„Skilningur opnar ekki höfnina“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 19:44 Íris og Ása Berglind ræddu málin í Sprengisandi. Samsett Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar og þingmaður Samfylkingarinnar tókust á um stöðu mála í samgöngum til Vestmannaeyja. Þingmaðurinn sagðist finna til með íbúunum og að ríkisstjórnin ynni að því að efla samgöngur en bæjarstjórinn segir fyrirhugaða samgönguáætlun algjöra hörmung. „
Það eru sextán ár síðan þessi höfn var byggð og þá var okkur lofað samgöngum til framtíðar og það var Alþingi sem tók ákvörðun um að þetta yrðu okkar samgöngur. Höfnin átti náttúrulega að virka en hún gerir það ekki og við teljum hana ekki tilbúna. Við teljum að það eigi eftir að klára hana,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, sem ræddi stöðu mála í Sprengisandi í morgun. Segja má að algjört ástand hafi skapast í Vestmannaeyjum eftir að dýpkun Landeyjahafnar var seinkað vegna bilana og veðurs auk þess sem önnur vélin í Herjólfi bilaði með þeim afleiðingum að það tók sex klukkustundir að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja. Stjórnvöld fjölguðu bæði flugferðum til Vestmannaeyja til að koma til móts við erfiða stöðu auk þess sem ferjan Baldur, sem alla jafna siglir um Breiðafjörð, fer nú til Vestmannaeyja. Það hafði hins vegar þær afleiðingar að tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða urðu strandglópar í Flatey. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd, var einnig til viðtals í Sprengisandi. Hún finnur mikið til með íbúunum og segist bíða spennt eftir niðurstöðum frá dönsku straumfræðistofnunni sem hefur rannsakað Landeyjahöfn og hyggst leggja til framtíðarlausn. „Ég skil Írisi þegar hún segir að höfnin er ekki tilbúin.“ Samgönguáætlunin algjör hörmung „Það er ekkert að segja annað en að það sýni okkur allir skilning, en skilningur opnar ekki höfnina. Skilningurinn verður að sýnast í því hvað er gert. Núna minnist Ása á að það séu að koma tillögur sem við erum mjög ánægð með,“ segir Íris. „Því nú er Ása Berglind framsögumaður samgönguáætlunar, það sem ég gagnrýndi fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar var að það vita allir að tillögurnar eru að koma en það er ekki króna áætluð í að framkvæma einhverjar aðgerðir sem byggja á þeim.“ Íris segir að bærinn hafi beðið í sextán ár en fjármagn slíkra aðgerða þurfi einfaldlega að tryggja í fjármálaáætlun stjórnvalda. Ása svarar með því að benda á að það sé þegar verið að vinna að því að setja meiri fjármuni í samgöngumál og muni nýtt innviðafélag sem verði stofnað algjörlega breyta leiknum. „Við munum auðvitað fylgja því vel á eftir þegar þessar niðurstöður koma að það verði fundið fjármagn til að fara í einhverjar þær leiðir en það er kannski svolítið erfið krafa að ætla að fara að fjármagna eitthvað sem ekki er vitað hvað verður,“ segir Ása. Íris gaf lítið fyrir útskýringar Ásu og bendti á að það liggi fyrir að danska straumfræðistofnunin muni skila einhverjum niðurstöðum í formi aðgerða sem þurfi að fjármagna. „Svo er þessi samgönguáætlun, hún er algjör hörmung fyrir okkur hérna í Vestmannaeyjum, algjör hörmung,“ segir hún og bætir við að vonandi hafi verið gerðar einhverjar breytingar vegna athugasemda bæjarins við áætlunina. „Við erum hérna með tæplega fimm þúsund manna samfélag sem að býr við rosalega flóknar samgöngur stóran hluta af árinu, sem eru mjög skertar. Það er ýmislegt sem er hægt að gera.“ Fordæmalaust ástand „Við erum að beita okkur mikið fyrir hönd Vestmannaeyinga til að bæta úr þessu samgöngumáli því þessi vandi er raunverulegur og þetta ástand sem hefur skapast núna er algjörlega fordæmalaust,“ segir Ása. „Við munum tala fyrir því að það verði betri flugsamgöngur.“ Fyrirgefðu, tala fyrir því? „Já, ég sit ekki við ríkisstjórnarborðið. Ég er þingmaður og beiti mér gagnvart mínum ráðherrum og í þingflokki og í nefnd og svoleiðis. Þannig að við erum auðvitað, eins og Íris er að segja, samgönguáætlun kom og eins og hún liggur fyrir núna er ákveðinn niðurskurður í almenningssamgöngum á landsbyggðinni og þar falla meðal annars skipaumferð undir það. Þetta er auðvitað ekki gott og við erum að vinna hörðum höndum að því að finna lausnir á þessu,“ svarar Ása. Íris bendir þá á að orð Ásu séu í „hrópandi ósamræmi“ við það sem hún sagði áður um að ríkisstjórnin væri að beita sér fyrir því að laga samgöngur. „En svo sker hún niður í almenningssamgöngum á landsbyggðinni og meðal annars ferjusamgöngum. Við höfum ekki veg, við getum ekki keyrt.“
Vestmannaeyjar Samgöngur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sprengisandur Bylgjan Herjólfur Landeyjahöfn Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira