Innlent
91 92 93 94 95 96 97 98 99 … 334 ›
Skriður fallið við báða enda Strákaganga Óvissustig er enn í gildi á Norðurlandi eystra vegna hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna grjóthruns og hafa skriður fallið á veginn við báða enda Strákaganga. Innlent 24.8.2024 12:08
Litlar breytingar á eldgosinu, skriðuhætta og maraþon Litlar breytingar hafa orðið á virkni eldgossins á Sundhúksgígaröðinni frá því í gær, þegar verulega dró úr krafti þess. Gasmengun berst til suðurs í átt að Grindavík, sem er opin íbúum og fólki sem þar starfar. Bláa lónið opnaði í morgun. Innlent 24.8.2024 11:50
Þrjú heimili rýmd á Húsavík í nótt Slökkviliðið á Húsavík var kallað út um miðnætti í nótt vegna aurskriðu sem féll við Skálabrekku í bænum. Rýma þurfti þrjú hús vegna þessa en mikið vatn og jarðvegur rann fram úr fjallshlíðinni. Innlent 24.8.2024 11:42
Gasmengun leggst yfir Grindavík í dag Eldgosið virðist hafa náð jafnvægi í gærkvöldi og er virknin öll norðan við Stóra-Skógfell. Gasmengun mun berast til suðurs, yfir Grindavík, í dag enda norðlæg átt á gosstöðvunum. Gasmengun við eldstöðina getur farið yfir hættumörk í dag. Innlent 24.8.2024 09:54
Virknin svipuð og jafnvel dregið úr henni Lítið er að frétta af eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni á þriðja degi goss og hefur það náð vissu jafnvægi, að sögn náttúruvársérfræðings. Innlent 24.8.2024 07:32
Húsbíll valt í hvassviðri í Kömbunum Þrír sluppu ómeiddir þegar húsbíll valt og hafnaði utan þjóðvegarins ofarlega í Kömbunum í kvöld. Gul viðvörun vegna hvassviðris tók gildi á Suðurlandi klukkan níu og segir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni ekki stætt á Hellisheiði. Innlent 23.8.2024 22:33
Sjá ekki fyrir endann á eldsumbrotum á Reykjanesskaga Ekki sér enn fyrir endann á þeirri eldvirkni sem hófst á Reykjanesskaga fyrir þremur árum, að sögn jarðeðlisfræðings. Hann útilokar þó að búast megi lengi áfram við stöðugum eldgosum á nokkurra mánaða fresti. Innlent 23.8.2024 21:54
Tvö hjólhýsi splundruðust í vindhviðum á Lyngdalsheiði Engin slys urðu á fólki þegar sendiferðabíll valt og endaði á þakinu og tvö hjólhýsi splundruðust í sterkum vindhviðum á Lyngdalsheiði síðdegis. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir ekkert ferðaveður með ferðavagna á svæðinu. Innlent 23.8.2024 19:58
Óvissustig vegna rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna mikillar rigningar og aukinnar hættu á skriðuföllum á Tröllaskaga. Hluta Siglufjarðarvegur hefur verið lokað vegna grjóthruns. Innlent 23.8.2024 18:15
Dregið úr virkni eldgossins, harmleikur í Neskaupstað og nóróveiran Dregið hefur úr virkni eldgossins sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöldi og viðbúnaður almannavarna færður af neyðarstigi á hættustig. Við verðum í beinni frá gosstöðvunum og ræðum við jarðeðlisfræðing í myndveri. Innlent 23.8.2024 18:00
Ók fram af kanti og lenti ofan á þaki á öðrum bíl Engan sakaði þegar ökumaður ók fram af háum kanti í bílastæði þannig að bíll hans hafnaði ofan á þakinu á annarri bifreið sem var lagt fyrir neðan. Töluverðar skemmdir urðu aftur á móti báðum bílum. Innlent 23.8.2024 17:23
Fara af neyðarstigi og hleypa fólki í Bláa lónið og til Grindavíkur Starfsemi hefst í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að öllu óbreyttu í fyrramálið. Þá verður rýmingu Grindavíkur aflétt og íbúum sem og öðrum sem eiga þangað erindi hleypt aftur inn í bæinn. Ríkislögreglustjóri hefur fært almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig. Verulega hefur dregið úr krafti gossins og hraun rennur ekki suður í átt að Grindavík. Innlent 23.8.2024 17:21
Óvíst hvernig skólahópurinn smitaðist Allt bendir til að upp hafi komið nóróveirusmit í Emstruskála, Básum og í Þórsmörk þar sem hátt í fimmtíu börn og sjö fullorðnir veiktust í nótt. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir óljóst hvernig smitið kom upp. Innlent 23.8.2024 17:18
Segir óvissuna óafsakanlega og óviðunandi Umboðsmaður barna segir „óafsakanlegt“ að ekkert samræmt námsmat hafi tekið við þegar samræmd könnunarpróf voru afnumin í grunnskólum. Óvissan sem hafi skapast sé með öllu óviðunandi. Innlent 23.8.2024 16:36
Skoða kreditkortagögn og rannsaka tengsl grunaða við hjónin Tengsl voru milli hins grunaða og eldri hjóna sem fundust látin á Neskaupstað í gær. Notast er við gögn um kreditkortanotkun og ferðir hins grunaða til að reyna að ná utan um atburðarásina. Innlent 23.8.2024 16:00
Margir að skoða gosið og mikil umferð Fjölmargir ferðamenn hafa gert séð ferð til að sjá eldgosið við Sundhnúksgígaröðina í dag. Á Grindavíkurvegi er hægt að leggja bílnum og í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kom fram fyrr í dag að búið væri að taka niður hámarkshraða til að tryggja öryggi. Innlent 23.8.2024 15:55
