„Skráningum rignir inn“ Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 18:57 Halldór Benjamín Þorbergsson er einn stofnfélaga Áfram Ísland. Vísir/Vilhelm Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst.
Í tilkynningu Áfram Ísland kemur fram að það sé vettvangur fólks sem velji íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni og að Áfram Ísland sé „helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni.“ Halldór Benjamín Þorbergsson er einn stofnmeðlima vettvangsins. Hann segir hreyfinguna hugsaða sem regnhlífarsamtök fyrir öll þau félag sem vilja hvetja til þess að kosið verði gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Halldór Benjamín verður fundarstjóri á upphafsfundinum en í tilkynningu kemur fram að á fundinum verði þau Björn Zoëga læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ræðumenn á fundinum. Fundurinn verður í Sjálfstæðissalnum á Nasa við Austurvöll klukkan fimm á mánudag og er öllum opinn. Nauðsynlegt er þó að skrá sig fyrir komu. „Skráningum rignir inn,“ segir Halldór Benjamín í samtali við fréttastofu. „Þetta eru grasrótarsamtök sem hafa sprottið upp víðs vegar um land,“ segir Halldór Benjamín og að stofnfélagar séu skráðir í samtökin og að listi þeirra verði birtur á upphafsfundinum á mánudag. Hann segir hugsun hópsins að reka jákvæða, uppbyggilega og málefnalega baráttu. „Enda liggur það fyrir að ríflega helmingur þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið, og um það bil helmingur er þeirrar skoðunar að þau ætli að segja nei í atkvæðagreiðslunni í ágúst. Þetta er svona hinn náttúrulegi farvegur fyrir þá krafta og þetta fólk sem er þeirrar skoðunar.“ Vettvangurinn verði öllum opinn, starfið gagnsætt og baráttan rekin á jákvæðum grunni. Mikill áhugi um land allt Halldór Benjamín telur síður en svo að það sé á brattann að sækja að heyja þessa baráttu að sumri til þegar fólk er á leið í sumarfrí. „Tækifærin eru til staðar. Utanríkisráðherra og forsætisráðherra ákváðu að heyja þessa baráttu yfir hásumarið og við teljum mikinn samhljóm meðal landsmanna um að þeir vilji taka þátt, jafnvel þótt það sé hásumar.“ Þetta sé tími sem fólk vilji allajafna huga að öðrum hlutum en þvert á móti finni þau, hringinn í kringum landið, að fólk af öllum stéttum og flokkum finni sig í Áfram Ísland. „Ég, eins og allir sem koma að þessu, brenn fyrir málefnið og hafa trú á framtíð Íslands utan Evrópusambandsins og vilja láta gott af sér leiða í þjóðfélagsumræðunni. Ríkisstjórnin ákvað að vísa þessari spurningu til þjóðarinnar og þá verður þjóðin að standa undir þeirri ábyrgð að gefa sér tíma og taka þátt í þessari umræðu, sem er það sem lýðræðislegt þjóðfélag snýst um.“ Samkvæmt nýrri könnun Maskínu myndi rúmur helmingur segja já í ágúst og tæpur helmingur nei. Spurður um þennan klofning og viðbrögð við niðurstöðunni segir Halldór Benjamín þessa vegferð ríkisstjórnarinnar vanhugsaða. „Ef ég myndi setja mig í spor Þorgerðar Katrínar þá myndi ég vera mjög hugsi yfir þeirri stöðu að kljúfa þjóðina í herðar niður í jafn stóru máli og þessu. Ég hefði talið eðlilegra að undirbúningur þessa máls hefði verið eftir öðrum leiðum og tel að þetta sé vanhugsuð vegferð en tel að það séu mikil sóknarfæri fyrir Áfram Ísland og fólk sem starfar innan vébanda þess.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Félagasamtök Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira