Ástin á götunni

Enski boltinn á Sýn í kvöld
Í kvöld verður leikið í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Manchester United mætir Debrecen frá Ungverjalandi á Old Trafforf í fyrri leik liðanna, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18.55.

Glæsilegur sigur Vals
Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu.

Norska úrvalsdeildin
Einn leikur var á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Viking og Start gerðu jafntefli, 1 - 1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Vikings í síðari hálfleik rétt eins og Jóhannes Harðarson sem leikur með Start.

Sigur hjá Guðjóni
Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli.

Úrslitin úr ensku 1.deildinni.
Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir..

Segir Owen að fara til Newcastle
Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Breiðablik færist nær titlinum
Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ.

Gautaborg er á toppnum
Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2.

United yfir í hálfleik
Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni.

Forlan verður okkur erfiður
Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn.

Ferguson viðurkennir rifrildi
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United hefur viðurkennt að hafa lennt í rifrildi við Roy Keane fyrirliða liðsins í æfingabúðum í Portúgal fyrr í sumar. Ferguson, sem er skoskur, segir að rifrildið hafi ekki verið alvarlegt en óskar sér samt að hann hefði fengið pund fyrir hvert skipti sem hann hafi rifist við Keane, en þá væri hann ríkur maður í dag.

Nisterlrooy mun snúa aftur
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný.

Yfirlýsing frá Val
Yfirlýsing frá knattspyrndeild Vals..

Buryak látinn fara
Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks

Shearer og Parker meiddir
Alan Shearer, fyrirliði Newcasstle og Scott Parker miðjumaðurinn sem Newcastle fékk frá Chelsea verða ekki með liðinu gegn Arsenal á Highbury í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni sem verður á sunnudag. Þá á Shay Given, markvörður liðsins við nárameiðsli að stríða og alls óvíst hvort hann leiki með gegn Arsenal.

Jóhann til reynslu hjá AGF
Á heimasíðu AGF í dag er greint frá því að Jóhann B. Guðmundsson knattspyrnumaður í Örgyte í Gautaborg er þessa dagana til reynslu hjá danska félaginu AGF í Árósum og það ræðst um næstu helgi, hvort honum verði boðinn samningur.

Ferdinand segist ekki gráðugur
Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United, segir að það hafi ekki verið græðgi sem tafði undirritun nýja samnings hans í gær og blæs á sögusagnir um að hann hafi verið að bíða eftir að United samþykkti að borga honum 120.000 pund í vikulaun.

Sannleikanum hagrætt að mati Fram
Í yfirlýsingu frá Fram segir að frjálslega sé farið með sannleikann í tengslum við félagaskipti Bo Henriksen frá Val til Fram.

Geir eftirlitsmaður á Spáni
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á viðureign Real Betis og Mónakó í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast á Manuel Ruíz de Lopera leikvanginum í Sevilla á Spáni á þriðjudagskvöld.

Owen byrjar tímabilið með Real
Enski sóknarmaðurinn Michael Owen, sem nú er orðaður við annað hvert félag í Englandi, býst fastlega við því að hefja komandi leiktíð á Spáni.

Cahill með nýjan samning
Tim Cahill, leikmaður Everton gerði í dag nýjan og bættan fimm ára samning við félagið. Cahill var af öðrum ólöstuðum besti leikmaður Everton í fyrra og var markahæsti leikmaður liðsins þrátt fyrir að leika á miðjunni.

Klukkutími í leik Fram og Vals
Nú er klukkutími í leik Fram og Vals í Landsbankadeild Karla. Leikurinn verður í beinni á Sýn og einnig er hægt að fylgjast með honum á Boltavaktinni hér á Vísi. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið, Fram í botnbaráttunni en Val í toppslagnum.

Fylkir - ÍA
Hjörtur Hjartarson tryggði Akurnesingum öll stigin gegn Fylki með marki úr vítaspyrnu sem Skagamenn fengu gefins sex mínútum fyrir leikslok í 3 - 2 sigri Skagamanna í Árbænum.

Myhre til Charlton
Norski landsliðsmarkvörðurinn, Thomas Myhre er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Charlton frá Fredrikstad í Noregi. Aðalmarkvörður Charlton Dean Kiely er meiddur. Myhre hefur leikið áður með Everton og Sunderland.

Allardyce ekki örvæntingarfullur
Sam Allardyce, stjóri Bolton, segist ekki verða orðinn örvæntingarfullur í leit sinni að nýjum leikmönnum til að fá til liðsins. Eftir að hafa fengið Javier Borgetti frá Mexíkó hefur Allardyce ekki náð að semja við neinn leikmann.

Dudek illa meiddur
Jerzy Dudek, markvörður Liverpool fór úr olnbogalið á æfingu með liðinu í dag og missir því af upphafi móts. Meiðslin setja samt ekki strik í reikningin hjá Liverpool því liðið keypti Spánverjann Jose Reyna frá Villareal til að standa í markinu í vetur hjá liðinu.

Halmstad er í þriðja neðsta sæti
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad sem beið í gær lægri hlut fyrir Örgryte 2 - 1 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jóhann B Guðmundsson kom inn á sem varamaður í liði Örgryte í síðari hálfleik.

Við þurfum ekki Jenas
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kveðst sannfærður um að Cesc Fabregas, hinn kornungi spænski miðjumaður liðsins, geti fyllt það skarð sem Patrick Vieira skildi eftir sig þegar hann gekk til liðs við Juventus.

Abramovich á leiðinni til Lyon
Kóngurinn sjálfur hjá Chelsea, Roman Abramovich, er á leið til Lyon á morgun til að borga fyrir Mickael Essien, miðjumanns liðsins.

Jafntefli hjá Keflavík - Þrótti
Keflavík og Þróttur skildu jöfn 3 - 3 í Keflavík. Hörður Sveinsson skoraði tvö mörk heimamanna og nýliðinn ungi frá Færeyjum Simun Samuelsen skoraði eitt mark í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni. Þórarinn Kristjánsson, Josef Maruniak og Haukur Páll Sigurðsson skoruðu mörk Þróttar.