
Tíska og hönnun

Fögnuðu komu nýju línunnar Cheer Up!
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði línu sinni Cheer Up! á HönnunarMars um helgina og var fullt út úr dyrum í versluninni. Hildur hannaði sérstaka djammtoppa úr afgangsefnum sem seldir voru til styrktar UN Women en þeir seldust upp.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall þrjú
Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars. Garðar og Hlín Helga ræða í dag við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt, Eygló Margréti Lárusdóttur fatahönnuð og stofnanda vörumerkisins EYGLÓ, Baldur Helga Snorrason arkitekt og Arnar Inga Viðarsson, grafískan hönnuð.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall tvö
Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars hátíðinni með vel völdum einstaklingum, sem og lifandi samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur þrjú
Hátíðin HönnunarMars 2020 er í fullum gangi og lýkur á sunnudag. Helgin í borginni verður stútfull af íslenskri hönnun og áhugaverðum viðburðum og sýningum.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall eitt
Í hönnunarspjallþættinum verður farið yfir sýningar og viðburði HönnunarMars hátíðarinnar með vel völdum einstaklingum á meðan hátíðin stendur yfir sem og samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Íslensk hönnun er íslensk hönnun þó að hún sé framleidd erlendis
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman sýnir litríka og bjarta línu á HönnunarMars sem hófst formlega í dag.

Heimsþekktir hönnuðir á verðlaunasýningu á HönnunarMars
Félag íslenskra teiknara verður með tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020, sem fer fram dagana 24. til 28. júní. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.

Íslenska ullin og hennar einstaka áferð með mikilvægt hlutverk í línu innblásinni af lóninu
Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður og eigandi Farmers Market, hannaði sérstaka línu í samstarfi við Bláa lónið sem kynnt verður á HönnunarMars.

Snýr aftur til L‘Oreal eftir deilur um rasisma
Fyrirsætan Munroe Bergdorf hefur gengið aftur til liðs við snyrtivörurisann L‘Oreal eftir að fyrirtækið sleit samstarfi við hana fyrir tæplega þremur árum síðan

Saumaði þjóðbúning og smíðaði á hann skart fyrir útskriftina
Anna Guðlaug Sigurðardóttir útskriftarnemandi í gull- og silfursmíði hlaut á dögunum verðlaun fyrir góðan árangur á stúdentsprófi samhliða faggrein. Anna Guðlaug er 22 ára gömul og ein af yngstu nemendum Tækniskólans sem lokið hafa námi í faginu.

FÍT-verðlaunin 2020: Skjáir
Í flokknum Skjáir voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru vefsvæði, gagnvirk miðlun, hreyfigrafík og að lokum opinn stafrænn flokkur.

FÍT-verðlaunin 2020: Prent
Næstu daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum stakar myndlýsingar, myndlýsingarraðir, myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir, veggspjöld, bókakápur, bókahönnun og nemendaflokkur.

Metfjöldi innsendinga í FÍT 2020: Það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi
Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaunanna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri en úrslitin verða kynnt á Vísi næstu daga.

Stjörnurnar sem vöktu athygli á rauða dreglinum
Hildur Guðna náði aftur á lista Vogue yfir best klædddu stjörnurnar.

Hildur Guðna á lista Vogue yfir best klæddu stjörnurnar
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir vakti athygli á BAFTA verðlaununum í gær.

Mikil vinna á bak við búninga Shakiru og J.Lo
Það tók mörg hundruð klukkutíma að handlíma kristala og steina á átta búninga fyrir söngkonurnar.

Fékk draumaverkefnið í Tókýó
Stílistinn og förðunarfræðingurinn Sigrún Ásta Jörgensen fer til Japan í fyrramálið til að vinna tískuverkefni með Tessuti.

Hildur ljómaði á Grammy hátíðinni
Hildur Guðnadóttir tónskáld vann í gær Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl.

Valdís Steinarsdóttir tilnefnd til Formex Nova verðlaunanna
Vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir hefur hlotið tilnefningu til sænsku hönnunarverðlaunanna Formex Nova 2020.

Spegla sig mikið í hvor annarri
Fatahönnuðirnir Magnea Einarsdóttir og Anita Hirlekar segjast vera sterkari saman en í sitthvoru lagi. Þær hugsa mikið um umhverfissjónarmið og kolefnissporið þegar kemur að hönnuninni.

H&M kynnir Billie Eilish línu og Snapchat filter
H&M hefur hannað merch línu fyrir tónlistarstjörnuna Billie Eilish.

Fjölmennt á förðunarnámskeiði á Fosshótel
Á dögunum skipulögðu Sara Dögg Johansen og Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir stærsta förðunarnámskeið sem haldið hefur verið hér á landi.

Genki Instruments hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands
Wave eftir Genki Instruments hlaut í gærkvöldi Hönnunarverðlaun Íslands árið 2019.

„Einstakt tækifæri fyrir íslenska hönnuði“
Verðlaun Art DirectorsClubEurope (ADC*E) verða veitt í 29. sinn í Barcelona í byrjun nóvember næstkomandi.

Fékk innblásturinn í gönguferð um Reykjavík í fæðingarorlofinu
Um helgina frumsýndi Geysir línuna Fýkur yfir hæðir sem er fimmta lína Ernu Einarsdóttur fyrir Geysi.

Fýkur yfir hæðir: Tískusýning Geysis í Hafnarhúsinu
Sýningin Fýkur yfir hæðir í heild sinni.

Hæfileikaríkur og vinsæll
Mariano di Vaio er tískubloggari, leikari, fyrirsæta og fatahönnuður. Hann er með flesta fylgjendur á Instagram af öllum karlkyns tískubloggurunum þar eða 6,1 milljón talsins.

Samstarf tveggja kanóna
Í dag verður kynnt samstarf Kormáks & Skjaldar og 66°Norður. Um er að ræða jakka þar sem stílbrigði beggja framleiðenda mætast.

Virgil Abloh hannaði brúðarkjól Hailey Bieber
Hailey Bieber birti í gær myndir af fallega brúðarkjólnum sínum.

As We Grow valið besta umhverfisvæna barnavörumerkið
Íslenska fatahönnunarmerkið As We Grow hlaut gullverðlaun á Junior Design Awards 2019.