Fréttir

Hellisheiði opnuð á ný
Hellisheiði var lokað til austurs í dag á meðan brak var hreinsað í Kömbunum. Gera þurfti við víravegrið eftir óhapp. Umferð varr beint um Þrengslaveg á meðan.

Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku
Þrátíu og fjögurra ára gamall karlmaður sem grunaður er um morð hefur verið handtekinn í Bristol á Englandi. Líkamsleifar fundust í ferðatöskum á brúnni Clifton Suspension Bridge og í íbúð í Shepherd's Bush á miðvikudaginn.

Tók myndband af óveðrinu og þá féll grein beint fyrir framan hana
Gríðarlegt rok var á Þingeyri í gær. Mörg tré brotnuðu og nokkur féllu til jarðar með rótum. Íbúi sem ætlaði að festa óveðrið á filmu þurfti að koma sér inn eftir að stór grein féll beint fyrir framan hana.

Bæjarstjóri um Carbfix og vonskuveður um hásumar
Ekki kemur til greina að keyra í gegn verkefni sem tengist áformum Carbfix í Hafnarfirði í mikilli andstöðu við íbúa að sögn Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. Hún kveðst skilja áhyggjur íbúa og tekur undir að hluti borhola kæmu til með að liggja full nálægt byggð. Hún ítrekar einnig að engar skuldbindandi ákvarðanir hafi verið teknar um verkefnið.

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku
33 ára íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Danmörku fyrir líkamárás á unnustu sína.

Einn handtekinn í aðgerðum sérsveitar í Hrísey
Einn var handtekinn í Hrísey í aðgerðum lögreglunnar á Norðurlandi-Eystra síðdegis á fimmtudaginn. Lögregla naut aðstoðar sérsveitarmanna ríkislögreglustjóra sem hafa aðsetur á Akureyri í verkefninu. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi-Eystra í samtali við fréttastofu.

„Mér fannst alltaf eins og ég væri að fara að deyja“
„Áður en ég veiktist þá tók ég heilsunni sem sjálfsögðum hlut. Það er ekki fyrr en heilsan er tekin frá þér að þú gerir þér almennilega grein fyrir því líkaminn er ótrúlegur og hvað líkaminn vinnur magnað starf fyrir þig á hverjum degi,“ segir hin 24 ára gamla Lilja Ingólfsdóttir sem búsett er í San Diego í Kaliforníu ásamt fjölskyldu sinni.

Líkur á aurskriðum og grjóthruni á Vesturlandi
Líkur eru á aurskriðum og grjóthruni á Vesturlandi vegna mikillar rigningar. Það verður til þess að aðstæður fyrir ferðamenn og útivistarfólk eru varasamar.

Felldi tár þegar málinu var vísað frá
Máli á hendur bandaríska leikaranum Alec Baldwin, þar sem hann var sakaður um manndráp af gáleysi, hefur verið vísað frá dómi. Réttarhöld í málinu hófust í vikunni en lauk í gærkvöldi þegar dómari komst að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið og lögreglan hefðu haldið aftur af sönnunargögnum.

Kafað ofan í litleysi íslenska bílaflotans
Áttatíu prósent nýskráðra bíla á Íslandi eru gráir, hvítir eða svartir. Bílasali segir greinilegt að Íslendingar telji litríka bíla óheppilega til endursölu. Þá geti djarfari litir kostað kaupendur milljónir aukalega.

Slagsmál reyndust hnefaleikaæfingar að nóttu
Lögreglunni var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi rétt eftir miðnætti í nótt. Sá sem tilkynnti sagði að menn væru berir að ofan með boxhanska. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að þrír menn væru að æfa sig í hnefaleikum.

Siggi stormur biðst afsökunar á sumarspánni sem ekki rættist
„Þegar ég sá í hvað stefndi, þá yfirgaf ég landið,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, í samtali við fréttastofu. Hann var brattur í vor og spáði blíðvirði um allt land í sumar. Sú spá hefur ekki ræst.

„Biden á langa sögu af mismælum“
Joe Biden forseti Bandaríkjanna sýndi að hann hefur góða þekkingu og innsýn í utanríkis- og varnarmál á blaðamannafundinum sem hann hélt í gær. Þetta er mat Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa og áhugamanns um bandarísk stjórnmál, sem var álitsgjafi í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ætli Biden sér að vinna kosningarnar þurfi hann hins vegar að standa sig vel í öðrum málum. Hann segir Biden eiga langa sögu af mismælum, en nú sé auðvelt fyrir andstæðinga að nota mismælin gegn honum.

Óttast að olíufélögin hækki álagningu
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að sterkt aðhald þurfi gagnvart því að tryggja að álagning á eldsneyti hækki ekki þegar bensín- og díselgjöld verða afnumin á næsta ári. Til stendur að leggja kílómetragjald á bensín- og díselbíla á næsta ári, en fella brott bensín- og olíugjöld sem greidd eru við kaup á jarðefnaeldsneyti. Í frumvarpsdrögunum stendur einnig til að hækka kolefnisgjaldið sem leggst á bensín- og díselbíla.

