Viðskipti erlent

Bjartsýnin dvínar á Wall Street, hlutabréf falla í verði
Hlutabréfamarkaðurinn á Wall Street opnar með rauðum tölum í dag og greinilegt að bjartsýnin sem einkennt hefur markaðinn á síðustu dögum fer dvínandi.

Hörð kreppa framundan fyrir kaffiunnendur
Slæmar fréttir eru í vændum fyrir kaffiunnendur og sérstaklega þá sem nota sykur í kaffið sitt. Heimsmarkaðsverð á kaffi og sykri hefur hækkað gífurlega frá áramótum og er þeirra hækkana farið að gæta á neytendamarkaðinum.

Fyrrum Kaupþingsstjóri ráðinn bankastjóri Bretadrottningar
Michael Morley fyrrum yfirmaður eignastýringar hjá Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hefur verið ráðinn sem forstjóri Coutts, banka Elísabetar Bretadrottningar.

Vorið byrjar vel hjá McDonald‘s
Hátekjuskattar þeir sem boðaðir voru í fjárlagafrumvarpinu sem breski fjármálaráðherrann Alistair Darling kynnti þann 22. apríl síðastliðinn hafa hlotið misjöfn viðbrögð.

Ráðherra ver milljarða innspýtingu
„Ástandið kemur ekki til með að breytast á einni nóttu,“ segir Kaoru Yosano, fjármálaráðherra Japans, en aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýndar.

Tekist á um Arsenal
Kaupsýslumaðurinn Stephen Perry reynir hvað hann getur til að tryggja dreifða eignaraðild í enska knattspyrnufélaginu Arsenal. Bandaríski viðskiptajöfurinn Stan Kroenke sem á 28,3% hlut í félaginu reyndi nýverið að fjárfesta í 8% sem er í eigu Carr-fjölskyldunnar. Þá er búist við að rússenski stálrisinn Alisher Usmanov blandi sér einnig í baráttuna en nú þegar á hann 25% hlut í knattspyrnufélaginu.

Breskir fasteignasjóðir töpuðu 37 milljörðum á bankahruninu
Alls hafa 13 af 45 fasteignasjóðum (building societies) Bretlands tilkynnt um að hafa tapað á hruni íslensku bankanna í haust. Í heildina nemur tapið 195 milljónum punda eða um 37 milljörðum kr.

Kröfuhafar Landsbankans á Guernsey fá 25% í ágúst
Þeir sparifjáreigendur sem áttu innistæður hjá Landsbankanum á Guernsey munu fá 25% af þeim borgaðar út í ágúst n.k. Þetta kemur fram í frétt á BBC en fólkið hefur þegar fengið 30% af fé sínu endurgreitt.

Störfum fækkaði um hálfa milljón á mánuði
Í aprílmánuði fækkaði störfum um 539 þúsund í Bandaríkjunum sem er talsvert minna en undanfarna mánuði. Spár gerðu ráð fyrir að 600 þúsund störf myndu tapast. Í mars fækkaði störfunum um 699 þúsund. Frá því í desember 2007 hefur efnahagslíf Bandaríkjanna tapað 5,7 milljón starfi.

Ferilskrár umsækjenda reyndust gallaðar í 94% tilvika
Sérfræðingar hafa komist að því að 94% þeirra sem sækja um störf eiga á hættu að fá ekki starfið vegna fingurbrjóta í ferilskrám(CV) sínum. Hér er um að ræða atriði eins og ranga stafsetningu, lélegt málfar og uppsetningu á skránum.

Ísland skapar mikla umræðu í Noregi um ESB aðild
Mikil umræða er nú í Noregi um aðildarviðræður við Evrópusambandið og hvort ekki sé réttast að Noregur fylgi Íslandi eftir fari svo að Íslendingar hefji sínar viðræður við ESB.

Toyota með mesta tap Japanssögu
Japanski bílarisinn Toyota tapaði 765,8 milljörðum jena, jafnvirði rúmra 968 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári.

Uppgjör útrásarvíkinga í Svíþjóð - 288 milljarðar horfnir
Í ársbyrjun 2008 áttu íslensku útrásarvíkingarnir ráðandi hluti í sænskum fyrirtækjum og félögum sem metnir voru á 18 milljarða sænskra kr. eða 288 milljarða kr. Í dag er þetta allt horfið eða „gufað upp" eins og það er orðað í úttekt sænska tímaritsins Veckans Affärer.

Álverðið að nálgast 1.600 dollara markið
Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka og er nú að nálgast 1.600 dollara fyrir tonnið.

Tíu bankar kolféllu á álagsprófi
Alls féllu tíu bandarískir bankar á álagsprófi sem fyrir þá var lagt á dögunum. Prófið á að ganga úr skugga um það hversu viðbúnir bankarnir eru til þess að bregðast við aðstæðum fari kreppan versnandi. Alls vantaði bönkunum tíu 74,6 milljarði dollara til þess að standast prófið.

