Lög og regla
69 70 71 72 73 74 75 76 77 … 120 ›
Sofnaði undir stýri og ók út af Ökumaður slapp með skrámur þegar bíll hans flaug út af veginum í Norðurárdal í Borgarfirði í gærkvöldi og skall svo harkalega niður að hluti hjólabúnaðarins sópaðist undan honum. Bensínleiðsla rofnaði líka þannig að eldur kom upp í bílnum en ökumaður flutningabíls sem kom að gat slökkt eldinn með handslökkvitæki. Að sögn lögreglu sofnaði ökumaðurinn undir stýri en hann var að koma austan af Fjörðum eftir að hafa unnið fá því snemma í gærmorgun og síðan lagt upp í þennan langa akstur. Innlent 13.10.2005 19:08
Mælir með áfrýjun tóbaksdóms Lögmaður tóbaksframleiðandans JT International og Sölva Óskarssonar í tóbaksversluninni Björk mælir með áfrýjun á nýföllnum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um útstillingu tóbaksvara og umfjöllun um tóbak. Innlent 13.10.2005 19:08
Grásleppuveiðarnar ólöglegar Hæstiréttur staðfesti í vikunni fyrri dóm Héraðsdóms Vestfjarða frá því í september sl. yfir manni á Ströndum fyrir ólöglegar grásleppuveiðar. Sá vildi meina að hann hefði heimild til veiða í netlögum jarðarinnar og leyfi landeigenda fyrir veiðunum. Innlent 13.10.2005 19:08
Meiddist í vélhjólaslysi Kona hlaut slæma byltu þegar hún missti stjórn á mótorhjóli sínu og ók út af þjóðveginum á móts við Tannastaði undir austurhlíðum Ingólfsfjalls síðdegis í gær. Hún var flutt á Landsspítalann til aðhlynningar og rannsóknar. Ekki er vitað um tildrög slyssins og ekki er talið að konan hafi verið á óeðlilega miklum hraða. Innlent 13.10.2005 19:08
Vilja veiða við strendur jarða Samtök eigenda jarða, sem eiga land að sjó, ætla að höfða mál gegn ríkinu þar sem þeir ætla að krefjast réttar til að fá að veiða við strendur sínar eins og þeir hafa haft rétt til öldum saman. Tilefnið er dómur Hæstaréttar í vikunni þar sem hann dæmdi mann í 400 þúsund króna sekt og til að skila andvirði aflans fyrir að hafa veitt án leyfis til veiða í atvinnuskyni og þar með utan kvótakerfisins, en maðurinn hafði leyfi bónda til veiðanna. Innlent 13.10.2005 19:08
Telur ÁTVR brjóta áfengislög Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður telur að séu niðurstöður nýfallins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um útstillingu og umfjöllun um tóbaks heimfærðar upp á áfengislöggjöfina megi draga þá ályktun að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins brjóti þá löggjöf. Innlent 13.10.2005 19:08
Þjófur fúlsar við græjum Brotist var inn í og kveikt í bifreið í Höfðahverfi í Reykjavík aðfaranótt föstudags. Þjófurinn reif úr græjurnar og fúlsaði svo við þeim. Innlent 13.10.2005 19:08
Ofbeldi mótmælt á Akureyri Mótmæli gegn ofbeldi hefjast á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan fimm í dag. En efnt var til mótmælanna í kjölfar hrottalegra líkamsárása sem orðið hafa í bænum að undanförnu og gefa bæjarbúar ofbeldismönnum rauða spjaldið. Innlent 13.10.2005 19:08
Harmar aðild að hrottalegri árás Pilturinn sem skotið var á með loftbyssu á Vaðlaheiðinni, segist ætla að standa við kæruna á hendur árásarmönnum sínum en harmar jafnframt þann þátt sem hann átti í annarri hrottalegri árás á pilt á svipuðu reki. Innlent 13.10.2005 19:08
Kanna skaðabótamál í Símamáli Lögmenn Símans eru nú að kanna skaðabótamál gegn fjórmenningunum í Landssímamálinu svokallaða. Hægt verður að viðhalda skaðabótakröfum á þá í áratugi verði þær ekki greiddar. Innlent 13.10.2005 19:08
Blásið á athugasemdir dómara Umfjöllun fjölmiðla kann að hafa þrýst á um að máli var áfrýjað. Hæstiréttur taldi mann ekki eiga sér málsbætur fyrir að berja eiginkonu sína. Héraðsdómur tók áður fram að hún hefði reitt hann til reiði. Innlent 13.10.2005 19:08
Tók áminningu til baka Ólína Þorvarðardóttir, skólastjóri Menntaskólans á Ísafirði, segir dómssátt hafa náðst í máli sem komið var fyrir Héraðsdóm Vestfjarða, en enskukennari við skólann höfðaði mál gegn Menntaskólanum á Ísafirði. Enskukennarinn ítrekaði afsökunarbeiðni og í framhaldinu felldi Ólína áminningu úr gildi sem hún hafði veitt kennaranum vegna yfirferðar á prófum. Innlent 13.10.2005 19:08
Ver hagsmuni sína í kjölfar dóms Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir ljóst að Síminn muni verja hagsmuni sína í framhaldi af Hæstaréttardómi yfir þremur sakborningum í Landssímamálinu sem féll í gær. Lögfræðingar fyrirtækisins eru nú að kanna málið en eftir að dómur féll í héraðsdómi á síðasta ári segir hún grunn hafa verið lagðan að bótaskyldu. Innlent 13.10.2005 19:08
Lögregla leitar innbrotsþjófa Lögreglan í Reykjavík leitar nú tveggja innbrotsþjófa sem staðnir voru að verki við innbrot í einbýlishús í Seljahverfi um klukkan hálfþrjú í dag. Húsráðandi kom að mönnunum sem tóku til fótanna með það þýfi sem þeir höfðu þegar tekið, skartgripi þar á meðal. Lögreglan hefur nú þegar fundið þýfið sem þjófarnir höfðu falið við ruslatunnu í sömu götu og þeir frömdu innbrotið. Innlent 13.10.2005 19:08
