Lög og regla
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 120 ›
Rauf skilorð með skutlinu Tuttugu og eins árs gamall maður var nýlega dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að aka félaga sínum af vettvangi innbrots í Reykjavík í mars í fyrra og fara með þýfið á heimili sitt í Breiðholti. Innlent 23.10.2005 15:00
Bakvakt hjá héraðsdómstólunum Lágmarksstarfsemi er hjá dómstólum landsins vegna árshátíðar Dómstólaráðs sem haldin er í Kaupmannahöfn núna um helgina. Innlent 23.10.2005 15:00
Sjötug kona beitt ofbeldi Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum aðfarafótt sunnudags eftir að hafa kvartað undan hávaða hjá nágrönnum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er atburðarásin óljós, en konan virðist hafa bankað upp á í íbúðinni fyrir ofan hennar og gert athugasemdir við gleðskapinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Barin fyrir að kvarta undan látum Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði kvartað undan partílátum og næturhávaða aðfararnótt sunnudags. Innlent 23.10.2005 15:00
Tafir á umferð í Svínadal Lögreglan í Búðardal segir að töluverðar tafir verði á umferð um Svínadal í Dalasýslu fram eftir degi þar sem verið er að ná upp fjárflutningabíl sem valt þar í gær. Vegfarendum er bent á nota veginn um Fellsströnd í staðinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Kveiktu í gámum í Eyjum Ungir drengir kveiktu í óvitaskap í tveimur gámum í Vestmannaeyjum í gær með þeim afleiðingum að ýmis búnaður frjálsíþróttafélagsins Óðins, sem var í öðrum gámnum, stórskemmdist. Ekkert tjón varð í hinum gámnum. Drengirnir forðuðu sér en í gærkvöldi kom hið sanna í ljós og var rætt við foreldra drengjanna sem eru fullir iðrunar. Innlent 23.10.2005 15:00
Óvíst hvort skútu verður bjargað Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reyna á að bjarga skútunni Vamos sem nú rekur stjórnlaust í vonskuveðri um 160-170 kílómetra frá Straumnesi norðvestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæslunni sagði að vonskuveður væri á þessu svæði sem er innan grænlenskrar lögsögu en þó innan leitar- og björgunarsvæðis Landhelgisgæslunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00
Fordæmir vinnubrögð lögreglu Femínistafélag Íslands átelur vinnubrögð lögreglunnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. Innlent 23.10.2005 15:00
Ketamín einnig notað hér á landi Ketamín, staðdeyfilyf fyrir hesta sem Sky-sjónvarpsstöðin greindi í dag frá að sé notað á breskum næturklúbbum sem vímugjafi, hefur borist hingað til lands á síðustu árum í nokkrum mæli að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík Innlent 23.10.2005 15:00
Hrossadeyfilyf notað sem dóp Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því. Innlent 23.10.2005 15:00
Ný lögreglustöð Lögreglan í Reykjavík opnar í dag nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjóddinni í stað stöðvarinnar í Völvufelli. Innlent 23.10.2005 15:00
Kærir vegna tölvupósts Jónína Benediktsdóttir hefur lagt fram kæru hjá lögreglu vegna þess að efni úr einkatölvupósti hennar hafi birst á síðum Fréttablaðsins. Innlent 23.10.2005 15:00
Flutningabíll valt við Rauðavatn Stór vöruflutningabíll valt á Suðurlandsvegi rétt austan við hirngtorgið við Rauðavatn snemma í morgun, en ökumaðaurinn, sem var einn í bílnum, slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en nokkrar tafir hafa verið á umferð vegna umfangs aðgerða við að ná bílnum á réttan kjöl. Innlent 23.10.2005 14:59
Einn talinn af eftir sjóslys Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst með harðfylgi í morgun að bjarga Bandaríkjamanni úr skútu sem var í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands í miklu hvassviðri og haugasjó. Félagi hans, sem var skoskur, féll fyrir borð um miðnætti og er talinn af. Þyrlan er á leið til Rifs, þar sem hún tekur eldsneyti og er væntanleg með Bandaríkjamanninn til Reykjavíkur klukkan ellefu. Innlent 23.10.2005 14:59
