
Ráðist á leigusala á Langholtsvegi

Maður sem reyndi að bana leigusala tekinn með fíkniefni á Litla-Hrauni
Karlmaður sem á langan sakaferill að baki hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir fíkniefnabrot sem hann framdi í fangelsinu Litla-Hrauni.

Dómur þyngdur í sjö og hálfs árs fangelsi vegna tveggja hrottafenginna árása
Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Þorláki Fannari Albertssyni í sjö og hálfs árs fangelsi vegna tilraunar til manndráps, alvarlegrar líkamsárásar og frelsissviptingar á síðasta ári. Hann hafði í byrjun árs verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Sex og hálfs árs fangelsi fyrir tvær hrottalegar líkamsárásir
Þorlákur Fannar Albertsson hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps, alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu á síðasta ári. Önnur árásin var á leigusala hans í júní, konu á fimmtugsaldri, en hin á félaga sinn á þrítugsaldri í apríl. Þorlákur bar fyrir sig að hafa verið í geðrofi þegar hann réðst á fólkið. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Fékk „hálfgert taugaáfall“ nóttina eftir sautján tíma frelsissviptingu og barsmíðar
Karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á leigusala sinn í júní, er einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu gegn félaga sínum í íbúð í Bríetartúni í Reykjavík í apríl. Félaginn lýsti því fyrir dómi í síðustu viku að maðurinn hefði bundið sig, lamið með kúbeini og haldið honum föngnum í íbúðinni í rúman hálfan sólarhring.

Lýsti því eins og í dýralífsþætti þegar hún horfði í augun á árásarmanninum
Kona sem varð fyrir hnífaárás í íbúð sinni við Langholtsveg í sumar segist viss um að hún hefði látið lífið í árásinni, sem leigjandi hennar til skamms tíma er ákærður fyrir, ef ekki hefði verið fyrir snör viðbrögð af hennar hálfu. Hún lýsir því að hún hafi vikið sér undan ítrekuðum atlögum mannsins og varðist einnig hnífsstungum með þvottakörfu. Atburðarásin hafi verið óraunveruleg og maðurinn ítrekað hótað henni lífláti.

Hótaði að drepa „þriðja manninn“ eftir árásina á leigusalann
Karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á leigusala sinn í júní síðastliðnum ber því fyrir sig að hafa verið í geðrofi morguninn sem árásin var framin og muni því varla neitt af atburðarásinni.

Hlaut ellefu skurði og stungusár í lífshættulegri hnífaárás
Karlmaður á fertugsaldri sem réðst að tilefnislausu á leigusala sinn með hnífi hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Leigusalinn hlaut fjölmörg stungusár og skurði og glímir enn við eftirköst árásarinnar.

Talin hætta á áframhaldandi brotastarfsemi mannsins
Karlmaður á fertugsaldri sem veitti konu áverka með hníf á heimili hennar í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Réðst á leigusala sinn að tilefnislausu
Alvarleg líkamsárás sem gerð var í gærmorgun í Reykjavík var tilefnislaus áras af hendi nágranna, sem jafnframt var leigjandi þolandans, samkvæmt heimildum fréttastofu.