Færri ofbeldisbrot á skemmtistöðum sem taka þátt í verkefninu Samkomulag um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði var undirritað í dag. Þetta er í fimmta sinn sem verkefnið er undirritað. Markmiðið samningsins er að skemmtistaðir í Reykjavík séu ofbeldislausir og öruggir, fyrir alla gesti og starfsfólk. Samkomulagið var fyrst undirritað árið 2016 og þá áttu 17 skemmtistaðir aðild að samkomulaginu en í dag eru þeir þrjátíu. Innlent 23.8.2024 14:52
Hlupu blaut úr Bláa lóninu Andrew & Ale Kenney voru í Bláa lóninu í gær þegar tilkynnt var um rýmingu vegna mögulegs eldgoss eða kvikuhlaups. Í myndböndum sem þau deildu á samfélagsmiðlinum TikTok kemur fram að þau hafi þurft að hlaupa blaut út. Á leið frá Bláa lóninu sáu þau svo eldgosið sem þá var nýhafið. Innlent 23.8.2024 14:19
Allt bendi til samsæris gegn íslensku þjóðinni Formaður Leigjendasamtakanna sakar stjórnvöld um að vísvitandi búa til þjóðfélagshóp sem búi ekki við húsnæðisöryggi og segir staðan á leigumarkaði talsvert verri en tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gefa til kynna. Innlent 23.8.2024 14:02
Einkenni nóróveiru komin fram „Einkennin eru ansi grunsamleg fyrir nóróveiru, sem er mjög smitandi og getur valdið hópsýkingum.“ Innlent 23.8.2024 13:45
Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst Fallist hefur verið á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald og einangrun til 30. ágúst yfir manni sem handtekinn var í tengslum við andlát hjóna á Neskaupstað. Krafan var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 23.8.2024 13:45
Fótbrotnaði í nótt á leið að gosstöðvum Lögeglan á Suðurnesjum sinnti í nótt útkalli vegna manns sem hafði lagt af stað að upptökum eldgossins frá Reykjanesbraut og fótbrotnaði í gjótu. Innlent 23.8.2024 13:30
Veðurstofan hefur litlar áhyggjur af hlaupinu Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi Skaftárhlaup vera langt frá því að vera nokkur ógn við vegi og innviði á svæðinu og að Veðurstofan hafi litlar áhyggjur af því eins og staðan er. Innlent 23.8.2024 12:08
Baráttan um Bandaríkin: 73 dagar til kosninga og spennan magnast Staðan í kosningabaráttunni vestanhafs, frambjóðendurnir og málefnin verða meðal umræðuefna í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar á Vísi; Baráttan um Bandaríkin. Innlent 23.8.2024 12:02
Flæðir inn á hús á Eyrinni í úrhellisrigningu Dæla í fráveitukerfinu á Siglufirði bilaði í nótt. Úrhellisrigning er á svæðinu og gul viðvörun í gildi. Í tilkynningu frá Fjallabyggð kemur fram að unnið sé að viðgerðum á dælunni en vegna mikillar úrkomu hafi flætt inn í nokkur hús á Eyrinni. Í morgun hafði mælst 92 millimetra úrkoma. Eigendur húsa á Eyrinni eru beðnir að huga að kjöllurum í húsum sínum Innlent 23.8.2024 11:52
Eftirlitið á kafi vegna fjölda smita Lögregla, sóttvarnarlæknir og heilbrigðiseftirlit róa nú öllum árum að því að rekja uppruna veikinda sem komu upp hjá stórum hópi ferðafólks í Emstrum og Básum í gærkvöldi og í morgun. Innlent 23.8.2024 11:44
„Þetta er mikið fyrir lítið bæjarfélag“ Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir mikla sorg í samfélaginu í Norðfirði vegna þeirra voveiflegu atburða sem borið hafa að í Neskaupstað síðastliðna viku. Í gær var minningarstund haldin í Norðfjarðarkirkju helguð minningu manns á fertugsaldri sem lést af slysförum á veiðum á þriðjudaginn í skugga þess að hjón fundust látin og maður í Reykjavík handtekinn í tengslum við málið. Talið er að andlátin hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 23.8.2024 11:41
Ákjósanleg staðsetning á gosinu Í hádegisfréttum fjöllum við um eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöldi en sérfræðingar eru á því að staðsetning sprungunnar sé ákjósanleg, í bili í það minnsta. Innlent 23.8.2024 11:34
Gossprungan að lengjast til sex í morgun Heildarlengd gossprungunnar er um sjö kílómetrar. Hún hélt áfram að lengjast til um klukkan sex í morgun. Enn dregur úr virkni eldgossins en enn er óljóst hvort því ljúki fljótt eða hvort það haldi áfram með minni hraunstraumi. Innlent 23.8.2024 11:26
Örfáir starfsmenn fara inn í Svartsengi til að huga að búnaði Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi HS Orku segir það létti hvernig eldgosið og hraunstreymið er að þróast. Eldgosið hófst í gærkvöldi og gýs enn úr tveimur sprungum við Stóra-Skógfell. Birna segir enga innviði í Svartsengi í hættu og hraunið ekki ógna vatnslögn þeirra frá Lágum. Innlent 23.8.2024 10:39