
Lífið

Barnalán hjá Arnari Gunnlaugs og Maríu
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, og kærasta hans, María Builien Jónsdóttir, líffræðingur og tölvunarfræðingur, eiga von á barni í byrjun næsta árs. María tilkynnti óléttuna á samfélagsmiðlum og að þau ættu von á stúlku.

Íslenska kokkalandsliðið á leiðinni á Ólympíuleika
Það stendur mikið til hjá íslenska kokkalandsliðinu, sem æfir sig nú á fullum krafti fyrir Ólympíuleika, sem verða í byrjun febrúar á nýju ári í Stuttgart í Þýskalandi. Þorskur, íslenskt lamb og hindber verður meðal annars á matseðlinum. Sérstakur uppvaskari fylgir liðinu á leikana.

„Takk fyrir að vera til“
Íris Tanja Flygenring leikkona sendi unnustu sinni og tónlistarkonunni Elínu Eyþórsdóttur, þekkt sem Elín Ey, hjartnæma afmæliskveðju í hringrásinni á Instagram í gær.

Leiðir skilja hjá Þórdísi Elvu og Víði
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og baráttukona, fer einhleyp inn í jólavertíðina. Nýlega skildu leiðir hennar og eiginmanns hennar, Víðis Guðmundssonar leikara. Víðir greinir frá sambandsslitunum á Facebook.

Herra Hnetusmjör og frú edrú í sjö ár
Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, þekktur sem Herra Hnetusmjör, fagnar sjö árum án hugbreytandi efna í dag. Árni greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni og hamingjuóskum rignir yfir hann.

Gengur með jólakortin 280 kílómetra í desember
Einar Skúlason, í gönguhópnum Vesen og vergangi, ætlar í desember að ganga 280 kílómetra leið frá Seyðisfirði til Akureyrar. Við komu til Akureyrar ætlar hann að dreifa í hús jólakortum til fólks og fyrirtækja.

Sjarmerandi og litríkt heimili Steinunnar og Eiríks til sölu
Steinunn Knútsdóttir sviðslistakona og eiginmaður hennar Eiríkur Smári Sigurðarson, forstöðumaður Hugvísindastofnunar og rannsóknastjóri Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, hafa sett íbúð sína við Klapparstíg á sölu.

Komust í undanúrslitin með því að vita nafnið á þessu íþróttafélagi
Átta liða úrslitunum í Kviss lauk á laugardagskvöldið á Stöð 2. Þá mættust Skagamenn og Afturelding í hörkurimmu.

Málið áfram og Rocky á yfir höfði sér allt að níu ára fangelsi
Dómari í Los Angeles úrskurðaði í gær að ákæruvaldið hefði næg sönnunargögn til að draga tónlistarmanninn ASAP Rocky fyrir dóm fyrir að hafa skotið á æskuvin sinn og samstarfsmann fyrir utan hótel í Hollywood árið 2021.

„Ég gat ekki hætt að gráta af gleði“
„Það er eins og við séum alvöru fjölskylda því við erum búin að vera svo mikið saman,“ segir Hildur Kristín Kristjánsdóttir, ellefu ára leikkona. Hún ásamt hinni tíu ára gömlu Viktoríu Dalitso Þráinsdóttur, skipta með sér titilhlutverki sýningarinnar Fíasól gefst aldrei upp, sem frumsýnt verður í byrjun desember.

Björk og Rosalia gefa út lag til höfuðs sjókvíaeldi á morgun
Björk gagnrýnir íslenska sjókvíaeldisiðnaðinn harðlega í nýrri tilkynningu. Þar segist hún á morgun gefa út nýtt lag með spænsku söngkonunni Rosaliu sem ber heitið „oral.“

Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni
Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Thomasi Bojanowski.

„Núna eru að koma fram eldri karlmenn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku“
„Núna eru að koma fram eldri karlmenn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. Búnir að bera djúpa skömm og sjálfsfyrirlitningu og aldrei orðað það við neinn. Við það að opna sig og vinna með ofbeldi hef ég séð karlmenn yngjast fyrir framan nefið á mér,“ segir Bjarni Karlsson sálgætir, prestur og siðfræðingur.

Fjölskyldan í Kaupmannahöfn stækkar
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni. Parið tilkynnti gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram.

Stjörnulífið: Gellur elska GusGus og Auðunn ástfanginn
Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Fernir stórtónleikar GusGus fóru fram í Eldborgarsal Hörpu um helgina. Sunneva Einars hlakkar til jólanna og Mari Jaersk óskar þess að Tómas Guðbjartsson taki á móti barni hennar einn daginn.

„Byrjuðum saman sem börn og höfum síðan þá þroskast svo fallega saman“
Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og tískudrottning, og eiginmaður hennar Gunnar Steinn Jónsson handboltakappi, fögnuðu tuttugu ára sambandsafmæli í Kaupmannahöfn um helgina.

