

Helsti ágalli gildandi kosningaskipunar og flokkakerfis er sá að kjósendur geta ekki sjálfir við kjörborðið valið á milli borgaralegra ríkisstjórna og vinstri stjórna.
Hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu er bæði viðamikið og margslungið viðfangsefni. Brýnt er að menn glöggvi sig sem best á í hvaða farveg rétt er að fella umræðuna. Enn fremur þarf tímarammi hennar að vera sæmilega ljós. Miklu skiptir síðan að þær leikreglur sem gilda eiga um ákvörðunarferilinn liggi fyrir áður en endanleg efnisafstaða er tekin.
Aðalhagfræðingur Seðlabankans átti í síðustu viku í krafti stöðu sinnar samtal við þekkt þýskt dagblað. Þar kom fram sú afdráttarlausa skoðun að með evru mætti ná betri stöðugleika í þjóðarbúskap Íslendinga.
Tímabundinn vandi efnahagslífsins snýst um alþjóðlega lánakreppu. Langtíma vandinn í þjóðarbúskapunum felst hins vegar í því að íslenska krónan er ekki samkeppnishæf. Þetta eru aðskilin viðfangsefni.
Eftirmál síðustu vaxtahækkunar Seðlabankans hafa aðallega verið tvenns konar: Annars vegar birtast þau í kröfum úr ýmsum áttum um nýja yfirstjórn bankans.
Hverju ríki er mikilvægt að ákvarða stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Breytingar og þróun laga hana að nýjum aðstæðum. Fótfestan er hins vegar að öllu jöfnu stöðugri og felst í langtíma hagsmunum og hugsjónum.
Flutningabílstjórar og eigendur eyðslufrekustu tómstundabíla hafa skipulagt mótmæli að frönskum sið síðustu daga. Enginn hefur komist hjá að taka eftir því.
Ræða forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans er að líkindum sú mikilvægasta sem flutt hefur verið á þeim vettvangi frá upphafi vega. Það var hún ekki vegna upphrópana. Þunginn í henni var sannast sagna í öfugu hlutfalli við látleysi orðanna.
Ólöf Nordal alþingismaður opnaði greinaflokk um Evrópumálefni hér í Fréttablaðinu í liðinni viku með þörfum ábendingum um aðferðafræði þessarar mikilvægu umræðu.
Vaxtahækkun Seðlabankans og ráðstöfunum hans til þess að auka lausafé á fjármálamarkaðnum var yfirleitt mætt á fremur jákvæðan hátt. Samtímis höfðu hræringar á erlendum fjármálamörkuðum jákvæð áhrif bæði á gengi hlutabréfa og krónunnar.
Heimsmyndin hefur breyst á skömmum tíma. Stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna þarf að skoða í því ljósi.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í byrjun þessarar viku sýndi meiri stuðning við Evrópusambandsaðild en áður hefur komið fram. Meirihluti aðspurðra telur ríkari ástæður nú en fyrir ári að stíga þetta skref.
Á liðnum sex mánuðum hafa setið þrír borgarstjórar í Reykjavík. Sú lausung hefur eðlilga komið mest niður á Sjálfstæðisflokknum enda ber hann sinn hluta ábyrgðarinnar. Skoðanakönnun Fréttablaðsins í gær er á hinn bóginn vísbending um að á landsvísu hafi þetta verið tímabundin lægð.
Sá vinsæli tónlistarmaður Bubbi Morthens og Geir H. Haarde forsætisráðherra sungu saman Lóa litla á Brú á tónleikum sem tónlistarmaðurinn stofnaði til í baráttu gegn kynþáttafordómum. Það framtak verðskuldar eftirtekt og eins hitt að forsætisráðherrann skuli leggja því lið með þessum hætti.
Fjármálaórói síðustu mánaða hefur vakið umræðuna um krónuna af værum blundi. Kerfisbreyting á því sviði getur þó ekki verið þáttur í skyndilausn á aðsteðjandi vanda.
Lagareglur þurfa stoð í siðrænum gildum. Án slíkra tengsla milli settra lagareglna og almennt viðurkenndra siðferðilegra viðhorfa er hætt við að lagareglurnar þyki einfaldlega óréttlátar eða reynist illframkvæmanlegar.
þingmenn tveggja stjórnmálaflokka hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að fiskveiðistjórnunarlögunum verði breytt í kjölfar sjónarmiða mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Með því hafa þeir hent upp bolta sem vert getur verið að grípa á lofti.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar til varnarmálalaga markar um margt tímamót. Um er að ræða fyrstu heildstæðu löggjöfina um stjórnsýslu varnarmála. Hún felur einnig í sér að Íslendingar axla í fyrsta skipti ábyrgð á eigin hernaðarlegri starfsemi.
Meirihluti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hefur lýst þeirri skoðun að takmörkuð eignarréttindi á veiðiheimildum með frjálsu framsali séu andstæð mannréttindum. Sú niðurstaða stangast á við stjórnarskrá Íslands.
Endurnýjun kjarasamninga er mikilvægasta og um leið eldfimasta verkefni sem við blasir í upphafi nýs árs. En það er kvika í því umhverfi sem þeir hrærast í sem leiða eiga þessa mikilvægu samninga til lykta.
Alþingi hefur að tillögu sjávarútvegsráðherra fellt tímabundið niður auðlindaskatt af þorskveiðiréttindum. Óveruleg umræða hefur farið fram um þessa breytingu. Skýringin er hugsanlega sú að hér er um að ræða tiltölulega hóflegan skatt.
Á liðnu vori var gerður samningur um yfirfærslu á vatnsréttindum ríkissjóðs í Þjórsá til Landsvirkjunar. Gera átti út um endurgjaldið á síðari stigum. Í reynd var um að ræða tilfærslu á eignarréttindum innan ríkiskerfisins. Ríkisendurskoðun hefur komist að þeirri niðurstöðu að gildi samningsins sé eftir fjárreiðulögum háð samþykki Alþingis.
Tveir alþingismenn hafa að undanförnu borið stjórnarmenn í Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar þungum sökum. Þeir eru sagðir hafa brotið lög og misfarið með eignir ríkisins með því að selja þær vinum og vandamönnum undir markaðsverði á bak við tjöldin.
Þegar frumvarpið um hlutafélagsvæðingu Ríkisútvarpsins var til meðferðar á Alþingi lagði Samkeppniseftirlitið fram álit. Þar kom fram að reglurnar um hið nýja hlutafélag stönguðust í veigamiklum atriðum á við grundvallarreglur samkeppnisréttarins.
Þegar frumvarpið um hlutafélagsvæðingu Ríkisútvarpsins var til meðferðar á Alþingi lagði Samkeppniseftirlitið fram álit. Þar kom fram að reglurnar um hið nýja hlutafélag stönguðust í veigamiklum atriðum á við grundvallarreglur samkeppnisréttarins. Fyrir menntamálaráðherra var það ekki áhyggjuefni, heldur þvert á móti gleðileg staðfesting á að tilganginum væri náð