
Jól

Gamla kókauglýsingin kemur með jólastuðið
Guðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri Bjarts, segir hér frá því sem kemur henni í jólastuð.

Alíslenskar jólarjúpur
„Ég sá næstum eftir því að hafa lofað að búa til jólaskraut því þegar ég fór að líta í kringum mig og skoða jólaskraut á netinu komst ég að því að mér þykir jólaskraut almennt ekki fallegt," segir Móeiður Helgadóttir leikmyndahönnuður hlæjandi og bætir við að flest jólaskraut þyki henni einum of mikið „kitsch".

Englaspilið klingir
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir á fallegt englaspil sem hún tekur fram fyrsta sunnudag í aðventu og leyfir því að klingja á jólaföstunni milli þess sem hún sinnir söng og leik.

Jólaís Helgu Möller
Helga Möller gaf okkur uppskriftina af jólaísnum sem hún útbýr hver einustu jól.

Hélt fyrst upp á jólin á Íslandi
Haustið 2008 komu 29 palestínskir flóttamenn til Íslands frá Írak og settust að á Akranesi. Einn þeirra er Manal Aleedy, sem býr þar í bæ ásamt börnum sínum þremur, þeim Söru, Mariyam og Hamoudi.

Spilar inn jólin
Sigríður Rósa Kristinsdóttir fékk sérstakan grip í jólagjöf frá foreldrum sínum. Gripinn metur hún umfram aðra og á hann sér sinn heiðurssess á heimili fjölskyldu hennar.

Sigurjóna Sverris: Samveran skiptir mestu
Sigurjóna Sverrisdóttir og Kristján Jóhannsson bjuggu í mörg ár á Ítalíu. Sigurjóna segir jólahefðir þar í landi mjög frábrugðnar þeim íslensku en að ítalskir vinir þeirra hafi hrifist af mörgu því sem fjölskyldan gerði fyrir jólin. Til dæmis að baka smákökur, skera út laufabrauð og kveikja á kertum í skammdeginu.

Unaðsleg eplakaka með möndlum
Á veturna þegar kuldi og myrkur færast yfir er fátt sem lætur manni líða jafn vel og ljúffeng og ilmandi eplakaka beint úr ofninum. Með þeyttum rjóma, ískúlum og örlitlum kanil verður úr fullkomin blanda.

Nágrannar skála á torginu
Fram undan eru jól án íslenskra sjónvarpsþula. Margir muna eftir Svölu Arnardóttur með sitt bjarta bros á skjánum á aðfangadagskvöld að óska landsmönnum gleðilegrar hátíðar. Nú heldur hún jólin í Þýskalandi ásamt fjölskyldunni en kemur heim fyrir áramótin

Sköpunarkraftur virkjaður
Fyrir hver jól kemur kvenleggurinn í móðurætt Sigrúnar Þóru Magnúsdóttur saman til að föndra. Ýmsar frumlegar hugmyndir fæðast af því tilefni og sumar hverjar rata beinustu leið í jólapakkana til vina og vandamanna.

Jólaskraut við hendina
Helga Guðrún Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir mynda tvíeykið Stáss. „Við erum báðar arkitektar og stofnuðum Stáss haustið 2008 þegar við misstum vinnuna á teiknistofu. Þá voru að koma jól og við byrjuðum á að hanna jólaskraut úr plexígleri," segir Árný.

Klassísk rauð og hvít jól
Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistarkona útbjó klassískt jólaborð þar sem hátíðarliturinn, rauður, var í aðalhlutverki. Hennar fasta jólahefð er að mála rauð epli með hvítum glassúr.

Jóladrykkurinn í ár - Chai latte fyrir tvo
„Ég laga Chai úr teblöndu sem ég kaupi hjá Österlandsk tehus í Kaupmannahöfn og læt sírópið alveg eiga sig," segir Tinna Jóhannsdóttir hjá Kaffifélaginu.

Gamla tréð frá afa og ömmu
Halldóra Teitsdóttir ólst upp við að skreyta jólatré afa síns og ömmu. Tréð fékk hún seinna til eignar og nú dundar hún sér við að skreyta það ásamt barnabörnum sínum fyrir hver jól.

Svona eru jólin með Audda og Sveppa
Auddi og Sveppi fóru út um allan bæ og plötuðu stjörnur sem hafa unnið með þeim til þess að syngja jólalagið Svona eru jólin, hverja með sínu nefi.

Íslensku jólasveinarnir þrettán
Íslensku jólasveinar sem við þekkjum í dag eru þrettán talsins. Þeir eru Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottaskefill, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir.