Braut rúður í átta bílum Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðbundið í tvö ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Stúlka sem leitað var að fundin Sautján ára stúlka, sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær, eftir að hafa verið saknað í rúman hálfan mánuð, fannst í heimahúsi í borginni í gær. Ástæða þess að ekki var lýst eftir henni fyrr er að vitað var að hún vildi fara huldu höfði. Hún hefur nú verið vistuð á viðeigandi stofnun. Innlent 23.10.2005 14:59
Björguðu manni af skútu í háska Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst í morgun með harðfylgi, að bjarga manni af skútu í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands, en félagi hans fannst ekki og er talinn af. Innlent 23.10.2005 14:59
Efni og vog gerð upptæk Við húsleit á heimili 22 ára gamals manns í Grafarholti í Reykjavík í vor fann lögregla nokkurt magn fíkniefna sem að hluta til voru talin ætluð til sölu. Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Innlent 23.10.2005 15:00
Óttast um bandaríska skútu Fokker-vél og stóra þyrla Landhelgisgæslunnar voru rétt í þessu að koma á vettvang bandarískrar skútu með tveimur mönnum um borð sem virðist í nauðum stödd í afleitu veðri um 110 sjómílur út af Vestfjörðum á milli Íslands og Grænlands. Sendingar frá neyðarsendi skútunnar fóru að heyrast upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 23.10.2005 14:59
Varað við hvassviðri í Búðardal Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur. Innlent 23.10.2005 14:59
Stóðu í innbrotum og smáþjófnaði Átján ára piltur var nýlega dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa verið í hlutverki bílstjóra í innbrotaleiðangri þriggja annarra í Reykjavík í mars á þessu ári. Þá var hann dæmdur fyrir lítilræði af hassi sem fannst í bíl hans nokkrum dögum síðar. Innlent 23.10.2005 15:00
Krefjast bæði sýknu af húsbroti Arna Ösp Magnúsardóttir sem ákærð er fyrir eignaspjöll og húsbrot á hótel Nordica í sumar þar sem skvett var grænu skyri á gesti álráðstefnu breytti í gær afstöðu sinni til ákærunnar um húsbrotið. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 23.10.2005 14:59
Gleymdi potti á eldavél Mikill reykur gaus upp úr potti sem gleymst hafði á logandi eldavél í sambýlishúsi á Akranesi í gærkvöldi, en með snarræði tókst húsráðanda að ná pottinum af eldavélinni áður en eldur kviknaði út frá honum. Slökkviliðið kom á vettvang og reykræsti íbúðina, en nokkurt tjón hlaust af reyknum. Innlent 23.10.2005 14:59
Lýst eftir 17 ára stúlku Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir eftir Söndru Baldursdóttur, til heimilis að Blöndubakka í Reykjavík. Sandra er fædd árið 1988. Hún er um einn og sextíu á hæð, ljóshærð með axlarsítt hár, er brúneygð og grannvaxin. Ekkert hefur spurst til Söndru síðan 10. september. Innlent 23.10.2005 14:59
Hafi sent gögn til Styrmis Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sem var lögmaður Jóns Geralds Sullenbergers, sendi gögn skjólstæðings síns til Styrmis Gunnarssonar ritsjóra Morgunblaðsins. Þetta kemur fram í <em>Fréttablaðinu</em> í dag. Innlent 23.10.2005 14:59
Skyrslettumálið tekið fyrir Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þeirra Ólafs Páls Sigurðssonar og Örnu Aspar Magnúsdóttir sem ákærð eru fyrir stórfelld eignaspjöll og húsbrot þegar þau slettu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar. Innlent 23.10.2005 14:59
Íkveikjur í rannsókn Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar í rannsókn lögreglu í Reykjavík á íkveikjum í höfuðborginni fyrstu helgina í september. Þá er grunur um íkveikju á að minnsta kosti fjórum stöðum í borginni, þar af tvisvar á sama stað með sólarhrings millibili í skemmu við Fiskislóð. Innlent 23.10.2005 14:59
Vonast eftir refsilækkun Mál Hákonar Eydals, sem banaði fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati í fyrrasumar, var flutt í Hæstarétti í gær. Dóms er að vænta innan tíðar. Innlent 23.10.2005 14:59
Varað við ferðum á Sandskeiði Lögreglan í Reykjavík varar við ferðum á Sandskeiði vegna slæms veðurs. Einkum er mælst til þess að ekki sé farið þar um á vanbúnum bílum. Á Sandskeiði er skyggni nánast ekkert, mikið hvassviðri og hálka. Innlent 23.10.2005 14:59