Íþróttir

Hann er "úr hverfinu"
Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers hitti David Stern, framkvæmdastjóra NBA deildarinnar að máli fyrir leik Indiana og Miami í nótt og ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim. Stern dæmdi Artest sem kunnugt er í 73 leikja bann í fyrra fyrir slagsmál.

Stórleikur Bryant dugði ekki gegn Suns
Phoenix Suns lagði Los Angeles Lakers á útivelli í síðari leik kvöldsins í NBA í nótt 122-112. Phoenix hafði yfirburði í leiknum í gærkvöld, en liðið var þó næstum búið að glutra niður 17 stiga forystu í fjórða leikhluta eins og tveimur kvöldum áður gegn Dallas.

Berger verður frá í þrjár vikur
Meiðslavandræði leikmanna Aston Villa halda áfram og nú er ljóst að miðjumaðurinn Patrik Berger getur ekki leikið með liðinu gegn Liverpool á morgun. Hann fór í aðgerð á hné í gær og verður frá í að minnsta kosti þrjár vikur.

Númer Miller hengt upp í mars
Reggie Miller fær treyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli Indiana Pacers þann 31. mars næstkomandi í virðingarskyni fyrir farsælan feril hans, en Miller lék öll átján ár sín í deildinni með félaginu.

Ég segi það sem mér sýnist
Arsene Wenger tekur ekki vel í friðarumleitanir Jose Mourinho í "Stjórastríðinu" sem þeir hafa háð undanfarna daga og segist ekki verða kúgaður til að biðjast afsökunar á einhverju sem hann hafi ekki gert.

Kjartan segist ekkert hafa vitað
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi segist ekkert hafa vitað af því að formaður KR-inga myndi hvetja sitt fólk til að greiða sér og Benedikt Geirssyni, starfsmanni ÍSÍ, atkvæði í prófkjörinu.

Ánægður með skammir Keane
Framherjinn Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United segir að hörð gagnrýni fyrirliðans Roy Keane sem var klippt út úr dagskrá sjónvarpsstöðvar félagsins á dögunum, geti orðið til þess að leikmenn liðsins fari í naflaskoðun og bæti spilamennsku sína.

Ekki hrifinn af vináttulandsleikjum
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, íhugar að banna leikmönnum sínum að spila vináttuleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi.

Indiana vann í Miami
Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami.

Vill sættast við Wenger
Jose Mourinho segist vera alveg tilbúinn að sættast við kollega sinn Arsene Wenger hjá Arsenal með því að biðjast afsökunar á því að hafa kallað hann gluggagægir í viðtali fyrir stuttu, en aðeins með þeim skilyrðum að Wenger biðjist afsökunar á ummælum sínum um Chelsea.

Sigur hjá Boro og Bolton
Middlesbrough sigraði úkraínska liðið Dnipro auðveldlega 3-0 í riðlakeppni UEFA bikarsins í gærkvöldi. Mark Viduka skoraði tvö mörk og Yakubu eitt. Bolton sigraði Zenit St Petersburg 1-0 með marki frá Kevin Nolan. Þá töpuðu Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar hans í Halmstad stórt, 5-0 fyrir Lens.

Tap hjá Keflavík og Haukum
Karlalið Keflavíkur tapaði fyrir finnska liðinu Lappeeranta í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld 92-75, en leikurinn fór fram í Keflavík. Á sama tíma töpuðu Haukastúlkur stórt á heimavelli fyrir Polisporto Ares frá Ítalíu 85-45 á Ásvöllum.

James á skilið annað tækifæri
Stuart Pearce segir að markvörður sinn David James eigi skilið að fá annað tækifæri með enska landsliðinu eftir góða frammistöðu með City undanfarið. James hefur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans síðan í stórtapi Englendinga fyrir Dönum í ágúst.

Keflavík og Haukar spila í kvöld
Tveir leikir verða á dagskrá í Evrópukeppninni í körfuknattleik hér á landi í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur á móti finnska liðinu Lappeenranta í Keflavík og Haukastúlkur spila við Ribera frá Ítalíu á Ásvöllum. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15.

Enn meiðist Kieron Dyer
Miðjumaðurinn Kieron Dyer verður ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Birmingham á laugardag eftir að í ljós kom að hann er veikur. Sagt er að veikindi hans tengist því að hann spilaði um helgina án þess að vera kominn í leikform.

Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur
Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum.

Venst aldrei árásunum
Sol Campbell, varnarmaður Arsenal og fyrrum leikmaður Tottenham Hotspurs, segist aldrei muni venjast þeim óblíðu móttökum sem hann fær á gamla heimavelli sínum White Hart Lane og viðurkennir að hann taki það nærri sér.