Evrópubankinn lækkar stýrivexti niður í 1%
Stjórn Seðlabanka Evrópu (ECB) ákvað í dag að lækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig og niður í 1%. Er vextirnir þá orðnir þeir lægstu í sögu Evrópusambandsins.

Heimsmarkaðsverð á olíu í uppsveiflu
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað töluvert í þessari viku og er nú að nálgast 60 dollara á tunnuna. Norðursjávarolían er komin í 57,70 dollara tunnan og hefur hækkað um 1,5 dollara eða tæp 3% í dag. Fyrir síðustu helgi var verðið í kringum 50 dollara á tunnuna.

Bandarískir bankar þurfa tugi milljarða dollara í viðbót
Bandarískir bankar þurfa allt að 65 milljarða dollara í viðbót frá stjórnvöldum til að halda sér gangandi. Þetta er niðurstaða úr sérstöku álagsprófi sem framkvæmt var nýlega hjá 19 af stærstu bönkum Bandaríkjanna.

Kreppan eykur eftirspurn eftir ljóshærðum fyrirsætum
Fleiri umboðsskrifstofur fyrir fyrirsætur upplifa nú vaxandi eftirspurn eftir ljóshærðum fyrirsætum. Þetta er það sama og gerðist í kreppunni miklu í kringum 1930.

Mótmæli vegna Kaupþings við Downing Street 10
Mótmælendur munu safnast saman við Downing Street 10, bústað forsætisráðherra Bretlands í dag til að mótmæla 6,5 milljón punda tapi krabbameinssamtakanna Christie hjá Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi.

Nokia gefur 100 hugmyndir
Þeir eru gjafmildir hjá Nokia þessa dagana því nú stendur til að dusta rykið af einum 100 viðskiptahugmyndum sem fyrirtækið notaði ekki og gefa ýmsum minni, nýrri og verr staddari fyrirtækjum landsins þær - algjörlega án endurgjalds.

JPMorgan seldi hlut Kaupþings í Sampo á 24 milljarða
JPMorgan Chase bankinn hefur selt hlut Kaupþings í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo fyrir 24 milljarða kr. að því er segir í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni.

Kveður við bjartari tón
Skilyrt upplífgandi skilaboð var að finna í orðum Bens Bernanke, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, samkvæmt umfjöllun greiningardeildar fjárfestingabankans Merrill-Lynch.

Kaupþing fékk tveggja milljarða högg í kauphöllinni í Osló
Kaupþing varð fyrir tveggja milljarða kr. gengistapi í kauphöllinni í Osló í dag. Hlutir í tryggingarfélaginu Storebrand féllu um 11,5% í framhaldi af tilkynningu félagsins um mikið tap á fyrsta ársfjórðungi ársins.

Sparisjóðabankinn óskar eftir gjaldþroti á Miami Beach
Sparisjóðabankinn hefur óskað eftir því að eigendur strandhótels á Miami Beach verði teknir til gjaldþrotaskipta. Krafa bankans á hendur eigenda hljóði upp á 8,5 milljónir dollara eða rúmlega milljarð kr.

Paris Hilton ætlar að bjarga heiminum úr kreppunni
Dekurdúllan Paris Hilton ætlar að leggja sitt af mörkum til að bjarga heiminum úr kreppunni. Hún segir að þetta muni hún gera með því að versla sem aldrei fyrr.

Mikið tap á rekstri Storebrand í Noregi
Blóðrauðar tölur í uppgjöri norska tryggingarfélagsins Storebrand hafa komið sérfræðingum í opna skjöldu enda er tap félagsins á fyrsta ársfjórðungi ársins langt umfram væntingar þeirra.

Airbus kannar möguleika tengda áliðnaði
Næstu tuttugu ár verða yfir 6.000 flugvélar teknar úr notkun. Airbus segir horft til sambýlis við félög í áliðnaði. Forstjóri Alcoa Fjarðaáls segir marga sýna samstarfi áhuga.

FIH bankinn sækir um 37 milljarða ríkisaðstoð
FIH bankinn í Danmörku hefur sótt um 1,7 milljarða danskra kr. aðstoð, eða um 37 milljarða, frá dönskum stjórnvöldum. Umsóknin er í gegnum svokallaðan „bankpakke II“ sem ætlaður er til aðstoðar þeim dönsku bönkum sem eiga í erfiðleikum vegna fjármálakreppunnar.

Vindmyllustyrkir ESB runnu í vasa mafíunnar á Sikiley
Lögregluyfirvöld á Sikiley standa nú fyrir umfangsmikilli rannsókn á vindorkugeira eyjarinnar en talið er að vindmyllustyrkir frá Evrópubandalaginu hafi runnið í vasa mafíunnar á eyjunni í gegnum spillta embættis- og stjórnmálamenn.