Innlent

Augljóslega þurfi að aðstoða bændur
Matvælaráðherra segir augljóst að stjórnvöld þurfi að grípa inn í aðstæður bænda sem nú berjast margir í bökkum vegna kuldatíðar. Veita þurfi þeim stuðning með einhverjum hætti í gegnum bjargráðasjóð.

Umsóknum í HA fjölgaði um tuttugu prósent á tveimur árum
Umsóknum í Háskólann á Akureyri fjölgaði um tuttugu prósent frá árinu 2022 og sjö prósent frá síðasta ári. Þá var mikil fjölgun umsókna um nám við kennaradeild skólans.

Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði
Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn.

Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju
Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju.

Bjargráð fyrir bændur og ósáttir trillukarlar
Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann Bændasamtaka Íslands um það tjón sem bændur á Norður- og Austurlandi eru að verða fyrir í kuldatíðinni sem nú gengur yfir.

Hjúkrunarfræðingar fordæma aukið aðgengi að áfengi
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skorað á Alþingi og Ríkisstjórn að takmarka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýðheilsu þjóðarinnar.

Læknar sagðir útbýta vottorðum eins og sælgæti
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda tók upp þann þráð sem Kristján Berg Fiskikóngur hóf um brottrekna starfsmenn í viðtali í Bítinu. Helst var á honum að skilja að læknar séu ævintýralega glaðir að skrifa út vottorð.

Hafró ráðleggur eins prósents hækkun aflamarks þorsks
Hafrannsóknastofnun kynnti úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár í morgun. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna var lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu.

Hraungígur brast í morgun
Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með.

Erfitt fyrir konur að fara frá heimili í langan tíma fyrir fæðingu
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og Heiðdís Anna Marteinsdóttir, verðandi ljósmóðir, segja fæðingarþjónustu á landsbyggðinni ábótavant. Heiðdís og Unnur fóru yfir stöðuna í faginu í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Bein útsending: Hafró kynnir komandi fiskveiðiár
Hafrannsóknastofnun kynnir í dag úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár. Kynningin hefst klukkan níu og fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði.

Eldur í íbúð í Kóngsbakka
Eldur kom upp í íbúð í Kóngsbakka í Breiðholti fyrir skömmu. Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út.

Gular viðvaranir enn í kortunum
Meginþunginn af langvinnu norðanhreti er afstaðinn en þó eru enn gular viðvaranir í kortunum. Slyddu eða snjókomu er spáð á Norðurlandi í kvöld, líklega síðustu gusunni af kaldri úrkomu í bili.

Bjarni vill fjölga meðmælendum
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu.

Íbúar óttast nýtt hverfi og að ekki verði tekið tillit til þeirra
Hópur íbúa í Garðabæ skoðar nú að stofna hagsmunasamtök til að mótmæla fyrirhugaðri uppbyggingu í Arnarlandi í Garðabæ. Sigurður Hólmar Jóhannesson er hluti af þeim hópi. Hann mætti á fund bæjarstjórnar í dag, ásamt um þrettán öðrum, til að mótmæla samráðsleysi við íbúa. Hann segir íbúa ekki mótfallna uppbyggingu á svæðinu en þau telji að hún ætti að vera meira í takt við það sem fyrir er.

Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar
Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast.

Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál.

Grasið vel sprottið og heyskapur hafinn
Heyskapur hófst undir Eyjafjöllum í dag. Bændur á Þorvaldseyri segjast finna til með starfssystkinum sínum norðan heiða.

Stunda njósnir gegn íslenskum stjórnvöldum og fyrirtækjum
Staðfest dæmi eru um hópar netþrjóta sem ganga erinda erlendra ríkja á borð við Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu geri netárásir á Íslandi. Nokkur atvik hafa komið upp þar sem njósnað er um íslenska stjórnsýslu og fyrirtæki að sögn netöryggissérfræðings.

Tók fjóra daga að þíða skautasvellið
Í fyrsta sinn í sjö ár sést í steypuna undir ísnum í Skautahöllinni í Laugardal þar sem endurbætur standa nú yfir. Fjóra daga tók að þíða ísinn áður en hægt var rífa niður veggi.

Borgin undirbýr sölu Perlunnar, rafstöðvar og bílastæða
Söluferli á Perlunni, rafstöðvarhúsi í Elliðaárdal og bílastæðum undir Hörpu var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Lágmarksverð fyrir Perluna verður þrír og hálfur milljarður króna en væntanlegur kaupandi þarf að opna dyr sínar fyrir grunnskólanemum.

Netþrjótar sem herja á Ísland og heyskapur í viðvörunum
Staðfest dæmi eru um að hér á landi starfi hópar netþrjóta sem ganga erinda erlendra ríkja á borð við Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu. Nokkur atvik hafa komið upp þar sem njósnað er um íslenska stjórnsýslu og fyrirtæki að sögn netöryggissérfræðinga.

Slökktu eld á Austur-Indíafjelaginu
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út klukkan 17.23 í dag vegna bruna á veitingastaðnum Austur-Indíafjelaginu á Hverfisgötu 56 í miðbæ Reykjavíkur. Loka þurfti fyrir umferð á meðan slökkvilið vann á vettvangi. Stuttan tíma tók að slökkva eldinn sem kviknaði í skorsteini í húsinu.

Tungumálastuðningur lykillinn að bættri stöðu drengja í skólakerfinu
Fjölbreyttari áskoranir, stuðningur sem mætir kröfum drengja, skýr tilgangur og tungumálastuðningur eru lykilatriði að bættri stöðu drengja í skólakerfinu samkvæmt skýrslu á vegum tveggja ráðuneyta sem kynnt var á blaðamannafundi í dag.

Kjartan Bjarni enn metinn hæfastur
Kjartan Bjarni Björgvinsson, settur landsréttardómari, hefur verið metinn hæfastur þriggja umsækjenda um stöðu dómara við Landsrétt.

Fleiri karlar en konur sóttu um nám í HR
Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um nám í Háskólanum í Reykjavík en fyrir haustönn þessa árs. Heildarfjöldi umsókna, að meðtöldum óyfirförnum umsóknum erlendis frá, er tæplega 4400 en var um 4200 síðasta vor. Um 53 prósent umsækenda voru karlar.

Fjórhjólaslys við Sólheimajökul
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út klukkan 14:20 í dag vegna fjórhjólaslyss við Sólheimajökul. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi.

„Vonum að þetta skili jafn góðum árangri á Íslandi“
Lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi fá aðgengi að ríflega þriggja milljarða króna fjármögnun í gegnum fjárfestingaáætlun Evrópusambandsins. Forstjóri Byggðastofnunar segir nýtt samkomulag við Fjárfestingabanka Evrópu meðal annars nýtast til kynslóðaskipta í landbúnaði og atvinnureksturs kvenna.

Láninu varið í að tryggja örugga og heilsusamlega skóla
100 milljóna evra lán til Reykjavíkurborgar mun greiða götur borgarinnar þegar það kemur að umfangsmiklu viðhaldsátaki í skólahúsnæði borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Hafa ekki lokið afgreiðslu á kæru í þrjú ár
Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir vinnubrögð menningar- og viðskiptaráðuneytisins en kvartað hefur verið yfir miklum töfum á afgreiðslu mála hjá ráðuneytinu. Ráðuneytið braut gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga að mati umboðsmanns.