Agla María með þrennu í stórsigri Stjörnunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2017 14:02 Agla María átti frábæran leik. vísir/ernir
Agla María Albertsdóttir, yngsti leikmaðurinn í íslenska EM-hópnum, skoraði þrennu þegar Stjarnan rúllaði yfir KR, 1-5, í fyrsta leik 11. umferðar Pepsi-deildar kvenna í dag. Stjarnan hefur unnið síðustu þrjá leiki sína með markatölunni 11-1 og er komin upp í 2. sæti deildarinnar. Stjarnan er þremur stigum á eftir toppliði Þórs/KA. KR hefur aftur á móti tapað þremur leikjum í röð með markatölunni 1-12. KR-ingar eru í 8. sæti deildarinnar með sex stig, tveimur stigum frá fallsæti. KR komst yfir á 31. mínútu þegar Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði með skoti yfir illa staðsettan markvörð Stjörnunnar, Gemmu Fay. Aðeins mínútu síðar jafnaði Stjarnan metin í 1-1 með sjálfsmarki og þannig var staðan í hálfleik. Agla María kom Stjörnunni yfir á 54. mínútu og átta mínútum síðar lagði hún upp mark fyrir Katrínu sem skoraði sitt tíunda mark í sumar. Agla María skoraði sitt annað mark á 82. mínútu og hún fullkomnaði svo þrennuna tveimur mínútum síðar. Frábær leikur hjá Öglu Maríu sem skoraði þrennu og gaf tvær stoðsendingar. Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir EM í Hollandi. Stjarnan á þrjá fulltrúa í EM-hópnum en KR einn. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira