Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)
Forðastu að vera nálægt fólki sem lætur allt fara í taugarnar á sér. Þú gætir lent í deilum við samstarfsfélaga.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Skemmtilegur dagur er framundan en þú ættir að fara varlega í fjármálum. Kvöldið verður rólegt og þú færð ef til vill gesti í heimsókn.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Einhver gerir mistök í máli sem snertir þig persónulega. Niðurstaðan gæti orðið sú að sjálfstraust þitt biði hnekki.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Veikindi eða slappleiki gætu sett strik í reikninginn hjá þér og tafið fyrir. Greiðsemi fellur í góðan jarðveg hjá vinnufélögum þínum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú hefur áhrif á ákvarðanir fólks og verður að gæta þess að misnota þér það ekki.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Sjálfstraust þitt er ekki í hámarki fyrri hluta dagsins en þú verður sjálfsöruggari og ánægðari eftir því sem líður á daginn.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Varaðu þig á fólki sem vill stjórna þér og skipta sér af því sem þú ert að gera. Finndu meiri tíma fyrir sjálfan þig.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Gerðu eins og þér finnst réttast í ákveðnu máli fremur en að fara eftir því sem kunningjar þínir segja. Þetta á ekki síst við varðandi tilfinningarmálin.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og ef til vill átt þú von á gestum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ástin gerir vart við sig en ekki er víst að hún standi lengi. Reyndu bara að njóta augnabliksins, það er vel þess virði.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú þarft að taka afstöðu í máli sem þú hefur ýtt á undan þér allt of lengi. Því lengur sem þú dregur að ákveða þig þeim mun erfiðari verður ákvörðunin.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Það er kominn tími til að leita á önnur mið og víkka sjóndeildarhringinn. Ekki taka neinar skyndiákvarðanir heldur skaltu hugsa þig vel um áður en þú breytir um umhverfi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Það er hætt við því að þú vanmetir andstæðing þinn eða keppinaut. Þú þarft að hafa töluvert fyrir því að komast þangað sem þú ætlar þér.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Veikindi eða slappleiki gætu sett strik í reikninginn hjá þér og tafið fyrir því sem þú ætlar þér að gera. Greiðasemi þín fellur í góðan jarðveg hjá vinnufélögum þínum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ýmislegt nýtt mun að öllum líkindum koma fram í dagsljósið í dag. Ef þú ert of ýtinn er hætta á að þú fáir þínu ekki framgengt.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Miklar breytingar verða á lífi þínu á næstunni og búferlaflutningar eru líklegir. Þú færð óvenjulegar fréttir í kvöld.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Hlustaðu á það sem aðrir hafa fram að færa. Það þarf ekki að þýða að þú gerir ekki það sem þér finnst réttast.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Vertu raunsær og ekki treysta öllum sem þú hittir. Þú veist best hverjum er treystandi og skalt ekki víkja frá skoðunum þínum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Dagurinn verður rólegur og þú færð næði til að hugsa um framtíðina. Hugaðu að peningamálunum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Einhver órói gerir vart við sig innan vinahópsins og þú sérð fram á að þurfa að koma málunum í lag. Ekki hafa of miklar áhyggjur þetta á allt saman eftir að jafna sig.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þetta verður rólegur dagur og þér gefst tími til að gera ýmislegt sem hefur setið á hakanum. Þú átt góð samskipti við fólk, sérstaklega af hinu kyninu.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú færð fréttir sem þú ert ekki nógu ánægður með en þú ættir að geta fengið hjálp til að leysa vandamálið. Kvöldið verður annasamt.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Ekki gera neitt nema að vel athuguðu máli. Það er ýmislegt sem þú þarft að varast og er nauðsynlegt að fara varlega.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Einhver hefur mikil áhrif á daginn hjá þér og þú eyðir stórum hluta dags í að gera öðrum til geðs. Kvöldið verður rólegt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum og rækta samband þitt við ákveðna manneskju sem þú ert að fjarlægjast. Rómantíkin kemur við sögu í dag.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Einhver reynir að fá þig til samstarfs en þú ert ekki viss um að þig langi til þess. Vertu hreinskilinn, allt verður þá auðveldara.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Ákveðinn atburður sem átti sér stað nýlega setur mikinn svip á líf þitt þessa dagana og veldur þér leiða. Reyndu að horfa á björtu hliðarnar.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú átt góð samskipti við fólk í dag og þetta er góður tími til að endurnýja gömul kynni. Þú færð mikla athygli frá einhverjum.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú munt ná góðu sambandi við manneskju sem þú hefur lengi reynt að nálgast en án árangurs. Ekki er ólíklegt að þetta samband eigi eftir að standa lengi og ganga vel.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Dagurinn byrjar vel og þú verður vitni að skemmtilegri uppákomu fyrri hluta dagsins.