Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Gættu þess að vera tillitssamur við ættingja og vini í dag þó að það sé kannski eitthvað sem angrar þig persónulega þessa dagana.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Dagurinn lofar góðu í sambandi við félagslífið og er líklegt að það verði líflegt. Þú þarft að huga að eyðslunni og passa að hún fari ekki úr böndunum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Vinir þínir skipuleggja helgarferð og mikil samstaða ríkir meðal hópsins. Félagslífið tekur mikið af tíma þínum en þeim tíma er vel varið.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Haltu þig við áætlanir þínar eins og þú getur og vertu skipulagður. Þér bjóðast góð tækifæri í vinnunni og skaltu fremur stökkva en hrökkva.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Kvöldið verður skemmtilegt og ef til vill skipuleggur þú ferðalag sem fyrirhugað er í framtíðinni. Farðu varlega í fjárfestingar.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Eitthvað sem þú gerir núna hefur mikil áhrif á framtíðina. Þetta á sérstaklega við varðandi frama þinn í vinnunni. Fjölskyldulífið gengur vel.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú átt dálítið annríkt í dag og skalt fá hjálp frá vinum þínum og samstarfsfólki ef þú þarft á því að halda.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Fólk lítur mikið upp til þín um þessar mundir og treystir á þig í forystuhlutverkið. Láttu þetta þó ekki stíga þér til höfuðs.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Gefðu þér meiri tíma fyrir sjálfan þig en þú hefur gert undanfarið. Þú þarfnast þess. Ástin blómstrar.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Vertu ekki of viss um að þú hafir á réttu að standa í ágreiningsmáli. Þú ert meiri maður ef þú viðurkennir ósigur þinn strax og þú uppgötvar hann.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Vertu varkár í viðskiptum og forðastu að lofa upp í erminu á þér. Það er mikilvægt að vera stundvís.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér lætur betur að vinna einn en með öðrum í dag. Bestum árangri nærð þú við úrlausn vandasamra verkefna fyrri hluta dagsins.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Hlustaðu á hvað aðrir hafa fram að færa. Það þarf þó ekki að þýða að þú gerir ekki eins og þér finnst réttast.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú hefur verið að bíða eftir einhverju og færð fréttir af því í dag. Vertu þolinmóður þótt fólk sé ekki tilbúið að fara að ráðum þínum.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú mátt vera ánægður með árangur þinn að undanförnu. Nú getur þú leyft þér að taka það rólega áður en næsta lota hefst.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Ef þú þarft að koma einhverjum verkefnum frá þér er skynsamlegt að láta hendur standa fram úr ermum. Þú færð nefnilega nóg að hugsa um þegar líður á daginn.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þó að þér finnist lífið erfitt um þessar mundir skaltu muna að tíminn læknar öll sár og hver veit nema hamingjan bíða handan götunnar?

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ert að velta einhverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Þú ættir að hvíla þig.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Vertu viðbúinn því að þurfa að taka svolitla áhættu í dag. Þannig áttu mesta möguleika á því að komast áfram.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Ferðalag er á dagskrá hjá sumum og það þarfnast mikillar skipulagningar. Notaðu tíma þinn vel og gættu þess að fá næga hvíld.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þú verður að gæta þess að særa engan með áætlunum þínum. Þó að þú hafir mikið að gera verður þú að taka tillit til fólksins í kringum þig.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú lendir í miðju deilumáli og ert í vafa um hvort þú eigir að styðja annan deiluaðilann eða láta þig þetta engu skipta.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Hætta er á misklíð milli vina. Ef þú átt einhverja sök ertu maður að meiri ef þú viðurkennir það og biðst afsökunar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ákveðinn atburður sem átti sér stað nýlega setur mikinin svip á líf þitt þessa dagana og veldur þér leiða. Reyndu að horfa á björtu hliðarnar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Heppnin er með þér í dag og þér bjóðast tækifæri sem þú hefur beðið eftir lengi. Kvöldið gæti þó valdið smávægilegum vonbrigðum.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú heyrir óvænta gagnrýni í þinn garð og átt erfitt með að sætta þig við hana. Ekki láta annað fólk koma þér úr jafnvægi.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Það er mikið að gera hjá þér þessa dagana og þér finnst stundum sem þú munir ekki komast yfir allt sem gera þarf. Skipuleggðu tíma þinn vel og haltu ró þinni.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ekki búast við of miklu af fólki. Þó að það vilji vel er ekki víst að það vilji leggja mikið á sig fyrir þig. Ekki ljóstra upp leyndarmáli.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Einhverjar breytingar verða á áætlunum þínum. Sjónarmið annarra verða ofan á og verður útkoman góð þótt þú eigir erfitt með að viðurkenna það.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Vináttan blómstrar í dag og þér semur einstaklega vel við þá sem í kringum þig eru. Viðskipti ganga einnig mjög vel í dag.