Vill sérstök heimilisofbeldislög Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður telur nýfallinn dóm Hæstaréttar yfir manni sem fundinn var sekur um að misþyrma eiginkonu sinni sýna að hér vanti sérstaka löggjöf um heimilisofbeldi. Árásin var felld undir minniháttar líkamsárás og dæmt eftir því. Innlent 13.10.2005 19:08
Axlarbrot á Hellu Talið er að maður um tvítugt hafi axlarbrotnað þegar hann féll við á stóru og þungu bifhjóli innanbæjar á Hellu um klukkan níu í gærmorgun. Lögreglan á Hvolsvelli sagði að maðurinn hefði verið fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Innlent 13.10.2005 19:08
Vill breytingar á fyrningarfresti Jónína Bjartmarz alþingismaður vill afnema eða lengja verulega fyrningarfrest í alvarlegri kynferðisbrotum gegn börnum. Hún telur að huga þurfi að breytingum á fyrningarfrumvarpinu sem allsherjarnefnd hefur nú til meðferðar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:08
Dæmdur fyrir þjófnað og ofsaakstur 25 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, auk ökuleyfissviptingar í þrjá mánuði fyrir þjófnaði og ofsaakstur á undan lögreglu á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:08
Skilorð fyrir að berja konu Maður fékk þriggja mánaða fangelsisdóm skilorðsbundinn í þrjú ár í Hæstarétti í gær fyrir árás á eiginkonu sína. Dómurinn er nær samhljóða fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness, en hann vakti mikið umtal því látið var að því liggja að konan hefði verið valdur að bræði mannsins, en hann sakaði hana um framhjáhald. Innlent 13.10.2005 19:08
Hæstiréttur mildaði dómana Hæstiréttur mildaði dómana yfir sakborningunum þremur í Landssímamálinu rétt í þessu. Árni Þór Vigfússon var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar Kristjánsson í 18 mánuði. Báðir voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi síðastliðið sumar. Innlent 13.10.2005 19:08
Vaðlaheiðarfórnarlambið ók bílnum Einn þeirra sem stóðu að líkamsárásinni við Akureyri sem greint var frá fyrr í dag er sá sem skotið var á úr loftbyssu á Vaðlaheiði fyrir tæpum hálfum mánuði. Hann segist hafa ekið bílnum og viðurkennir að hafa verið á vettvangi, en neitar að hafa tekið þátt í barsmíðunum. Innlent 13.10.2005 19:08
Út í hött, segir Grétar Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas. Innlent 13.10.2005 19:08
Dómur í líkfundarmáli óbreyttur Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:08
Er ekki sáttur við dóminn Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Grétari Sigurðarsyni, Jónasi Inga Ragnarssyni og Tomasi Malakaukas, en hver þeirra hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Dóminn hlutu þeir fyrir smygl á tæpum 224 grömmum af amfetamíni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki Vaidasar Juceviciusar. Innlent 13.10.2005 19:08
Marijúana í togara í Hafnarfirði Tollgæslan og lögreglan í Hafnarfirði fundu tæplega fimm grömm af marijúana við leit í færeyskum togara sem lá að bryggju við Óseyrarbryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Eins fundust tól til neyslu kannabisefna. Innlent 13.10.2005 19:08
Búið að slökkva eldinn Búið er að slökkva eldinn sem kviknaði í Framheimilinu við Safamýri síðdegis. Eldurinn logaði í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður var á staðnum en fólk var ekki í hættu. Talið er að kviknað hafi í út frá vinnu við tjörupappalagningu. Innlent 13.10.2005 19:07
Eldur logaði í útvegg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði mikinn viðbúnað vegna elds í Framheimilinu í Reykjavík laust eftir klukkan eitt í gærdag. Enginn meiddist og búið var að hefta útbreiðslu eldsins um klukkustund síðar. Nemendur í Álftamýrarskóla, sem er í næsta húsi, voru sendir heim vegna brunans. Innlent 13.10.2005 19:08
Kona lést í bílveltu Rúmlega fimmtug kona lést þegar bíll sem hún ók fór út af og valt nokkrum sinnum á Upphéraðsvegi um einn kílómetra frá Egilsstöðum á leiðinni inn í Hallormsstað á tíunda tímanum á þriðjudagskvöldið. Bremsuför á vettvangi benda til þess að konan hafi misst stjórn á bílnum en að öðru leyti eru tildrög slyssins ókunn. Konan var ein í bílnum. Innlent 13.10.2005 19:07
Dómar í Landssímamálinu mildaðir Dómar Héraðsdóms yfir Árna Þór Vigfússyni, Kristjáni Ra. Kristjánssyni og Ragnari Orra Benediktssyni voru í Hæstarétti samtals mildaðir um 20 mánuði. Allir kröfðust þeir sýknu í málinu, en ákæruvaldið vildi staðfestingu héraðsdóms. Innlent 13.10.2005 19:08
Staðfestir sekt en mildar refsingu Hæstiréttur mildaði í dag refsingu fyrrverandi forsvarsmanna Skjás eins fyrir að veita viðtöku og ráðstafa í eigin þágu yfir hundrað og sextíu milljónum af stolnu fé frá Landssímanum og hylma yfir glæpinn. Hæstiréttur telur algjörlega útilokað að þeir hafi ekki vitað að féð var illa fengið. Innlent 13.10.2005 19:08