Lífið

Flughetja selur slotið með heitum og köldum
Kristinn Elvar Gunnarsson, flugstjóri hjá Norlandair sem meðal annars hefur haldið uppi loftbrú félagsins frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar, hefur sett hús sitt á Akureyri á sölu. Um er að ræða glæsilegt einbýlishús að Kolgerði á frábærum stað í brekkunni.

Af vængjum fram: Bestu augnablikin
Kjarnorkusprengjur og búlgarska mafían eru meðal þess sem kemur við sögu í klippu þar sem bestu augnablik forsetaframbjóðenda í skemmtiþættinum Af vængjum fram eru tekin saman.

Aðstoðarkonan kærir Kanye fyrir kynferðislega áreitni
Fyrrverandi aðstoðarkona bandaríska rapparans Kanye West hefur kært hann fyrir kynferðislega áreitni og brot á vinnulöggjöf. Konan, sem heitir Lauren Pisciotta, hóf störf hjá rapparanum í júlí árið 2021.

Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn
Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður og unnusta hans María Ósk Skúladóttir viðskiptafræðingur nefndu son sinn um helgina. Drengurinn heitir Emil Atli.

„Það eina sem ég vildi var bara að lifa“
„Ég var hræddur og ég vildi bara eiga líf. Það eina sem ég vildi var bara að lifa,“ segir tónlistarmaðurinn Ísak Morris sem hefur átt viðburðaríka ævi en segist nú loksins hafa fundið sig. Ísak hefur verið viðloðinn tónlist frá unglingsaldri og vinnur nú að plötu sem hann stefnir á að gefa út í sumar. Blaðamaður ræddi við hann um tónlistina, æskuna, fíknina, edrúmennskuna, ástina og margt fleira.

Hommahöllin til sölu
Hommahöllin á Neskaupsstað hefur verið sett á sölu, en húsið er norskt kataloghús af fínustu sort. Húsið var síðast starfrækt sem menningarheimili með vinnustofum listamanna og fékk þá í kjölfarið viðurnefnið Hommahöllin.

Klútabyltingin: Finndu þinn eigin Höllu-klút
Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, er að takast að gera hálsklúta að heitasta klæðnaði dagsins. Halla var fyrst með klút í fyrstu kappræðunum í byrjun maí. Síðan hefur klúturinn orðið eins konar einkennismerki stuðningmanna Höllu sem mættu margir með litla silkiklúta um hálsinn á kosningavöku hennar sem fór fram í Grósku síðastliðið laugardagskvöld.

Húsbóndinn á Árbakka hafði aldrei heyrt um þriðju vaktina
Óhætt er að segja að líf fjölskyldunnar á hestabúgarðinum á Árbakka snúist í kringum hesta. Hestamennskan sameinaði þau á áttunda áratugnum.

Þriðja stúlka Evu Laufeyjar og Hadda fædd og komin með nafn
Eva Laufey Kjaran, markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og eiginmaður hennar Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo eignuðust stúlku 26. maí síðastliðinn. Stúlkan mætti á settum degi og sér fjölskyldan ekki sólina fyrir henni.

Fyrrverandi eigandi Sóma vill 375 milljónir fyrir einbýlið
Alfreð Hjaltason athafnamaður hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt í botnlanga í Garðabæ á sölu. Uppsett verð fyrir húsið eru 375 milljónir króna en húsið er einmitt 375,5 fermetrar að stærð.

Stjörnulífið: Hálsklútabyltingin, Gríman og brúðkaup í Boston
Nýliðin vika var mögulega sú stærsta hingað til og það fór ekki framhjá neinum að Íslendingar völdu sér nýjan forseta um helgina. Stuðið var mikið hjá forsetaframbjóðendum en eðli málsins samkvæmt langmest í Grósku þar sem Halla Tómasdóttir fagnaði glæsilegum sigri. Þetta var þó ekki eini viðburðurinn í vikunni, en Gríman og Sjómannadagurinn voru einnig haldin hátíðleg svo eitthvað sé nefnt.

„Mikilvægt að huga að því að þroskast í faginu“
„Mamma hefur alltaf verið mjög styðjandi og hvetjandi og hún sagði alltaf við mig þegar ég var lítil: Það sem maður byrjar á það klárar maður. Oft koma upp aðstæður eða verkefni þar sem mann langar að gefast upp og hætta í miðju kafi en þá hugsa ég alltaf um þetta,“ segir Katrín Halldóra Sigurðardóttir leik- og söngkona.

