Fréttir
125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 334 ›
Ólafur Ragnar skákar Vigdísi og Guðna Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er efstur á tekjulista forseta, alþingismanna og ráðherra með 4,3 milljónir króna á mánuði. Guðni Th. Jóhannesson, einnig fyrrverandi forseti, er með 3,4 milljónir á mánuði og Vigdís Finnbogadóttir með 3 milljónir á mánuði. Innlent 20.8.2024 16:27
Geirsgata opnuð í báðar áttir á morgun Opnað verður fyrir umferð um Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur í báðar áttir á nýjan leik á morgun. Lokað hefur verið fyrir akstur í aðra átt í einu síðan á fimmtudag í síðustu viku. Innlent 20.8.2024 16:08
Nýtir gervigreind í stað sérfræðinga Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hyggst nýta gervigreind til að finna dæmi um svokallaða gullhúðun í íslenskri löggjöf. Þar er átt við tilfelli þar sem stjórnvöld hafa gengið lengra en krafist er í tilskipunum sem innleiddar eru á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Innlent 20.8.2024 15:56
Lést af völdum voðaskots á gæsaveiðum Karlmaðurinn sem lést í alvarlegu slysi nærri Hálslóni miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunar norðan Vatnajökuls í morgun var íslenskur karlmaður á fertugsaldri. Hann var ásamt fleirum á gæsaveiðum og lést af völdum voðaskots. Innlent 20.8.2024 15:21
Hnífi beitt í árás í Skeifunni Tveir voru í dag handteknir grunaðir um að hafa sært annan mann með hnífi á bílastæði í Skeifunni. Maðurinn er ekki með lífshættulega áverka en var fluttur á slysadeild. Innlent 20.8.2024 15:17
Hellisheiði lokuð að hluta á fimmtudag til föstudags Hellisheiði verður lokuð til austurs við Þrengslavegamót frá því klukkan níu um morgun á fimmtudag til klukkan sjö föstudagsmorgun vegna malbikunarframkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 20.8.2024 14:57
Segja snekkjuna hafa sokkið á örfáum mínútum Læknir sem tók á móti eftirlifendum af lystisnekkjunni sem sökk við Sikiley í gær segir þá hafa lýst því að snekkjunni hafi hvolft og hún sokkið á örfáum mínútum. Talið er að lík sex manna sem enn er saknað séu föst inni í snekkjunni á hafsbotni. Erlent 20.8.2024 14:06
Skemmdi rúður í lögreglubílum dag eftir dag Kona hefur verið dæmd fyrir héraðsdómi í skilorðsbundið 14 mánaða fangelsi fyrir eignaspjöll. Fólust þau í því að brjóta ítrekað rúður lögreglubíla með neyðarhamri í sumar. Konan hótaði einnig lögreglumanni með skilaboðum á rúðuþurrku. Innlent 20.8.2024 13:51
Telja apabóluna ekki „nýja COVID“ Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir að mpox-veiran, sem áður var þekkt sem apabóla, sé ekki „nýtt COVID“. Heilbrigðisyfirvöld viti hvernig eigi að hefta útbreiðslu veirunnar sem hefur skotið upp kollinum víða um lönd undanfarið. Erlent 20.8.2024 13:22
Samgöngusáttmálinn taki á mikilli innviðaskuld við höfuðborgarsvæðið Uppfærður samgöngusáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið verður kynntur opinberlega á morgun. Innviðaráðherra segir algera samstöðu ríkja um sáttmálann innan ríkisstjórnarinnar og kannast ekki við að kostnaður við hann hafi tvöfaldast, eins og sumir hafi fullyrt en umfang sáttmálans hafi aukist. Innlent 20.8.2024 13:18
Helgi Magnús situr heima meðan Guðrún leitar sér ráðgjafar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra getur ekki sagt til um hvenær mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara verður afgreitt innan ráðuneytisins. Á meðan situr Helgi Magnús heima. Innlent 20.8.2024 12:59
Framhaldsskólanemar fagna gjaldfrjálsum námsgögnum Forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema fagnar fyrirætlunum barna- og menntamálaráðherra um að gera námsgögn gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema sem eru undir átján ára. Hún hefur ekki áhyggjur af því að nemendur fari illa með námsgögnin verði þau gjaldfrjáls en það sé mikilvægt að skólayfirvöld séu skýr með það sem þau ætlist til af nemendum. Innlent 20.8.2024 12:27
Lögregla leitar manna vegna ráns í Skeifunni Lögregla leitar nú manna vegna ráns í Skeifunni í morgun. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar vegna ránsins. Innlent 20.8.2024 12:14
Áfengisdrykkja ekki áberandi vandamál á Alþingi Forsætisráðherra og fjármálaráðherra telja áfengisdrykkju ekki vera vandamál á Alþingi. Ólíklegt sé að fólk geti komist upp með það á átta flokka Alþingi sem sé ávallt í beinni útsendingu að fara drukkið í ræðupúlt Alþingis. Innlent 20.8.2024 12:01
Lést í slysi við Hálslón Einn lést í alvarlegu slysi við Hálslón norðan Vatnajökuls. Lögreglu barst tilkynning um slysið laust fyrir klukkan átta í morgun. Innlent 20.8.2024 12:01
