Erlent
212 213 214 215 216 217 218 219 220 … 334 ›
Kaka á andlit konungs, götulokanir og eignaspjöll Samtökin Just Stop Oil hafa nú mótmælt 26 daga í röð framleiðslu ríkja á jarðefnaeldsneyti. Meðlimir samtakanna hafa gert ýmislegt til að vekja athygli fólks á málstað sínum. Erlent 26.10.2022 23:25
Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins. Erlent 26.10.2022 20:45
Pýtonslanga gleypti konu í Indónesíu Pýtonslanga gleypti konu á sextugsaldri á eyjunni Súmötru í Indónesíu á sunnudagskvöld. Atvikið átti sér stað á plantekru þar sem konan starfaði. Erlent 26.10.2022 20:44
Nunnur og prestar horfi á klám, sem þó sé verkfæri djöfulsins Frans páfi, æðsti maður innan kaþólsku kirkjunnar, hefur varað við því að prestar og nunnur horfi á klám á netinu. Hann segir klám vera til þess fallið að veikja prestshjartað, auk þess sem það sé verkfæri djöfulsins. Erlent 26.10.2022 19:23
Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns. Erlent 26.10.2022 17:47
Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. Erlent 26.10.2022 16:02
Skutu á mótmælendur við leiði Amini Vitni segja öryggissveitir í Íran hafa skotið á syrgjendur sem komið höfðu saman við gröf Masha Jina Amini í dag. Þar hafði fólk komið saman vegna þess að fjörutíu dagar eru liðnir síðan hún dó í haldi lögreglunnar. Erlent 26.10.2022 15:16
Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021. Erlent 26.10.2022 15:01
Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum Merkjanleg sveifla í átt að Repúblikanaflokknum er í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram eftir tvær vikur. Demókratar óttast nú að tapa yfirráðum í báðum deildum þingsins. Erlent 26.10.2022 14:06
Skaut tvo til bana en var með sex hundruð skot: „Þetta hefði getað farið mun verr“ Ungur maður sem skaut kennara og fimmtán ára stúlku til bana í St. Luis í Bandaríkjunum í vikunni var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og var með sex hundruð skot. Sjö nemendur særðust eða slösuðust einnig í árásinni áður en lögregluþjónar skutu hinn nítján ára gamla Orlando Harris til bana. Erlent 26.10.2022 12:09
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07
Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar. Erlent 26.10.2022 09:10
Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Erlent 26.10.2022 08:42
Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu. Erlent 26.10.2022 08:37
Heita fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea hefur kjarnorkuvopnatilraunir á ný Fulltrúar Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu hafa varað við fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea framkvæmir sjöundu tilraun sína með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld Vestanhafs og bandamenn þeirra grunar að kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu séu að hefjast á ný. Erlent 26.10.2022 08:10
Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi. Erlent 26.10.2022 08:02
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. Erlent 25.10.2022 23:28
Happdrætti fyrir þá sem lenda í miðjusætinu Farþegar ástralska flugfélagsins Virgin Australia sem lenda í því að þurfa að sitja í miðjusætinu í flugferðum félagsins verða skráðir í happdrætti. Þyrlu-pöbbarölt og fríar flugferðir eru meðal vinninga. Erlent 25.10.2022 22:41
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. Erlent 25.10.2022 22:14
Lést nokkrum mánuðum eftir fyrsta baðið í sextíu ár Amou Haji, oftast þekktur sem skítugasti maður heims, er látinn, 94 ára að aldri. Skömmu fyrir andlátið hafði Haji þvegið sér í fyrsta sinn í yfir sextíu ár. Hann lést í heimaþorpi sínu Dejgah í vesturhluta Íran. Erlent 25.10.2022 21:33
Sunak segir heilindi og fagmennsku verða hans leiðarljós Nýr forsætisráðherra Bretlands segist þegar ætla að hefjast handa við að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið í hagstjórninni undir stjórn fyrrverandi forsætisráðherra. Stjórn hans muni hafa heilindi, fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi. Erlent 25.10.2022 19:30
Kallaði nýja forsætisráðherrann Rashee Sanook Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, var ekki með nafn Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, á hreinu þegar hann óskaði honum til hamingju með nýja starfið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem seinheppni forsetans þegar kemur að orðavali vekur athygli. Erlent 25.10.2022 18:21
Rottur þjálfaðar til þess að bjarga fólki eftir jarðskjálfta Verið er að þjálfa rottur til þess að finna fólk sem festist í rústum eftir jarðskjálfta. Rotturnar eru þá látnar bera lítinn bakpoka sem dugi meðal annars sem einskonar staðsetningartæki. Erlent 25.10.2022 18:01
Ashton Carter er látinn Ashton Carter, einn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í forsetatíð Barack Obama, er látinn, 68 ára að aldri. Carter skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Erlent 25.10.2022 17:30
Aftur ráðherra sex dögum eftir afsögn fyrir siðabrot Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði Suellu Braverman innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni, aðeins sex dögum eftir að hún sagði af sér ráðherraembætti fyrir að brjóta siðareglur ráðherra. Jeremy Hunt heldur áfram sem fjármálaráðherra. Erlent 25.10.2022 17:01
Fjarlægði sig fasisma í fyrstu ræðu sinni Giorgia Meloni, nýr forsætisráðherra Ítalíu, neitaði því að hún bæri hlýhug til fasisma eða annarrar andlýðræðislegrar hugmyndafræði í fyrstu stefnuræðu sinni í ítalska þinginu í dag. Hét hún því að halda áfram stuðningi við Úkraínu og að setja Evrópusamstarf ekki í uppnám. Erlent 25.10.2022 15:39
Telja sig hafa gripið rússneskan njósnara í Tromsö Norska öryggislögreglan hefur handtekið mann sem lögreglu grunar að hafi dvalið í Noregi í um eitt ár sem rússneskur njósnari undir fölsku flaggi sem brasilískur vísindamaður. Lögregla vill að honum verði vísað úr landi. Erlent 25.10.2022 14:44