Upplifði svæsið einelti en er í dag yngsti læknir landsins
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir er við það að útskrifast úr læknanámi við Háskóla Íslands. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Ragna er einungis 23 ára. Erfið reynsla úr grunnskóla og veikindi föður hennar voru stærstu áhrifaþættirnir í vali hennar á námi. Læknisfræðin er ekki eina ástríða Rögnu því hún er einnig Íslandsmeistari í kraftlyftingum.

Steinunn vill fá Ásdísi með sér í „Kynbombuflokkinn“
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leggur til að hún og Ásdís Rán Gunnarsdóttir stofni stjórnmálaflokk að nafni Kynbombuflokkurinn í kveðju sem hún birtir til Ásdísar á Facebook.

Myndaveisla: Sjómannadagurinn í Reykjavík og Gummi Emil í koddaslag
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land með tilheyrandi herlegheitum. Hafsjór var af skemmtun í Reykjavík, þar sem boðið var upp á skemmtiatriði á tveimur sviðum á Granda.

Dóttir Jolie og Pitt vill ekki heita Pitt lengur
Shiloh Nouvel Jolie-Pitt, dóttir stjörnuparsins fyrrverandi, Brad Pitt og Angelinu Jolie, sótti um að láta fjarlægja ættarnafn föður síns, Pitt, á átján ára afmælisdaginn sinn í liðinni viku.

„Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“
Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála Morgunblaðsins og lífsstílssérfræðingur, veltir fyrir sér „slæðubyltingunni“ í hugleiðingum sem hún deilir með vinum sínum á Facebook.

Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng
Davíð Helgason fjárfestir og fyrirsætan Isabella Lu Warburg eignuðust sitt annað barn saman 29. maí síðasliðinn. Fyrir eiga þau soninn Ágúst Lu sem er tveggja ára.

„Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“
Röð atburða leiddi til þess að Kolbrún Róbertsdóttir tók stóra og djarfa ákvörðun árið 2012. Hún flutti til Spánar ásamt börnunum sínum þremur, og það eina sem höfðu meðferðis voru fimm ferðatöskur. Kolbrún lét hjartað ráða för og leyfði tækifærunum að koma til sín. Það borgaði sig á endanum; hún opnaði jógastúdíó við suður strönd Spánar.

Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

Klæddu sig upp sem frambjóðendur
Í einu metnaðarfyllsta kosningarpartýi kvöldsins klæddu allir gestir sig sem forsetaframbjóðendur. Berghildur Erla leit við og hitti „frambjóðendurna“.

Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum
Það er mikil spenna fyrir úrslitum forsetakosninganna og spennan er ef til vill mest í kosningavökum frambjóðendanna.

Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum
Jón Gnarr yngri betur þekktur sem Nonni Gnarr útskrifast úr menntaskóla í dag og útskriftarveislan fór fram í sama salnum í Elliðarárdal og kosningavaka Jóns Gnarr eldri fer nú fram. Bjarki Sigurðsson fréttamaður tók Nonna Gnarr tali sem var alveg á því að dagurinn væri um hann.

Ofboðslega stolt af dóttur sinni
Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, segist mjög stolt af dóttur sinni og segir hana hafa staðið sig mjög vel í kosningabaráttunni.

Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór
Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru stödd á kosningavöku óháðra á Nasa og bíða spennt eftir að fyrstu tölur berist.

„Nú er þessi sprettur á enda“
„Nú er þessi sprettur á enda. Ég horfi á markið og kjörstaðir að fara að loka. Við erum mætt hingað á Grand Hótel og það er mjög góð stemmning í mannskapnum.“

Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin?
Íslendingar hafa í dag valið sér forseta, og spennan er í algleymingi. Einn frambjóðandi mun standa uppi sem sigurvegari, og næsti forseti lýðveldisins, á meðan aðrir munu ekki hafa erindi sem erfiði. Þeir munu þó flestir freista þess að fagna með stuðningsfólki sínu í kvöld.

Sjómannadagsfjör á Skagaströnd
Það iðar allt af lífi og fjöri á Skagaströnd um helgina en þar byrjuðu íbúar á fimmtudaginn að fagna sjómannadagshelginni og hápunktur hátíðarhaldanna verður svo á morgun, sjómannadaginn.

Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó
Heiður Berglind Þorsteinsdóttir er þrítugur vélstjóri á varðskipinu Þór en samhliða starfi sínu stundar hún nám í skipstjórn af kappi. Heiður rekur áhuga sinn á vélum niður að blautu barnsbeini og segir starfið á sjó vera gefandi þar sem það býður upp á marga möguleika.