Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:
1. sæti
2. sæti - (5. september)
3. sæti - ÍBV
4. sæti - Haukar
5. sæti - Selfoss
6. sæti - Afturelding
7. sæti - Stjarnan
8. sæti - ÍR
9. sæti - KA
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir
Íþróttadeild spáir því að ÍBV endi í þriðja sæti deildarinnar, tveimur sætum ofar en í fyrra.
Tímabilið 2017-18 var draumi líkast hjá Eyjamönnum enda unnu þeir þrefalt. Arnar Pétursson hætti á toppnum og við tók Erlingur Richardsson. Síðasta tímabil var erfitt framan af en ÍBV kom á mikilli siglingu inn í úrslitakeppnina. Þar sló liðið FH örugglega út en féll svo út fyrir Haukum eftir oddaleik.
ÍBV mætir með nánast sama lið til leiks og á síðasta tímabili. Eyjamenn ættu því að vera klárir í slaginn frá fyrsta leik og handbragð Erlings að vera komið á liðið.
Stærsta viðbótin við leikmannahóp ÍBV er bosníski landsliðsmarkvörðurinn Petar Jokanovic. Ef hann stendur sig í stykkinu eru Eyjamenn líklegir til afreka.
Komnir/Farnir:
Komnir:
Petar Jokanovic, Red Boys Differdange
Örn Bjarni Halldórsson, Lemvig
Magnús Karl Magnússon, Víkingur R.
Farnir:
Daníel Örn Griffin í KA

Sóknarleikur ÍBV 2018/19 í tölum HBStatz:
Mörk skoruð í leik - 2. sæti (28,5)
Skotnýting - 2. sæti (60,8%)
Vítanýting - 5. sæti (74,5%)
Hraðaupphlaupsmörk - 2. sæti (76)
Stoðsendingar í leik - 2. sæti (11,7)
Tapaðir boltar í leik - 10. sæti (9,4)
Vörn og markvarsla ÍBV 2018/19 í tölum HBStatz:
Mörk fengin á sig í leik - 12. sæti (28,4)
Hlutfallsmarkvarsla - 11. sæti (28,2%)
Varin víti - 8. sæti (12)
Stolnir boltar - 3. sæti (89)
Varin skot í vörn - 1. sæti (85)
Lögleg stopp í leik - 3. sæti (20,3)

Markvörður - Petar Jokanovic - 29 ára
Vinstra horn - Hákon Daði Styrmisson - 22 ára
Vinstri skytta - Sigurbergur Sveinsson - 32 ára
Miðja - Fannar Þór Friðgeirsson - 32 ára
Hægri skytta - Kristján Örn Kristjánsson - 22 ára
Hægra horn - Theodór Sigurbjörnsson - 27 ára
Lína - Kári Kristján Kristjánsson - 35 ára
Varnarmaður - Róbert Sigurðarson - 24 ára

Arnór Viðarsson (f. 2002) lék afar vel með U-17 ára landsliðinu í sumar, bæði á Opna Evrópumótinu og Ólympíuleikum Evrópuæskunnar. Hann skoraði m.a. tíu mörk í fræknum sigri á Frökkum.
Arnór hefur leikið með ÍBV á undirbúningstímabilinu og gæti fengið tækifæri í vetur, sérstaklega ef Sigurbergur verður lengi frá.

Erlingur Richardsson er að hefja sitt annað tímabil við stjórnvölinn hjá ÍBV. Þetta er í þriðja sinn sem hann stýrir liðinu. Undir hans stjórn komust Eyjamenn í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn 2005 þar sem þeir töpuðu fyrir Haukum. Erlingur þjálfaði um tíma hjá HK, bæði karla- og kvennalið félagsins. Karlalið HK varð Íslandsmeistari undir stjórn Erlings og Kristins Guðmundssonar 2012. Kristinn er aðstoðarmaður Erlings hjá ÍBV líkt og í fyrra.
Erlingur þjálfaði einnig West Wien í Austurríki og Füchse Berlin í Þýskalandi. Hann gerði Berlínarrefina að heimsmeisturum félagsliða. Auk þess að vera þjálfari ÍBV er Erlingur þjálfari hollenska karlalandsliðsins. Hann kom Hollandi í fyrsta sinn á EM og hann verður því upptekinn við að stýra liðinu á Evrópumótinu í janúar.
„Það er sami leikmannahópur og í fyrra en Eyjamenn voru gríðarlega sterkir í seinni hlutanum á mótinu í fyrra. Ég reikna með þeim mjög sterkum og ég held að stemmningin sé líka í Eyjum núna,“ sagði Guðlaugur Arnarsson.
„Menn eru búnir að gleyma stóra árinu þegar þeir unnu allt saman og núna vilja þeir fara að vinna í rólegheitunum. Ég reikna með því að það muni góðir hluti gerast strax hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.

... varð Íslandsmeistari: 1 ár (2018)
... varð deildarmeistari: 1 ár (2018)
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 1 ár (2018)
... varð bikarmeistari: 1 ár (2018)
... komst í bikarúrslit: 1 ár (2018)
... komst ekki í úrslitakeppni: 6 ár (2013)
... komst í undanúrslit: 0 ár (2019)
... komst í lokaúrslit: 1 ár (2018)
... féll úr deildinni: 11 ár (2008)
... kom upp í deildina: 6 ár (2013)
Gengi ÍBV í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 4. sæti í deildinni
2017-18 Deildarmeistari
2016-17 2. sæti í deildinni
2015-16 4. sæti í deildinni
2014-15 7. sæti í deildinni
2013-14 2. sæti í deildinni
2012-13 B-deild (1. sæti)
2011-12 B-deild (5. sæti)
Gengi ÍBV í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 Undanúrslit
2017-18 Íslandsmeistari
2016-17 Átta liða úrslit
2015-16 Undanúrslit
2014-15 Átta liða úrslit
2013-14 Íslandsmeistari
2012-13 B-deild
2011-12 B-deild

Eins og áður sagði hafa litlar breytingar orðið á liði ÍBV milli ára. Óvissan er því ekki jafn mikil og fyrir síðasta tímabil þar sem Eyjamenn voru með nýjan þjálfara og tvo nýja leikmenn (Fannar Þór Friðgeirsson og Kristján Örn Kristjánsson) í burðarhlutverkum.
Sóknin gekk smurt hjá Eyjamönnum á síðasta tímabili. Þeir skoruðu næstflest mörk og voru með næstbestu skotnýtinguna. Vörnin var hins vegar vandamál en ekkert lið fékk fleiri mörk á sig í Olís-deildinni. Eyjamenn þurfa að stoppa í götin í varnarleiknum.
Eyjamenn eru vel settir með horna- og línumenn en breiddin fyrir utan er ekki mikil. Sigurbergur Sveinsson hefur verið mikið meiddur og óvíst hversu mikið hann getur verið með. Það munar mikið um Sigurberg enda einn besti sóknarmaður deildarinnar.
Ef vörnin smellur saman, Jokanovic reynist góður liðsstyrkur og Sigurbergur getur beitt sér er ÍBV með lið sem getur unnið titla. Leikmannahópurinn er reyndur, búið að byggja upp sigurhefð í Eyjum og þjálfarinn er afar fær.