Arsene Wenger hrósaði Robin van Persie
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn á Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og hrósaði framherja sínum Robin van Persie sérstaklega fyrir frammistöðu sína, eftir að hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk.

Okkar bíður erfitt verkefni
Alex Ferguson segir að liði Manchester United bíði mjög erfitt verkefni í Meistaradeildinni eftir tapið gegn Lille í kvöld og segir að liðið verði einfaldlega að vinna tvo síðustu leiki sína í riðlinum ef það eigi að hafa möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Manchester United tapaði fyrir Lille
Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap gegn Lille í Frakklandi, en betur gekk hjá Arsenal sem sigraði Sparta Prag 3-0. Thierry Henry skoraði eitt mark fyrir Arsenal og Robin van Persie skoraði tvö og Arsenal er öruggt áfram í keppninni. Barcelona burstaði Pananthinaikos 5-0 á Spáni.

Valur á toppinn
Valsmenn skelltu sér á topp DHL-deildarinnar í handknattleik í kvöld þegar þeir sigruðu ÍBV 38-34 í Laugardalshöll. ÍR bar sigurorð af Víkingi/Fjölni 31-28 á útivelli, FH vann Selfoss 36-29, Afturelding sigraði HK 27-24, Fylkir burstaði KA 33-25 og Fram og Stjarnan skildu jöfn í Garðabænum 26-26. Leik Þórs og Hauka er enn ólokið, en hann hófst ekki fyrr en klukkan 20.

United er undir í hálfleik
Hrakfarir Manchester United virðast ætla að halda áfram, því liðið er undir 1-0 í hálfleik gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni. Barcelona er að taka Pananthinaikos í kennslustund og hefur yfir 4-0.

Lille - Manchester United á Sýn
Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu nú á eftir og sjónvarpsleikurinn verður viðureign franska liðsins Lille og Manchester United. Stórleikur Juventus og Bayern Munchen verður sýndur í beinni á Sýn Extra og hefst útsending á báðum stöðvum um klukkan 19:30.

Gerði þriggja ára samning við Öster
Helgi Valur Daníelsson, sem lék með Fylki í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í sumar, hefur undirritað þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Öster, sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni á dögunum eftir að það hafnaði í öðru sæti fyrstu deildarinnar.

United þarf að losa sig við leikmenn
Roy Keane, fyrirliði Manchester United, telur að grípa þurfi til róttækra aðgerða til að laga gengi liðsins og segir að öfugt við það sem margir halda fram, þurfi félagið að losa sig við leikmenn í stað þess að kaupa nýja í janúar. Rio Ferdinand var einn þeirra sem fékk pistilinn frá Keane í nýlegu viðtali við fyrirliðann.

Skrifar undir hjá Skaganum á morgun
Knattspyrnumaðurinn Þórður Guðjónsson er á leið heim til Íslands og mun skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag ÍA á morgun. Þetta staðfesti Þórður sjálfur nú rétt áðan. Ljóst er að koma Þórðar verður Skagaliðinu mikill liðsstyrkur fyrir átökin næsta sumar, en hann hafnaði tilboði FHinga um að leika með liðinu og ákvað að fara á heimaslóðirnar.

Crouch fer að skora mörk fljótlega
Hinn leggjalangi framherji Liverpool, Peter Crouch, hefur verið gagnrýndur nokkuð upp á síðkastið fyrir að ná ekki að skora mörk. Crouch kostaði Liverpool sjö milljónir punda í sumar og hefur enn ekki náð að skora í alvöru leik fyrir félagið.

Gerði fimm ára samning við West Ham
Alan Pardew er í skýjunum yfir því að hafa undirritað nýjan fimm ára samning við West Ham, en hann hefur stýrt liðinu í tvö ár og kom því nokkuð óvænt upp í úrvalsdeildina í vor. Byrjun liðsins í úrvalsdeild hefur svo farið fram úr björtustu vonum og því hefur Pardew nú skrifað undir nýjan samning.

Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum
Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City.

Nýtt lið sækir um þáttökurétt
Nýtt keppnislið hefur nú lagt fram beiðni um að vera með í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta ári. Það er fyrrum ökuþórinn Aguri Suzuki sem er í forsvari fyrir liðið, sem mun keppa með vélar frá Honda ef beiðni liðsins verður samþykkt. Liðið mun heita Super Aguri Formula One og yrði ellefta keppnisliðið á heimsmeistaramótinu á næsta ári ef allt fer að óskum.