Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Sunna Hlín leiðir lista Fram­sóknar á­fram

Sunna Hlín Jóhannsdóttir skipar efsta sæti lista Framsóknarflokksins á Akureyri. Hún er þegar sitjandi bæjarfulltrúi fyrir hönd flokksins og sömuleiðis Gunnar Már Gunnarsson, sem skipar annað sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri

Sanna Magdalena Mörtudóttir skipar fyrsta sæti lista Vors til vinstri í Reykjavík og þar með efsta sæti sameiginlegs lista þeirra með Vinstri grænum sem ber heitið Vinstrið. Með henni á lista eru Ásta Þórdís Skjalddal og Arna Magnea Danks.

Innlent
Fréttamynd

„Ég tel þetta ekki vera á­kveðna höfnun á Alexöndru“

Efstu tíu sæti lista Pírata í Reykjavík verða staðfest í dag og listinn kynntur eftir helgi. Prófkjöri lauk í gær. Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti flokksins, segir spennandi tíma framundan. Ekki liggur fyrir hvort Alexandra Briem þiggi eða hafni öðru sæti listans en Kristinn segir að þó svo að niðurstaða sé bindandi geti fólk beðið um að vera fært neðar eða hafnað sæti.

Innlent
Fréttamynd

Kjartan og Marta til liðs við Mið­flokkinn

Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana

Kosningastjóri Miðflokksins í Reykjavík, Nadine Guðrún Yagi, er kát með mikinn kvennafögnuð sem flokkurinn blés til gær en víst er að fólk er farið að brýna kutana – kosningabaráttan fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er að hefjast.

Lífið
Fréttamynd

Raun­hæf skref inn í sterkari fram­tíð

Sveitarfélagið Norðurþing stendur sterkt og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á árinu 2024 var fjárfest fyrir um 500 milljónir og ríflega 700 milljónir árið 2025 í A-hluta. Það var mögulegt vegna aga í rekstri og innkomu síðastliðin ár. Engin ný lán hafa verið tekin á kjörtímabilinu fyrren nú þegar við verðum fyrir alvarlegu tekjufalli og fimmtíu milljónum minna í kassann á mánuði. Það er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við af ábyrgð og festu. Slíkar aðstæður kalla á erfiðar ákvarðanir. Við megum þó aldrei gleyma því að á bak við hverja tölu eru störf fólks, fjölskyldur og þjónusta sem skiptir íbúa okkar miklu máli.

Skoðun
Fréttamynd

Þessi leiða Við­reisn í Garða­bæ

Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. 

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Við­reisnar í Reykja­vík

Róbert Ragnarsson, fyrrverandi Bæjarstjóri Grindavíkur, og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson skipa annað og þriðja sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Innlent
Fréttamynd

Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál

Komandi sveitarstjórnarkosningar eru ekki þær fyrstu þar sem Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, koma til með að takast á um bílastæði. Báðar sinntu þær formannsstörfum í stúdentapólitíkinni.

Innlent
Fréttamynd

Brynjar ráðinn korter í kosningar

Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Sjálf­stæðis­manna á Sel­tjarnar­nesi

Fulltrúaráð Sjálfstæðifélaganna á Seltjarnarnesi samþykkti á dögunum einróma framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnakosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri skipar áfram efsta sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Sam­fylkingin mætt til leiks á Ísa­firði

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi flokksins í kvöld 2. mars. Jafnaðarmenn í Ísafjarðarbæ eru mættir til leiks að því er segir í tilkynningu.

Innlent
Fréttamynd

D-listinn nærri því sá sami en ó­ljóst með Elliða

Sjálfstæðisfélagið Ægir í Ölfusi hefur kynnt D-listann í Ölfusi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Athygli vekur að efstu sex sætin eru skipuð sömu frambjóðendum og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 en eina breytingin er sú að Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, býtta á sætum. 

Innlent
Fréttamynd

Nýtt fram­boð í Bolungar­vík

Nýtt framboð hefur verið boðað til sveitarstjórnar í Bolungarvík. Framboðið nefnist Betri Bolungarvík og hefur stofnfundur verið boðaður á bæjarkránni Verbúðinni næstkomandi fimmtudagskvöld.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík

Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu. 

Innlent