„Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2026 07:00 Ingvar Jónsson tók við Íslandsskildinum fyrir hönd Víkinga en Víkingar unnu hann annað árið í röð. Hér er hann með konu sinni Írisi Guðmundsdóttur. Vísir/Anton Íslenska körfuboltagoðsögnin Bryndís Guðmundsdóttir hrósað forráðamönnum og þjálfara Víkinga fyrir hvernig félagið hefur haldið utan um markvörðinn sinn Ingvar Jónsson eftir að hann greindist með illkynja krabbamein.
Bryndís átti sjálf frábæran og sigursælan körfuboltaferil hér á landi og þekkir vel þegar kemur að íslenska íþróttaheiminum. Hún vann meðal annars sex Íslandsmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla með Keflavík og Snæfelli og alls yfir þrjátíu titla á ferlinum. Bryndís segist ekki vera mikið fyrir það að tjá sig á netinu en að stuðningurinn við Ingvar hafi kallað á nokkur orð. Ingvar tók við Íslandsskildinum fyrir hönd Víkinga um síðustu helgi og Víkingar gáfu honum einnig nýjan samning þegar veikindin komu upp. Hér má sjá Ingvar Jónsson með öllu sínu nánasta fólki sem var allt með honum þegar hann fékk að taka við Íslandsskildinum.Úr einkasafni Víkingar stóðu einnig fyrir sérstakri söfnun í kringum lokaleikinn þar sem Víkingsliðið spilaði í sérstökum Ingvars-treyjum sem voru síðan boðnar upp og innkoman fór í sérstakan Ingvarssjóð. „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi. Þegar mágur minn, Ingvar, greindist með krabbamein hefur félagið sýnt okkur hvað það þýðir í alvöru að standa saman og vera til staðar þegar á reynir,“ skrifar Bryndís. „Að vita að það stendur heilt félag á bak við Ingvar og fjölskylduna hans er algjörlega ómetanlegt. Hvort sem um er að ræða stuðningsmenn, starfsmenn eða leikmenn þá hefur aldrei staðið á stuðningi eða hjálpsemi,“ skrifar Bryndís og nefnir sérstaklega tvo menn. Ingvar Jónsson í treyjunni sem var hönnuð sérstaklega sem styrktartreyja fyrir hann.Vísir/Anton Það eru þeir Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings, og Sölvi Geir Ottesen, þjálfari liðsins. „Mig langar sérstaklega að nefna tvo menn sem hafa verið í sambandi við okkur fjölskylduna og sýnt okkur ótrúlega hlýju og stuðning á þessum erfiðu tímum,“ skrifar Bryndís „Guðjón og Sölvi Geir – þið eruð gull af mönnum, ég segi það aftur og aftur: takk fyrir að vera til staðar fyrir Ingvar og fjölskylduna hans. Það er ekki sjálfgefið að finna svona stuðning og umhyggju og það er erfitt að koma því í orð hversu mikið það hefur þýtt fyrir okkur. Ingvar er sannarlega heppinn að tilheyra svona frábæru félagi,“ skrifar Bryndís. Færsla Bryndísar í dag.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Ingvar Jónsson tók við Íslandsskildinum fyrir hönd Víkinga eftir lokaleik tímabilsins í kvöld. 24. október 2026 18:49 Treyja Gylfa fór á milljón Góðgerðatreyja Víkings og 66° Norður sem Gylfi Þór Sigurðsson klæddist í lokaleik tímabilsins í 2-2 jafntefli við Fram seldist á eina milljón króna. Alls söfnuðust tæplega þrjár milljónir sem renna óskipt til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkingsliðsins. 26. október 2026 11:30 „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ „Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar. 27. október 2026 07:03 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira
Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Ingvar Jónsson tók við Íslandsskildinum fyrir hönd Víkinga eftir lokaleik tímabilsins í kvöld. 24. október 2026 18:49
Treyja Gylfa fór á milljón Góðgerðatreyja Víkings og 66° Norður sem Gylfi Þór Sigurðsson klæddist í lokaleik tímabilsins í 2-2 jafntefli við Fram seldist á eina milljón króna. Alls söfnuðust tæplega þrjár milljónir sem renna óskipt til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkingsliðsins. 26. október 2026 11:30
„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ „Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar. 27. október 2026 07:03