Innlent
144 145 146 147 148 149 150 151 152 … 334 ›
Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. Innlent 23.6.2024 16:00
Neyddust til að aflýsa flugferðum vegna rafmagnsleysis Öllum flugferðum til og frá tveimur stærstu flugstöðvunum á flugvellinum í Manchester-borg í Englandi var aflýst í dag vegna rafmagnsleysis í byggingu flugvallarins. Icelandair neyddist til að aflýsa flugferðum sínum til og frá Manchester í dag. Innlent 23.6.2024 15:10
Fara enn huldu höfði þrátt fyrir fjölda vísbendinga Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði í gær og höfðu þaðan með sér öryggiskassa fara enn huldu höfði. Lögreglunni á Suðurlandi hefur borist þó nokkrar vísbendingar síðan að eigandi Brunnhóls birti myndskeið af mönnunum að fara ránshendi um gistihúsið. Innlent 23.6.2024 14:34
Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið „Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“ Innlent 23.6.2024 14:30
„Konur eru ekkert að leika sér að því að láta taka af sér brjóstin“ Formaður Brakkasamtakanna, Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, telur ótækt að Sjúkratryggingar Íslands semji ekki við fyrirtækið Intuens ehf. um segulómtækismyndatöku. Fyrirtækið sé það eina á landinu sem eigi brjóstaspólur fyrir myndatöku, utan Landspítalans. Konur sem séu með BRCA genið fái aðeins þjónustu á Landspítalanum og að hún sé of óáreiðanleg. Innlent 23.6.2024 13:16
Rektor HR segir mikilvægt að verja valfrelsi nemenda Alls útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík í gær með alls 701 prófgráðu. Í ræðu sinni ræddi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars þá ákvörðun HR fyrr á árinu að afnema ekki skólagjöld, í kjölfar tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um fulla fjármögnun ríkisins gegn afnámi skólagjalda. Innlent 23.6.2024 13:11
12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá. Innlent 23.6.2024 13:05
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. Innlent 23.6.2024 12:18
Fann í hjarta sér að baráttan væri fullreynd Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna til fjölda ára hefur yfirgefið flokkinn, vegna þess sem hún kallar svik flokksins við eigin stefnu. Hún segist hafa fundið að fullreynt væri að berjast fyrir hugsjón sinni innan flokksins. Þrátt fyrir úrsögn sína úr flokknum sé hún ekki hætt afskiptum af stjórnmálum. Innlent 23.6.2024 11:52
Beit stóran bita úr eyra eftir orðaskak á skemmtistað Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu eftir að hafa ráðist á annan mann inni á salerni á skemmtistað á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur. Átök mannanna hófust með orðaskaki þeirra á milli en endaði á því að einn maðurinn beit hluta úr eyra hins. Innlent 23.6.2024 11:49
Kanóna kveður Vinstri græn og mótmælt á Austurvelli Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna til fjölda ára hefur yfirgefið flokkinn, vegna þess sem hún kallar svik flokksins við eigin stefnu. Hún segist þrátt fyrir úrsögn sína úr flokknum ekki hætt stjórnmálaafskiptum. Innlent 23.6.2024 11:38
Veiðihundar í Laugardal grunaðir um að hafa banað ketti Dýraþjónusta Reykjavíkur er nú með til skoðunar mál þriggja veiðihunda, ungverskra viszla, í Laugardal í Reykjavík. Hundarnir eru grunaðir um að hafa drepið heimiliskött á fimmtudaginn síðasta. Sömu hundar eru grunaðir um að hafa drepið tvo ketti áður. Innlent 23.6.2024 11:28
Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. Innlent 23.6.2024 09:54
Húsnæðismarkaður, Evrópusamvinna og þingveturinn gerður upp Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka, ræðir um húsnæðismarkaðinn og afhjúpar vanáætlun á húsnæðisþörf til margra ára í framtíðinni. Innlent 23.6.2024 09:31
Brjóta rúður í Grafarvogi vegna Tiktok-æðis Unglingar í Grafarvogi hafa undanfarnar vikur gert Erlu Ríkharðsdóttur lífið leitt með því að berja og sparka aftur og aftur í útidyrahurð hennar og hlaupa burt. Í fyrrakvöld brutu unglingarnir rúðu í hamaganginum. Athæfið er í tísku á samfélagsmiðlinum Tiktok, þar sem unglingar um heim allan eru að taka upp myndbönd þar sem þeir sparka í hurðir og hlaupa burt. Innlent 23.6.2024 09:00
Sodastream-flaskan sem sprakk í frumeindir sínar Steinunn Ólafsdóttir framkvæmdastjóri vill vara fólk við Sodastream-tæki sem keypt var í Elko. Hún hefur staðið í bréfaskriftum við fyrirtækið sem segir engin tæki hættulaus. Mestar líkur séu á því að flaskan hafi verið sett skakkt í tækið, eitthvað sem Steinunn kannast ekkert við. Innlent 23.6.2024 08:49
Lengsti þingfundurinn fimmtán klukkustundir Þingi var frestað í nótt fram að hausti hafði þá verið að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að alls hafi þingfundir verið 131 og að þeir hafi samtals staðið í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var fjórar klukkustundir og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klukkustundir og 43 mínútur. Innlent 23.6.2024 08:06
Eyra bitið af manni í stórfelldri líkamsárás í nótt Tveir voru handteknir í gær eða nótt vegna stórfelldrar líkamsárásar þar sem eyra var bitið af manni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Ekki er tekið fram í tilkynningunni hvar eða hvenær árásin átti sér stað en málið er skráð hjá lögreglunni á Hverfisgötu. Innlent 23.6.2024 07:49
Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu. Innlent 23.6.2024 07:32
Lagði til breytingar á ræðuhöldum á sautjánda júní Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands lagði til að forsetinn héldi ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn í stað forsætisráðherra eins og tíðkast hefur. Þetta sagði hann þegar hann frestaði þingfundum 154. löggjafarþings á fyrsta tímanum í nótt. Fundum Alþingis verður fram haldið þann tíunda september. Innlent 23.6.2024 00:29
Gæsluvarðhald fram á föstudag vegna stunguárásarinnar Karlmaður um þrítugt sem grunaður er um alvarlega líkamsárás gegn tveimur í Kópavogi í gærkvöldi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudaginn 28. júní. Innlent 22.6.2024 22:05
Sá ekki fram á að geta lifað annað svona tímabil Ekkja tónlistarmannsins Rafns Jónssonar, sem lést úr MND-sjúkdómnum árið 2004, segir að lyfið Tofersen sé byltingin sem hún hafi beðið eftir í hátt í fjörutíu ár. Það var henni gríðarlegt áfall þegar stjúpdóttir hennar greindist með sama sjúkdóm fyrir þremur árum en Tofersen-lyfið hefur glætt með þeim von um bjartari framtíð. Innlent 22.6.2024 21:10
Húnabyggð og Skagabyggð sameinast Íbúar Húnabyggðar og Skagabyggðar samþykktu í dag að sameinast í eitt sveitarfélag í íbúakosningu sem lauk í kvöld. Niðurstöður kosninganna voru birtar á heimasíðum sveitarfélaganna fyrir stuttu. Sameiningin fer formlega fram fyrsta ágúst. Innlent 22.6.2024 20:37
Vann rúmar 55 milljónir í Lottó Einn ljónheppinn miðahafi vann rúmar 55 milljónir króna í Lottó í kvöld. Miðaeigandinn keypti miðann á lotto.is. Innlent 22.6.2024 20:13
Ríkisstjórnin hafi séð um það sjálf að stúta eigin málum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir stjórnarandstöðuna hafa fengið verulega samkeppni í stjórnarandstöðu frá þingliði ríkisstjórnarflokkanna. Hún segir ljóst að ríkisstjórnin hefði ekki getað klárað mörg mál án aðstoðar stjórnarandstöðunnar. Innlent 22.6.2024 19:44
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 22.6.2024 18:15
Þing- og goslok Þingheimur keppist nú við að klára þau mál sem sett hafa verið á dagskrá fyrir sumarþinghlé. Við verðum í beinni útsendingu frá Alþingi. Innlent 22.6.2024 18:00
„Þetta er ekki það sem ég kalla að vinna frítt“ „Þetta er ótrúleg fullyrðing. Það er svo margt í þessari stuttu færslu sem maður gæti gert athugasemdir við. Ég gæti í allan dag nefnt dæmi um það hvernig borgin hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni með því að hafa Dag í stóli borgarstjóra. Ég held að borgarbúar hefðu farið betur úr því að fá nýjan borgarstjóra og greiða biðlaun.“ Innlent 22.6.2024 16:18
Eldgosinu líklegast lokið Eldgosinu sem hófst 29. maí virðist vera lokið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands. Innlent 22.6.2024 15:18
Auka við listamannalaun í fyrsta sinn í fimmtán ár Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um listamannalaun sem fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og umtalsverða fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Fjöldi starfslauna hefur verið óbreyttur í fimmtán ár frá því að lögin tóku gildi árið 2009. Innlent 22.6.2024 14:43