Kvenskart frá heitu hjarta: Orri Finn
Hér föndra þrír gullsmiðir kvenskart úr perlum, steinum og vírum frá Föndru í Kópavogi og máttu bæta við eigin efniviði. Útkoman er uppörvandi fyrir þá sem vilja gera eitthvað sérstakt handa ástinni sinni.

Kvenskart frá heitu hjarta: Sigurður Ingi
Hér spreyta þrír gullsmiðir sig á að föndri við kvenskart í jólapakkann úr perlum, steinum og vírum frá versluninni Föndru í Kópavogi og útkoman er sannarlega glæsileg og uppörvandi fyrir karlmenn sem vilja gera eitthvað alveg sérstakt handa ástinni sinni.

Kvenskart frá heitu hjarta: Þorbergur
Hér spreyta þrír gullsmiðir sig á að föndri við kvenskart í jólapakkann úr perlum, steinum og vírum frá versluninni Föndru í Kópavogi og útkoman er sannarlega glæsileg og uppörvandi fyrir karlmenn sem vilja gera eitthvað alveg sérstakt handa ástinni sinni.

Jól í gamla daga: Bauð góða nótt þegar ég kvaddi
Fyrstu jólaminningar Torfa Guðbrandssonar, fyrrverandi skólastjóra, eru frá Sjúkrahúsinu á Ísafirði. Þar dvaldi hann fimm bernskuár, fjarri foreldrum sínum, og barðist við berkla.

Spænsk jól: Roscon de Reyes
Á Spáni eru jólin haldin dálítið öðruvísi en á Íslandi. Fjölskyldur koma saman á jóladag og borða mikið og drekka góð vín, meðal annars marispan og kampavín.

Jólabrandarar
Viltu slá í gegn í jólaboðinu? Hér eru nokkrir laufléttir brandarar sem koma flestum í jólagírinn.

Grín og glens: Jólabrandarar og gátur
Nokkrir skotheldir brandarar af jólavef Vísis.

Ein heima á gamlárskvöld
"Það er nú svo sem ekkert sniðugt sem stendur upp úr hjá mér um áramót. Enginn stór eldsvoði, prakkarastrik eða neitt því um líkt. Við fjölskyldan hittumst alltaf á gamlárskvöld hjá stóru systur minni sem eldar kalkún með miklum myndarbrag. Það er afskaplega huggulegt," segir Jarþrúður.

Heimsins stærsti póstkassi er í Færeyjum
Færeysku jólasveinarnir sem heimsóttu íslensku jólasveinana fyrir nokkrum árum, fengu á þorláksmessu eigin póstkassa. Póstkassin er að sögn sá stærsti í heiminum, 7,42 metra hár og rúmlega 4 metrar á breidd.

Keypti hátíðarmatinn á bensínstöð
"Ég reyni að forðast hefðir en auðvitað draga svona stórhátíðir oft dám hver af annarri," segir Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðarmaður og fékkst til að líta aðeins upp úr lokafrágangi danskrar myndar og rifja upp eftirminnileg áramót.

Hefðin er engin hefð
"Við förum stundum út á land til tengdafjölskyldunnar þar sem eru engir flugeldar því það myndi hræða hrossin," segir Dofri Hermannsson leikari og nemi. "Annars erum við svona til skiptis hérna í bænum og má í raun segja að hefðin sé að það er engin hefð á áramótunum hjá okkur," segir Dorfi,

Annir hjá jólasveinum
Jólasveinar hafa nóg að gera á þessum árstíma, ekki bara hér á landi heldur um allan heim. Í Japan gefa þeir ísbjörnum að éta, í Bandaríkjunum þurfa þeir að verða sér úti um flugleyfi en í Mexíkó halda þeir sig til hlés vegna glímukappa.

Hátíð fer að höndum ein færir mann nálægt kjarna jólanna
"Hátíð fer að höndum ein er uppáhaldsjólasálmurinn minn. Það er svo rosalega sterk stemning í því lagi," segir Sigfríður Björnsdóttir kennari og þarf ekki að hugsa sig um þegar hún er spurð. Hún segir þó enga einstaka minningu tengda þessum sálmi heldur hafi hann fylgt henni lengi.

Föndruðu kort fyrir borgarstjóra
Um 100 krakkar úr fyrstu bekkjum Melaskóla sem sækja frístundaheimilið tóku sig til og föndruðu stærðarinnar jólakort handa Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra.