Ástin á götunni
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Heimir ekki með FH-ingum Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, er ekki í leikmannahópi liðsins sem mætir Skagamönnum í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla. Baldur Bett tekur stöðu fyrirliðans á miðjunni en markvörðurinn Daði Lárusson ber fyrirliðabandið í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn yfir í hálfleik Skagamenn eru 0-1 yfir í hálfleik gegn FH í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli. Markið skoraði hinn 19 ára gamli Andri Júlíusson strax á 3. mínútu leiksins með skalla af markteig eftir sendingu frá Igor Pesic. Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA, hefur varið oft mjög vel í markinu þar á meðal vítaspyrnu frá Tryggva Guðmundssyni á lokamínútu fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:31
FH-ingar í undanúrslit bikarsins FH-ingar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum VISA-bikars karla í dag með 5-1 sigri á ÍA í framlengdum leik liðanna í Kaplakrika. Skagamenn skoruðu strax á 3 mínútu en FH-ingar tryggðu sér framlengingu 17 mínútum fyrir leikslok og unnu hana síðan örugglega 4-0. Allir varamenn Íslandsmeistaranna skoruðu í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Niðurlægðir í framlengingu FHingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu með 5-1 sigri á ÍA á heimavelli sínum í Kaplakrika í gær. FH-ingar voru heppnir að koma leiknum í framlengingu en eftir að í hana var komnið var aldrei spurning um hvernig leikar myndu fara. Sport 13.10.2005 19:31
Jónas Grani skorar fjórða mark FH Jónas Grani Garðarsson er búinn að skora þriðja mark FH í framlengingunni og koma liðinu í 4-1 með skalla á 110. mínútu leiksins. Jónas Grani kom inn á sem varamaður og var réttur maður á réttum stað á fjærstöng eftir hornspyrnu Davíðs Þórs Viðarssonar. Sport 13.10.2005 19:31
Bjarki ver víti frá Tryggva Bjarki Guðmundsson varði glæsilega vítaspyrnu frá Tryggva Guðmundssyni á lokamínútu fyrri hálfleiks. Vítið fengu FH-ingar þegar Kári Steinn Reynisson handlék knöttinn í vítateignum. Bjarki varði vítið glæsilega út við stöng en hann hefur varið nokkrum sinnum mjög vel í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Tryggvi Guðmundsson í dauðafæri Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA varði rétt í þessu stórkostlega frá Tryggva Guðmundssyni hjá FH, sem komst í sannkallað dauðafæri eftir að varnarmaður Skagamanna hrasaði og missti boltann frá sér á hálum vellinum. Bjarki hefur að öðrum ólöstuðum verið maður þessa leiks. Sport 13.10.2005 19:31
Tobias Rau til Bielefeld Tobias Rau, landsliðsmaður Þýskalands í knattspyrnu er genginn til liðs við Armenia Bielefeld frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen. Rau er 23 ára gamall varnarmaður. Sport 13.10.2005 19:31
Tryggvi jafnar leikinn Tryggvi Guðmundsson hefur jafnað leikinn fyrir FH gegn Skagamönnum í 1-1 eftir góða sókn FH upp hægri kantinn þar sem Davíð Þór Viðarsson sendi boltann fyrir markið og Tryggvi átti ekki í vandræðum með að skora. Markið kemur á 73. mínútu og nokkuð gegn gangi leiksins í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:31
Bjarki ver í þrígang meistaralega FH-ingar eru að taka við sér og Bjarki Guðmundsson varði í þrígang meistaralega frá þeim Davíð Þór Viðarssyni, Guðmundi Sævarssyni og Tryggva Guðmundssyni úr aukaspyrnu. Skagamenn urðu nú rétt áðan fyrsta íslenska liðið til að komast yfir gegn FH í sumar. Staðan er enn 0-1 fyrir ÍA eftir 16 mínútur. Sport 13.10.2005 19:31
Ólafur Þórðarson rekinn af velli Ólafi Þórðarsyni, þjálfara Skagamanna hefur verið vísað af velli fyrir kröftug mótmæli sín á hliðarlínunni í Kaplakrika, en nú þegar um tíu mínútur eru eftir af leiknum er mikið fjör á vellinum og bæði lið hafa fengið góð færi. Það eru þó sem fyrr gestirnir sem eru mun líklegri til afreka og hafa fengið aragrúa af færum sem þeir hafa þó enn ekki náð að nýta. Sport 13.10.2005 19:31
Jón Þorgrímur kemur FH yfir Varamaðurinn Jón Þorgrímur Stefánsson er búinn að koma FH yfir í 2-1 eftir 5 mínútna leik í framlengingu. Markið skoraði Jón Þorgrímur með skalla í slánna og inn rétt utan markteigs eftir fyrirgjöf Tryggva Guðmundssona með hægri af hægri kantinum. Sport 13.10.2005 19:31
S.W.P. vill ræða við Chelsea Shaun Wright Phillips leikmaður, Manchester City hefur beðið um leyfi frá félaginu til að ræða við forráðamenn Chelsea um hugsanleg félagaskipti. Í gær hafnaði Manchester City tilboði Chelsea í Wright Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda Sport 13.10.2005 19:31
Allan að gulltryggja sigurinn Allan Borgvardt er nánast búinn að gulltryggja sigur FH og sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla eftir að hann kom FH í 3-1 á 108. mínútu með skalla úr markteig eftir frábæran undirbúning Guðmundar Sævarssonar. Sport 13.10.2005 19:31
