Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Gerðu eins og þér finnst réttast í máli sem þú þarft að taka afstöðu til. Þó að vinir þínir séu boðnir og búnir til að hjálpa stoðar það lítt.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Dagurinn verður mjög ánægjulegur og þú eyðir honum með fólki sem þér líður vel með. Ástin blómstrar um þessar mundir.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Óvæntur atburður setur strik í reikninginn og gæti raskað áætlun sem gerð var fyrir löngu. Vertu þolinmóður við þína nánustu í dag.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ástarlífið blómstrar um þessar mundir. Kvöldið verður fjörugt og þú verður hrókur alls fagnaðar.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Ekki vera að velta þér upp úr hlutum sem skipta litlu sem engu máli. Hugsaðu heldur um að sinna þínum nánustu og rækta vinskapinn við vini þína.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Mikill erill er hjá einhverjum í kringum þig og þú skalt ekki móðgast þó að ekki sé mikill tími fyrir þig.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Gættu þess að ganga ekki fram af neinum með framferði þínu. Það ríkir mikil spenna og samkeppni á vinnustað þínum.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú virðist í tilfinningalegu ójafnvægi og sjálfstraust þitt er með minnsta móti. Þetta ástand varir þó ekki lengi.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú munt eiga góðan dag í faðmi fjölskyldunnar. Þér finnst þú vera ákaflega heppinn að eiga allt þetta góða fólk að.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú ert í góðu ástandi til að taka ákvarðanir í sambandi við minni háttar breytingar. Þú átt auðvelt með að gera upp hug þinn.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ert fullur bjartsýni og sérð framtíðina í rósrauðum bjarma. Ástin er í góðum farvegi.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Dagurinn verður rólegur framan af en þú hefur meira að gera þegar líður á kvöldið.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Farðu varlega í fjárfestingar og skoðaðu fjármálastöðuna vel áður en þú festir kaup á dýrum hlut. Fjölskyldan stendur þétt saman.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Eirðarleysi þitt gerir þér erfitt fyrir að sinna því sem þú þarft. Ástarsamband sem þú ert í gengur mjög vel um þessar mundir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þú færð fréttir sem þú átt eftir að vera mjög hugsandi yfir. Þú verður að vega og meta stöðu þína áður en þú hefst nokkuð að.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér gengur vel að ráða fram úr minni háttar vanda og hlýtur mikið lof fyrir. Þú gengur í gegnum erfitt tímabil í ástarmálum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ekki vera hræddur við að endurskoða hug þinn varðandi ýmis mál. Batnandi manni er best að lifa. Dagurinn verður óvenjulegur og spennandi.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Forðastu rökræður við fólk sem er á annarri skoðun en þú. Ekki er líklegt að vel gangi að setja niður deilur sem kunna að blossa upp.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þér verður vel tekið af fólki sem þér er ókunnugt og þú færð óvænt hrós. Áhyggjur sem þú hefur eru ástæðulausar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú hefur óþarflega miklar áhyggjur af sjálfum þér. Þú ættir að leita leiða til að auka sjálfstraust þitt. Það er gott að deila áhyggjum sínum með góðum vinum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú ert í góðu andlegu jafnvægi og nýtur þess að dunda heima við. Þeir sem hafa verið mikið á ferðalögum undanfarið eru sérlega rólegir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú býður heim vinum þínum, alla vega fyllist allt af fólki hjá þér síðdegis og í kvöld. Dagurinn verður allsérstæður vegna þessa.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú gætir þurft að leiðrétta misskilning sem kom upp ekki alls fyrir löngu.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þér gengur vel að leysa verkefni sem ollu þér vandræðum fyrir nokkru. Þú ert í góðu jafnvægi og dagurinn verður skemmtilegur.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Eitthvað sem hefur beðið afgreiðslu í langan tíma fær loksins afgreiðslu. Ágreiningur kemur upp í vinahópnum en úr honum leysist þó fljótt.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú hefur verið hálfdapur undanfarið en nú er bjartari tími fram undan. Þér gengur vel í vinnunni og færð hrós fyrir. Ástin blómstrar.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Vinir þínir standa einkar vel saman um þessar mundir og gætu verið að undirbúa ferðalag eða einhverja skemmtun.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ættir að vera spar á gagnrýni því að hún gæti komið þér í koll. Vertu tillitssamur við þína nánustu.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Félagslífið er blómlegt hjá þér og þú þarft víða að koma við. Það er ekki laust við að þér finnist það einum of mikið af því góða.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú færð góðar hugmyndir í dag en það er hægara sagt en gert að koma þeim í framkvæmd. Þú færð lítinn stuðning.