Höfnin muni loka á útsýnið og valda hljóðmengun
Íbúi í Hvaleyrarholti fordæmir áform Hafnarfjarðarbæjar og Carbfix um að reisa stærðarinnar höfn í Straumsvík. Hún segir þetta vera eins og að fá höfn í bakgarðinn og segir viðbrögð bæjarstjórnar gera lítið úr bæjarbúum.

Fóstruðu þrastarunga í 15 daga í Hafnarfirði
Þeir háma í sig tugi ánamaðka á dag þrastarungarnir, sem hafa verið í fóstri á heimili í Hafnarfirði síðustu daga eftir að mamma þeirra yfirgaf þá.

Vona að gervigreindin komi að gagni við að finna mögulega lækningu
Barátta Íslendinga fyrir fólk með mænuskaða hefur skilað árangri á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal að sögn formanns Mænuskaðastofnunar Íslands, sem vonast til þess að gervigreind nýtist í leit að lækningu við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, sem er bæði stofnandi og stjórnarformaður stofnunarinnar, hefur verið iðin við að senda bréf víða um heim, og hefur meðal annars fengið svar frá varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hvatti hana til dáða.

Tvö hjólhýsi fokin af veginum á Norðurlandi vestra
Ekkert hjólhýsaveður er á Norðurlandi vestra þessa dagana. Eitt hjólhýsi fauk af veginum þar í dag og annað í gær. Lögreglan á svæðinu hefur beðið ökumenn með vagna í eftirdragi að leita í var.

Íslensk stökkbreyting þrefaldar áhættu á skjaldkirtilssjúkdómi
Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra hafa fundið erfðabreytileika í LAG-3 geninu sem meira en þrefaldar áhættuna á því að fá sjálfsónæmissjúkdóm í skjaldkirtil. Tveir erfðabreytileikar fundust sem auka áhættuna mest, og finnast þeir bara á Íslandi og í Finnlandi.

Pínleg mistök Biden og móðurlausir þrastarungar í fóstri
Þeim þingmönnum Demókrataflokksins fjölgar sem kalla eftir því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stígi til hliðar í forsetakosningum. Hann segist ekki ætla fet þrátt fyrir pínleg mistök á blaðamannafundi í gær og slæma frammistöðu í kappræðum.

Áminntur fyrir að hóta að afhjúpa meintan fíknivanda
Lögmaður hefur verið áminntur og látinn greiða 150 þúsund króna sekt fyrir að hafa hótað að afhjúpa fíknivanda barnsmóður umbjóðanda síns.

Laxinn bókstaflega gusast upp í Elliðaárnar
Svavar Hávarðsson blaðamaður og kunnur veiðimaður var að fylgjast með löxum sem ganga upp Elliðaárnar og rak upp stór augu.

Geta ekki sagt hvort Óskari hafi verið boðið starfið eða ekki
Hafnarfjarðarbær segist ekki geta tjáð sig um mál einstaka starfsmanna, og því ekki geta staðfest eða hafnað því að Óskari Steini Ómarssyni hafi verið boðið starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum. Sjálfur segir Óskar að svo hafi verið, en ráðningin dregið til baka. Hann telur að pólitísk afskipti hafi spilað inn í.

Ferjubilun sé hvítþvottur hjá Hrísey Seafood
Forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni hafnar því algjörlega að samgöngur séu í lamasessi til og frá Hrísey. Verkefnastjóri Hríseyjar Seafood taldi lokun Matvælastofnunnar eiga rót sína að rekja til lélegra ferjusamgangna.

Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga
Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga. Áætlað er að í þessu nýja borgarhverfi rísi allt að átta þúsund íbúðir og að þar geti búið allt að tuttugu þúsund borgarbúar.

Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang
Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum.

„Mjög mikil úrkoma“ veldur skriðuhættu
Gert er ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi um helgina. Veðurstofan varar við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum svæðum.

Stappað á tjaldsvæðum og vörur hverfa úr hillum
Mikið blíðviðri er á Austurlandi í dag en snemma í morgun mældist hitastig á þó nokkrum stöðum um 20 gráður. Tjaldsvæði fyrir austan hafa verið fljót að fyllast en að sögn staðarhaldara komast færri að en vilja. Svo virðist sem fólk streymi hreinlega austur frá öllum landshlutum.

Freista þess að spá um sólstorma með loftbelgnum yfir Íslandi
Loftbelgurinn sem sást á sveimi yfir Austurlandi í gær er á vegum samstarfsverkefnis bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og hinnar þýsku Max Planck-stofnunar. Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er iðulega kallaður, segir belginn vera tilraun til að skilja betur hvernig sólin okkar virkar og hvernig hægt sé að spá fyrir um svokallaða sólstorma. Eitthvað sem gæti verið gífurlega dýrmætt.

Þrefalt hærri vextir geri samkeppnina erfiða
Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir að háir vextir Seðlabanka Íslands fæli ferðamenn frá landinu. Að minnsta kosti 10 prósent samdráttur er hjá bílaleigunni í sumar miðað við sama tíma í fyrra.