Unnið í alla nótt og allt samkvæmt áætlun Framkvæmdir við hitaveitutengingu, sem haft hafa í för með sér umfangsmestu heitavatnslokun sögunnar, eru á áætlun og miðar vel, að sögn forstöðumanns hjá Veitum. Óvenjumikið hefur verið að gera í sundlaugum utan lokunarsvæðisins í morgun. Innlent 20.8.2024 11:59
Ekki ráðlegt að drekka orku eða neyta einnar fæðutegundar Ný norræn næringarviðmið voru gefin út nýlega. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti Landlæknis og næringarfræðingur, segir ekki miklar breytingar frá fyrri ráðleggingum. Það séu hærri viðmið um D-vítamín á Íslandi og að í nýjum ráðleggingum sé lögð meiri áhersla á að borða meira úr jurtaríkinu og minna rautt kjöt til að minnka kolefnisspor mataræðis. Jóhanna ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 20.8.2024 11:47
Samgöngusáttmáli, Menningarnótt og ókeypis skólabækur Í hádegisfréttum verður rætt við innviðaráðherra um uppfærðan samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið sem ræddur var í ríkisstjórninni í morgun. Innlent 20.8.2024 11:32
Máli séra Gunnars lokið með starfslokagreiðslu Séra Gunnar Sigurjónsson fyrrverandi prestur í Digraneskirkju hefur gert starfsflokasamkomulag við Þjóðkirkjuna. Lögmaður hans segir málið hafa verið blásið upp og áréttar að Gunnar hafi ekki gert neitt sem venjulegt fólk myndi telja til kynferðislegrar áreitni. Innlent 20.8.2024 11:22
Kostar í strætó yfir daginn en ókeypis heim um kvöldið Annað árið í röð munu farþegar Strætó greiða almennt fargjald á Menningarnótt á laugardaginn. Ferðum verður fjölgað hjá fjölda leiða yfir daginn. Innlent 20.8.2024 11:06
Kynntu dagskrá Menningarnætur Boðað hefur verið til blaðamannafundar um fyrirkomulag Menningarnætur sem fram fer á laugardag. Fundurinn hefst klukkan 11:30 í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Innlent 20.8.2024 10:55
Höfðu hendur í hári barnsmorðingjans Spænska lögreglan handtók ungan mann sem er grunaður um að stinga ellefu ára gamlan dreng til bana á fótboltavelli í bænum Mocejón um helgina. Morðinginn flúði vettvang og upphófst mikil leit að honum. Erlent 20.8.2024 10:47
Netþrjótar þykjast vera frá Strætó Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað netverja við netsvindli þar sem óprúttnir aðilar þykjast vera frá Strætó og séu að gefa ókeypis kort í almenningssamgöngur. Fólk er hvatt til að vera á varðbergi gagnvart svindlinu og öðrum álíka. Innlent 20.8.2024 10:41
„Fullþaulsetnir“ á veitingastöðum á lokadegi þings Forseti Alþingis mun ítreka það við þingflokksformenn að menn gæti sín í sambandi við áfengisneyslu. Ákveðnir þingmenn hafi verið „fullþaulsetnir“ á veitingastöðum á lokadegi þingsins í júní. Innlent 20.8.2024 10:39
Enginn hvati fyrir fyrirtæki til að endurvinna Félag atvinnurekenda (FA) furðar sig á miklum hækkunum í gjaldskrá Sorpu fyrir móttöku á matvælum í umbúðum sem notuð eru til jarðgerðar. FA óskar eftir rökstuðningi fyrir hækkuninni sem nemur rúmlega 86 prósentum frá því á fyrri hluta síðasta árs. Innlent 20.8.2024 10:12
Staðfesta að Íranar brutust inn í tölvur framboðs Trump Bandaríska leyniþjónustan staðfestir að írönsk stjórnvöld hafi staðið á bak við gagnastuld frá forsetaframboði Donalds Trump. Hún telur Írani einnig hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi framboðs Kamölu Harris. Erlent 20.8.2024 10:07
Lögreglumenn vopnast rafbyssum í byrjun september Almenningur má eiga von á að sjá lögreglumenn vopnaða rafbyssum á næstunni en þær verða afhentar lögregluembættum á landinu í fyrstu viku september. Lögreglan segir um helming landsmanna hlynntan rafbyssuburði lögreglumanna. Innlent 20.8.2024 09:22
Fengu ábendingu um Guðlaug, Halldór og Svedda Tönn Lögreglu grunar að Guðlaugur Agnar Guðmundsson, Halldór Margeir Ólafsson og Sverrir Þór Gunnarsson séu lykilmenn í stóra kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Enginn þeirra hefur þó verið ákærður í málinu. Innlent 20.8.2024 09:00
Stjórnarformanns Morgan Stanley saknað eftir snekkjuslysið Leit að sex manns sem er enn saknað eftir að lystisnekkja sökk rétt utan við Sikiley í gær hélt áfram í morgun. Á meðal þeirra sem er saknað er stjórnarformaður fjármálarisans Morgan Stanley International og eiginkona hans. Erlent 20.8.2024 08:56
Herinn endurheimti lík sex gísla á Gasa í nótt Ísraelsher endurheimti lík sex gísla í aðgerðum á Gasa í nótt. Fimm gíslanna voru yfir 50 ára gamlir og þrír áttu ættingja sem var sleppt á meðan vopnahléi stóð í nóvember síðastliðnum. Erlent 20.8.2024 08:47