

Einhver sýnir þér ekki næga athygli en hafðu ekki áhyggjur af því. Þín bíður gott tækifæri til að sýna hvað í þér býr. Dagurinn verður erilsamur en þó hægist um er líður á kvöldið.
Þú átt skemmtilegan morgun í vændum og munt taka þátt í athyglisverðum umræðum. Vinur þinn segir þér merkilegar fréttir.
Forðastu að baktala samstarfsfólk þitt, það er aldrei að vita á hvers bandi fólkið í kringum þig er. Rómantíkin blómstrar.
Þú ættir að forðast smámunasemi í dag. Ekki gagnrýna annað fólk að óþörfu. Þú þarft að vanda þig í samskiptum við aðra.
Næstu dagar verða nokkuð fjölbreyttir og það verður mikið að gera hjá þér. Kvöldið verður rólegt í faðmi fjölskyldunnar.
Vertu þolinmóður þó einhver virðist tillitslaus og ætlist til mikils af þér. Skilningur þinn á líðan vina þinna mætti vera meiri í dag.
Þú hefur ekki mikinn tíma fyrir sjálfan þig þar sem fjölskyldan þarfnast allra krafta þinna. Kvöldið lofar góðu og rómantíkin blómstrar.
Fjölskyldan upplifir gleðilegan dag. Í vinnunni er einnig afar jákvætt andrúmsloft og þér gengur vel við þín störf. Kvöldið lofar góðu.
Reyndu að skilja aðalatriðin frá aukaatriðunum og gera áætlanir þínar eftir því. Það er ekki víst að ráð annarra séu betri en þín eigin, treystu sjálfum þér.
Óvæntir atburðir eiga sér stað í dag. Þú færð einhverja ósk þína uppfyllta, verið getur að gamall draumur sé loks að rætast.
Fjölskyldumál eru ofarlega á baugi í byrjun dags en seinni hluti dagsins snýst aðallega um vinnuna.
Sjálfstraust þitt er með mesta móti. Þú þarft á öryggi að halda í einkamálunum á næstunni.
Hvernig sem þú reynir virðist ákveðið mál ekki ætla að ganga upp. Þú ættir að líta í kringum þig og vita hvort þú ert á réttri leið.
Dagurinn verður skemmtilegur og þú tekur þátt í áhugaverðum umræðum. Eitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi gæti gerst í dag.
Nú er mikið um að vera í kringum þig og eins gott að vera í góðu formi. Fjölskyldan þarfnast þín verulega um þessar mundir.
Þér finnst ef til vill vera ætlast til mikils af þér og að þú sért ekki metinn að verðleikum fyrir það sem þú gerir. Vinur þinn segir þér eitthvað sem þér bregður við að heyra.
Atburðir dagsins gera þig líklega bjartsýnan en þú verður að gæta hófs, sérstaklega í peningamálum. Ekki vera kærulaus.
Ekki treysta á aðra til að hjálpa þér að halda loforð þín eða leysa verkefni fyrir þig. Treystu heldur á eigin dómgreind og þá mun allt fara vel.
Gættu vel að því að gera ekki skyssu í vandasömu máli. Þér lætur vel að því að leiðbeina öðrum um þessar mundir. Rómantíkin liggur í loftinu.
Fjölskyldan er þér ofarlega í huga um þessar mundir og er það af hinu góða. Gættu þess þó að vanrækja ekki alveg vini þína.
Félagar þínur lenda í deilum og þú lendir trúlega í hlutverki sáttasemjara. Það skiptir miklu máli að þér takist að stilla til friðar.
Fjármálin þarfnast athugunar, ef þú ætlar að gera stórinnkaup eða jafnvel kaupa fasteign væri réttara að leita aðstoðar sérfræðinga
Fyrri helmingur dagsins verður rólegur en eitthvað óvænt bíður þín í kvöld, líklega í sambandi við félagslífið.
Hugmyndir þínar ná ekki fram að ganga enda ertu kannski óþarflega bjartsýnn. Þú ættir að temja þér ögn meira raunsæi.
Núna er rétti tíminn til að kynnast fólki betur. Þér bjóðast ýmis tækifæri í félagslífinu á næstunni.
Láttu ekki slá þig út af laginu ef þú ert viss um að þú sért á réttri leið. Það koma oft fram einhverjir sem þykjast vita allt betur en aðrir.
Þú átt von á einhverju skemmtilegu sem þú hefðir alls ekki búist við.
Vinur þinn er eitthvað niðurdreginn þessa dagana og þarf á þér að halda. Talaðu við hann og reyndu að benda honum á björtu hliðarnar á tilverunni.
Mál þín taka skyndilegum stakkaskiptum og staða þín á vinnumarkaðnum batnar til mikilla muna. Viðræður sem þú tekur þátt í reynast gagnlegar.
Þú verður fyrir minni háttar vonbrigðum fyrri hluta dagsins. Þú þarft þó ekki að örvænta því að kvöldið verður óvenjulega skemmtilegt.