Umfjöllun: ÍBV - Selfoss 5-0 | Lacasse með þrennu í stórsigri Eyjakvenna Guðmundur Tómas Sigfússon skrifar 4. júlí 2016 19:30 Eyjakonur eru komnar í undanúrslit. vísir/vilhelm
Cloe Lacasse skoraði þrennu þegar ÍBV rúllaði yfir Selfoss í 8-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna á Hásteinsvelli í kvöld. Lokatölur 5-0, Eyjakonum í vil. ÍBV er komið í undanúrslit ásamt Þór/KA sem vann Fylki á sama tíma. Á morgun mætast svo Stjarnan og Haukar annars vegar og Breiðablik og HK/Víkingur hins vegar. Rebekah Bass kom Eyjakonum yfir á 24. mínútu þegar hún slapp inn fyrir vörn Selfyssinga eftir að Lacasse vann skallaeinvígi. Lacasse skoraði svo annað mark heimakvenna eftir mikinn einleik á 41. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði hún öðru sinni eftir sendingu frá Bass. Staðan 3-0 í hálfleik. Lacasse fullkomnaði svo þrennuna á 56. mínútu þegar hún kom boltanum framhjá Chante Sandiford í marki Selfyssinga eftir sendingu frá Sigríði Láru Garðarsdóttur sem átti svo síðasta orðið þegar hún skoraði úr vítaspyrnu þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Annar heimasigur ÍBV í sumar staðreynd en liðinu hefur ekki gengið sem best í Pepsi-deildinni þar sem það situr í 8. sæti. Selfoss er hins vegar úr leik en liðið komst í bikarúrslit 2014 og 2015 þar sem það tapaði í bæði skiptin fyrir Stjörnunni.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira