Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2026 13:04 Sérsveitin hefur sett sterkan svip á stórmót síðustu ára. vísir / vilhelm Sérsveitin, stuðningsmannasveit Íslands í handbolta, hefur neyðst til að hætta við að mæta á HM karla í janúar. Kostnaði og miðamálum er um að kenna.
Sérsveitin hefur sett afar sterkan svip á stórmót síðustu ára og hjálpað til við að skapa magnaða stemningu hjá þúsundum Íslendinga á mótunum. Hún verður á svæðinu þegar stelpurnar okkar spila á EM í Rúmeníu í byrjun desember en mun ekki mæta á HM karla í Þýskalandi í janúar. „Bæði er erfitt að fá miða á alla leikina og svo er þetta dýrt. Síðasta mót stóð rosalega lengi yfir svo það kostaði ansi mikið,“ segir Sonja Steinarsdóttir, sérsveitarmeðlimur, sem fylgt hefur strákunum okkar á svo til öll mót frá og með HM 2019. Karlalandsliðið komst alla leið í úrslitahelgina á EM í byrjun þessa árs, spilaði bæði í Svíþjóð og Danmörku, og endaði í 4. sæti. „Við höfum fengið hjálparhönd héðan og þaðan úr samfélaginu, frá fyrirtækjum og handknattleikssambandinu, en það er bara minna af því í boði núna. Það eru allir að halda að sér höndum,“ segir Sonja um ástæður þess að Sérsveitin missir af HM í janúar. Eins og fyrr segir verður Sérsveitin þó á staðnum á EM kvenna í byrjun desember og segir Sonja að ellefu meðlimir muni ferðast til Rúmeníu. „Það er töluvert dýrara að fara á karlamótin en kvennamótin. Miðaverðið er dýrara hjá körlunum og svo eru stelpurnar í ódýru landi núna,“ segir Sonja. En hvernig er að hugsa til þess að þurfa að láta sér nægja að fylgjast með í sjónvarpinu í janúar? „Það verður mjög erfitt að vera bara heima. Við erum mörg í Sérsveitinni sem höfum verið á nær öllum mótum frá og með HM 2019 þannig að þetta verður vissulega mjög sérstakt. Við höfum haldið fyrirpartý og komið stuðningsmönnum saman fyrir leiki, kynnst fullt af fólki og þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Við elskum öll handbolta og það er ótrúlega gaman að styðja landsliðin okkar en því miður verðum við ekki á þessu móti. Þetta er svo mikið tilhlökkunarefni í janúar, þegar það er ekkert að gerast. Janúar hefur alltaf verið gleðisprengja og maður verður núna að búa hana til á annan hátt heima. Það er alltaf gaman að horfa á handbolta, hvort sem maður er á staðnum eða ekki.“
HM karla í handbolta 2027 EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira