Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Fáðu álit annarra á áætlun þinni í sambandi við vinnuna áður en þú framkvæmir hana. Þú ættir að fara varlega í viðskiptum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Ekki taka mark á fólki sem er neikvætt og svartsýnt. Málefnaleg gagnrýni er af hinu góða en baktal og öfund leiðir ávallt til ills.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú upplifir eitthvað skemmtilegt í dag og átt góðar stundir með vinum þínum. Vertu þolinmóður við yngstu kynslóðina.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Mál sem hefur lengi verið að þvælast fyrir þér leysist fyrr en varir og það verður þér mikill léttir. Kvöldið lofar góðu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Það verður leitað til þín um ráðleggingar. Þú skalt leggja þig fram við að veita þá aðstoð sem þú getur en ekki gefa ráð um það sem þú hefur lítið vit á.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Mál vina þinna hafa mikil áhrif á þig núna og þú verður með hugann við þau fyrra hluta dags. Ástarmálin lofa góðu.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Gættu þess að fara varlega með peninga í dag og notaðu skynsemina. Varastu kæruleysi.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú gætir þurft að leiðrétta misskilning sem kom upp ekki alls fyrir löngu.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú verður fyrir óvæntu happi í fjármálum en gætir þurft að bíða eftir rétta tækifærinu til að nýta þér hagnaðinn. Félagsmálin ganga vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Staðfesta er mikilvæg í dag. Þú ert vinnusamur og eitthvað sem þú gerir vekur athygli fólks í kringum þig.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Fyrri hluti dagsins verður óvenjulegur og skemmtilegur. Þú ert í góðu skapi og fullur atorku. Þú ættir að fara í heimsókn í kvöld.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ert sérstaklega vel upplagður þessa dagana og kemur miklu í verk. Einhver spenna liggur í loftinu varðandi félagslífið.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Dagurinn ætti að verða fremur rólegur og einstaklega þægilegur. Þú átt skemmtileg samtöl við fólk sem þú umgengst allajafna mikið.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Fremur viðburðalítill dagur en þó berast þér góðar fréttir frá vini. Leggðu þig fram um að halda friðinn á heimilinu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þín bíður skemmtilegur dagur og viðburðaríkt kvöld. Lífið brosir við þér þessa dagana og þú skalt njóta þess til hins ýtrasta.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Mál sem hefur lengi beðið úrlausnar verður senn leyst og er það þér mikill léttir. Þú finnur þér nýtt áhugamál.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú ert í rólegu skapi í dag og munt eiga góðan og notalega dag. Þér gefst nægur tími til að ljúka því sem þú þarft.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér gengur óvanalega vel að einbeita þér og erfiðu verkefni sem þú hefur tekið að þér miðar vel áfram. Taktu því rólega í kvöld.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þó að þú sért búinn að skipuleggja hjá þér næstu daga út í hörgul gætir þú þurft að breyta áætlunum þínum vegna erfiðleika hjá einhverjum í kringum þig.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Gættu þess að gleyma engu mikilvægu þótt þú hafir í mörg horn að líta. Það gætu orðið einhverjir árekstrar í einkalífinu.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Gefðu fjölskyldu þinni og vinum meiri gaum en þú hefur gert undanfarið. Þú munt fá það margfalt endurgoldið í vináttu og hlýhug.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ættir ekki að vera of langrækinn við vini þína. Það leiðir ekkert af sér nema leiðindi fyrir alla aðila. Þetta er nokkuð sem þú ræður vel við.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Vinnan gengur að vissu leyti fyrir í dag og það er best fyrri þig að ljúka áríðandi verkefnum sem fyrst.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Dagurinn verður heldur viðburðalítill og þú ættir að einbeita þér að vinnunni fyrri hluta dagsins. Hittu vini eða ættingja í dag.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þér finnst þú hjakka stöðugt í sama farinu. Annaðhvort þarft þú að einbeita þér að því að finna nýtt starf eða áhugamál.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Nú er einkar hagstætt að gera viðskiptasamning og þú ættir að nota þér það ef þú ert í þeim hugleiðingum. Ef rétt er á málum haldið fer fjárhagur þinn batnandi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Hversu mikið sem er að gera hjá þér þessa dagana þá skaltu gefa þér tíma til að setjast niður öðru hvoru og láta þér líða vel.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Fjölskyldan krefst mikils af þér og þér finnst þú ekki rísa undir þeim kröfum að öllu leyti. Þú veltir fyrir þér að leita leiða til að auka tekjur þínar.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þér berst óvænt tilboð sem kemur róti á hug þinn. Ef rétt er á málum haldið getur þú hagnast verulega í fleiri en einum skilningi.