Er vinsælasta jólalag sögunnar stolið?
Tiltölulega óþekktur sveitasöngvari í Bandaríkjunum krefst þess að Mariah Carey greiði sér 20 milljónir dala í skaðabætur. Hann hafi nefnilega samið jólalagið All I Want For Christmas Is You sex árum áður en Mariah Carey gaf lagið út.

Ljósir litir og léttleiki á fallegu heimili í Hafnarfirði
Í fjórða þætti Skreytum hús heimsótti Soffía Dögg Garðarsdóttir Önnu Rún sem býr í Hafnarfirði ásamt börnum sínum með fallegu útsýni út á fjörðinn.

Leikari úr Línu langsokk látinn
Sænski leikarinn Fredrik Ohlsson, sem þekktastur er fyrir að hafa farið með hlutverk föður Tomma og Önnu í þáttunum og kvikmyndunum um Línu Langsokk, er látinn. Hann varð 92 ára gamall.

Dansandi skólaliði á Sauðárkróki með nemendum
Eitt af því allra skemmtilegasta sem nemendur í Árskóla á Sauðárkróki gera er að dansa út í frímínútum þar sem lög með Skagfirðingnum Geirmundi Valtýssyni þykja lang skemmtilegust að dansa við.

Matarboð með fyrirvara um eldgos
Grindvíkingarnir Hallgrímur Hjálmarson og maðurinn hans Geir Andersen neita að leyfa neikvæðninni að ráða og efna til matarboðs á heimili sínu í Grindavík í janúar næstkomandi.

Linda P og Sigga Beinteins svara fyrir kjaftasöguna um ástarsamband
Sigríður Beinteinsdóttir og Linda Pétursdóttir voru gestir í Bakarínu á Bylgjunni í morgun. Þar svöruðu þær fyrir kjaftasöguna um að þær eigi í ástarsambandi.

„Alls konar blessanir í slæmu hlutunum“
Útvarpsmaðurinn Axel Birgisson sér glasið hálf fullt í lífinu og er gjarnan lýst sem miklum stemningsmanni. Lífið tók skarpa U-beygju í sumar þegar Axel greindist með illkynja æxli en hann segir lífsreynsluna hafa kennt sér heilmikið. Blaðamaður settist niður með Axel og ræddi við hann um lífið, ferilinn, tónlistina, ástina, vináttuna og margt fleira.

Fréttakviss vikunnar: Gordon, Grindavík og Gasa
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Líður eins og „algjörum svikara” á Iceland Noir
Breski leikarinn Richard Armitage segir að sér líði eins og algjörum svikara að vera stillt upp með heimsklassarithöfundum á Iceland Noir. Margir hafi efast um ritfærni hans og útgefandi hans meira að segja lagt til að hann notfærði sér leigupenna. Við settumst niður með Armitage og ræddum fyrstu skáldsöguna, jarðhræringar í Grindavík og íslenska jólahefð sem hann ætlar að tileinka sér.

Setja á svið stórbrotna sögu Fúsa: „Einsdæmi í íslensku leikhúsi“
Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson varð fyrir miklum súrefnisskorti í fæðingu sem leiddi til þess að hann lamaðist að hluta til hægra megin í líkamanum. Þrátt fyrir fötlun sína er óhætt að fullyrða að Fúsi lifi lífinu til fulls.

Var með fæðingarþunglyndi í rúm átta ár
Sigríður Hrund Pétursdóttir, segir þjáningu merki um þroska. Hún telur sig heppna að hafa farið fjórum sinnum í gegnum fæðingarþunglyndi enda sé hún vel gift. Hjónin hafa þó gengið í gegnum fleiri áföll en tekist á við þau af æðruleysi.

Glæsihöll með steyptum potti og stórbrotnu útsýni
Við Vatnsendablett í Kópavogi má finna sannkallaða glæsihöll. Um er að ræða 340 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með útsýni yfir Elliðavatn. Ásett verð fyrir eignina er 257 milljónir.

Halli sviptir hulunni af Bláa herberginu: Tekur oftast Elvis í karaokí
Haraldur Þorleifsson opnar með formlegum hætti bíósal, hið svokallaða Bláa herbergi, á veitingastaðnum Önnu Jónu á Tryggvagötu í Reykjavík. Þar gefst gestum tækifæri á að halda fund, horfa á kvikmynd eða að fara í karaokí. Sjálfur segist Haraldur mikill karaokí maður.

Ljósin kveikt á jólakettinum
Jólakötturinn á Lækjartorgi verður tendraður á morgun klukkan 17. Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar kveikir ljósin undir á meðan lúðrasveitin Svanur flytur nokkur vel valin jólalög.