóri Icelandair sagðist í viðtali við Börsen í gær ekki útiloka að félagið gæti hugsað sér að kaupa dönsku flugfélögin Mærsk Air eða Sterling. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:12