Tvöföld skipting hjá FH og ÍA FHingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Inná eru komnir Jónas Grani Garðarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson og greinlegt að Ólafur Jóhannesson þjálfari ætlar sér að blása til sóknar til að freista þess að jafna leikinn, en það hafa verið Skagamenn sem hafa átt hvert dauðafærið á fætur öðru á síðustu mínútum. Sport 13.10.2005 19:31
Kominn hálfleikur í framlenginu FH-ingar hafa ágæt tök á leiknum gegn Skagamönnum eftir að Jón Þorgrímur Stefánsson kom þeim í 2-1 eftir aðeins 5 mínútna leik í framlenginunni. Það stefnir því í það að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn á heimavelli sínum í dag og séu komnir inn í undanúrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu en gestirnir ofan af Skaga hafa 15 mínútur til að breyta því. Sport 13.10.2005 19:31
Jon Dahl Tomasson til Stuttgart Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni. Sport 13.10.2005 19:31
Atli Viðar kemur FH í 5-1 Atli Viðar Björnsson er búinn að skora fjórða mark FH í framlengingunni og koma FH í 5-1 á 114. mínútu. Markið skoraði Atli Viðar eftir skyndisókn og sendingu Jónasar Grana Garðarssonar en þrír varamenn FH-liðsins eru búnir að skora í leiknum. Það er grátlegt að sjá Skagaliðið hrynja saman eftir frábæra frammistöðu í 90 mínútur. Sport 13.10.2005 19:31
Andri Júlíusson kemur ÍA yfir Andri Júlíusson er búinn að skora fyrir Skagamann eftir aðeins þrjár mínútur með skalla af markteig eftir skallasendingu Igors Pesic. Þetta var fyrsta marktilraun leiksins. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn með stangarskot Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti rétt í þessu skot sem hafnaði í stönginni á marki FH-inga, en hann hefur verið mjög sprækur á vinstri vængnum í liði ÍA í dag. Staðan eftir rúmlega hálftíma leik er því enn 1-0, Skagamönnum í vil. Sport 13.10.2005 19:31
Landsliðið upp um sjö sæti Íslenska landsliðið í knattspyrnu er hástökkvari mánaðarins á nýjum styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Ísland er komið í 90.sæti eftir að hafa verið í 97. sæti en það var versta staða liðsins frá því styrkleikalisti alþjóða knattspyrnusambandsins var tekinn upp, í ágúst 1993. Sport 13.10.2005 19:31
Frétti af áhuga Newcastle hér Almir Cosic er úrvals knattspyrnumaður að sögn Vilbergs Jónassonar, þjálfara Leiknis á Fáskrúðsfirði sem leikur í þriðju deildinni á Íslandsmótinu. Það vakti furðu margra þegar greint var frá því í fjölmiðlum fyrr í sumar að Leiknir væri með mann innanborðs sem stuttu áður hefði verið metinn á um 300 milljónir króna. Sport 13.10.2005 19:31
Tilboði Chelsea í S.W.P. hafnað Tilboði Chelsea, ensku meistaranna í knattspyrnu, í sóknar-miðjumann Manchester City, Shaun Wright-Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda hefur verið hafnað. Chelsea ætla þó ekki að gefast upp og búist er við því að þeir reyni aftur að klófesta kappann nú helgina. Sport 13.10.2005 19:31
Souness aðvarar Arsenal Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að forráðamenn Arsenal muni ekki hafa efni á að kaupa Jermaine Jenas af félaginu til að leysa af Patrick Vieira, sem í gær gekk í raðir Juventus á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:31
Man.Utd má ekki tapa einum leik Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man.Utd, segir að lið sitt megi ekki tapa einum einsta leik á næsta tímabili, ætli liðið sér að eiga möguleika á enska meistaratitlinum. Sport 13.10.2005 19:31
Mourinho hrósar Eiði Smára José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hrósaði Eiði Smára Guðjohnsen í hástert eftir fyrsta æfingaleik félagsins á tímabilinu gegn Wycombe Wanderers, en honum lauk með 5-1 sigri Chelsea. Sport 13.10.2005 19:31
Sao Paulo S-Ameríkumeistari Sao Paulo, frá Brasilíu, sigraði í gær í Suður Ameríku keppni félagsliða eða Copa Libertadores keppninni í knattspyrnu. Þeir sigruðu Atletico Parananense, sem einnig eru frá Brasilíu, 4-0 í seinni leik liðanna en Sao Paulo vann einnig fyrri leik liðanna. Markvörður Sao Paulo, Rogerio Ceni, skoraði enn eina ferðina.... Sport 13.10.2005 19:31
Ungur markvörður Stoke til Man Utd Ben Foster, 22 ára gamall varamarkvörður Stoke City, er genginn til lið við Manchester United. Kaupverðið á markverðinum stóra og stæðilega er talið nema rúmri einni milljón punda. Forster er annar markvörðurinn til að ganga til við United í sumar, því í júní mánuði fékk liðið holleska markvörðinn Edwin van der Saar. Sport 13.10.2005 19:31
Viera verður okkur mikilvægur Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að Patrick Vieira verði algjör lykilmaður í liði sínu á næstu leiktíð og hlakkar til að sjá hann spila með liðinu. Sport 13.10.2005 19:31
Góður sigur Blika-úrslit kvöldsins Topplið Landsbankadeildar kvenna, Breiðablik, gerði góða ferð suður með sjó og sigraði Keflavík 1-0 og færast því enn nær Íslandsmeistaratitlinum. Valur sigraði lið Stjörnunnar 3 -0 í Garðabæ og KR lagði Skagastúlkur af velli 3-0 í Frostaskjóli. Einnig voru tveir leikir í 1.deild karla, HK og KS unnu mikilvæga sigra í botnabaráttunni. Sport 13.10.2005 19:31