
Viðskipti erlent

Novo Nordisk orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu
Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk hefur hagnast um rúmlega tólf hundruð milljarða íslenskra króna það sem af er ári. Þessi methagnaður einn og sér er ástæða þess að hagvöxtur í Danmörku er jákvæður í stað þess að vera neikvæður, en fyrirtækið er nú talið verðmætasta fyrirtæki Evrópu.

Disney kaupir Comcast úr Hulu
Forsvarsmenn Disney hafa keypt Comcast út úr streymisveitunni Hulu. Fyrirtækið mun borga minnst 8,6 milljarða dala fyrir um þriðjung í streymisveitunni, sem var með um 48 milljónir notenda í sumar.

Carlsberg í hart við Pútín og Rússland
Danski bruggrisinn Carlsberg hefur stigið fyrstu skrefin í átt að því að sækja bætur frá Rússlandi eftir að Pútín Rússlandsforseti skrifaði undir tilskipun sem kom dótturfyrirtæki Carlsberg undir Rússa.

Virði X helmingi minna á einu ári
Starfsmenn X, áður Twitter, fengu í gær hlutabréf í fyrirtækinu en fram kom í meðfylgjandi skjölum að fyrirtækið væri metið á 19 milljarða dala. Auðjöfurinn Elon Musk keypti fyrirtækið fyrir rétt rúmu ári á 44 milljarða dala, eða um sex billjónir króna.

Facebook án auglýsinga með nýrri áskriftarleið
Meta mun nú bjóða upp á mánaðarlega áskriftarleið þar sem notendur geta greitt til að nota samfélagsmiðlana Facebook og Instagram án auglýsinga. Enn verður boðið upp á ókeypis aðgang að miðlunum með auglýsingum.

Taylor Swift orðin milljarðamæringur
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur hagnast gífurlega af nýjasta tónleikaferðalagi sínu, sem kallast Eras, og kvikmyndin um þetta ferðalag er að gera góða hluti í kvikmyndahúsum um allan heim. Þar að auki var hún að endurútgefa níu ára gamla plötu, sem talin er að verði með vinsælli plötum ársins.

Vilja setja alþjóðlegan auðlegðarskatt á auðjöfra
Alþjóðlegur auðlegðarskattur á auðjöfra er meðal tillaga sem gætu dregið verulega úr undanskotum á heimsvísu og skilað um 250 milljörðum dala í ríkissjóði heimsins á hverju ári. Í nýrri skýrslu frá Skattastofnun Evrópusambandsins segir að auðjöfrar beiti skúffufélögum til að borga nánast enga skatta.

Segja upp allt að fjórtán þúsund manns
Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia hyggst segja upp á milli níu þúsund til fjórtán þúsund starfsmanna fyrir lok árs 2026. Er um að ræða aðhaldsaðgerðir. Um er að ræða rúmlega sextán prósent af heildarfjölda starfsfólks.

Musk íhugar að loka á X í Evrópu
Auðjöfurinn Elon Musk er sagður hugleiða að loka samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, í Evrópu. Ástæðan er sögð vera sú að hann vilji forðast það að þurfa að fylgja reglugerðum Evrópusambandsins.

Skoða að rukka nýja notendur um dal á ári
Nýir notendur X, áður Twitter, í Nýja Sjálandi og á Filippseyjum, munu þurfa að greiða einn dal á ári fyrir þau forréttindi að nota samfélagsmiðilinn. Þetta er tilraunaverkefni hjá X, sem kallast Not A Bot, eða Ekki þjarki, og á að draga úr fjölda svokallaðra botta.

Microsoft fær loksins að kaupa Activision Blizzard
Bandaríska tæknifyrirtækið Microsoft hefur fest kaup á leikjafyrirtækinu Activision Blizzard. Um er að ræða stærstu kaupin í sögu leikjabransans.

Claudia Goldin nýr handhafi Nóbels í hagfræði
Bandaríski hagfræðingurinn Claudia Goldin hefur hlotið hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfreð Nóbel árið 2023. Verðlaunin fær hún fyrir rannsóknir sínar á afkomu kvenna á vinnumarkaði.

Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans?
Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45.

Danskir ellilífeyrisþegar mala gull á megrunarlyfjum
Ofsagróði danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk vegna sölu þess á megrunalyfinu Wegovy mun hafa gríðarleg áhrif á efnahagslegan uppgang í Danmörku og mikinn gróða í för með sér fyrir fjölmarga Dani sem eru hluthafar í fyrirtækinu. Hagfræðingur segir þó ýmsar hættur felast í ástandinu fyrir efnahag Dana.

Costco selur gull í massavís
Verslunarrisinn Costco hefur selt smáar gullstangir í massavís í Bandaríkjunum að undanförnu. Fyrirtækið hefur verið að selja einnar únsu smágullstangir og eru þær vinsælli en þvottaefni.

Boeing í basli með Starliner
Forsvarsmenn Boeing eiga í basli með geimfarið Starliner og hefur fyrirtækið tapað minnst 1,4 milljörðum dala á þróun þess. Þessi þróun hefur gengið brösuglega í gegnum árin og hefur fyrsta geimskoti þess ítrekað verið frestað.

Stefna á verðhækkun hjá Netflix
Forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix stefna á að hækka áskriftaverð á næstunni. Verkfalli handritshöfunda lauk nýverið og stendur til að bíða þar til verkfalli leikara lýkur einnig, áður en verðhækkanirnar verða tilkynntar en verið er að skoða að hækka verðið víða um heim. Fyrst stendur þó til að hækka verðið í Norður-Ameríku.

Fimmtán hundruð krónur fyrir Facebook án auglýsinga
Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, íhuga að bjóða notendum Instagram og Facebook í Evrópu að borga tæplega fimmtán hundruð krónur fyrir áskrift. Í staðinn myndi fyrirtækið ekki nota persónuupplýsingar samfélagsmiðlanotenda til að sýna notendunum auglýsingar.

Kvartað undan of heitum iPhone 15
Margir notendur iPhone 15 síma Apple hafa kvartað yfir því að símarnir hitni mjög mikið. Því hefur verið haldið fram að símar hafi orðið allt að 47 gráður en þetta virðist sérstaklega eiga við öflugri útgáfur iPhone 15.

Enn vandræði á fasteignamarkaði í Kína
Vandræðum kínverska fjárfestingafélagsins Evergrande Group er ekki lokið enn. Forsvarsmönnum félagsins, sem er skuldsettasta fasteignafélag heimsins, gengur illa að endurskipuleggja lán þess og hefur það leitt til áhyggja meðal fjárfesta í Asíu.

Drög að samningi hjá handritshöfundum í Hollywood
Handritshöfundar í Bandaríkjunum segja að nú liggi fyrir drög að samningum sem gætu bundið enda á verkfall þeirra sem staðið hefur yfir frá byrjun maímánaðar.

Rupert Murdoch sest í helgan stein
Ástralsk-bandaríski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur ákveðið að setjast í helgan stein og hætta sem formaður stjórna bæði Fox og News Corp. Murdoch, sem er 92 ára gamall, er mjög umdeildur vegna umsvifa hans á fjölmiðalmarkaði.

Óli tölva segir enga hættu stafa af iPhone 12
Ólafur Kristjánsson, eða Óli tölva eins og hann er gjarnan kallaður, segir enga ættu stafa af farsímanum iPhone 12, en frönsk stjórnvöld felldu snjallsímann nýlega á geislunarprófi.

Leita að lömuðu fólki fyrir tilraunir með heilatölvur
Forsvarsmenn fyrirtækisins Neuralink eru byrjaðir að auglýsa eftir fólki sem er tilbúið til að láta tengja tilraunabúnað við heila sinn. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, stofnaði fyrirtækið en starfsmenn þess vinna að því að þróa smáar tölvur sem eiga að greina hugsanir manna og gera fólki kleift að stýra öðrum tækjabúnaði með hugsunum sínum.

Katy Perry seldi réttinn að tónlist sinni fyrir þrjátíu milljarða
Bandaríska söngkonan Katy Perry hefur selt rétt að öllum fimm plötum hennar til útgáfufyrirtækisins Litmus Music fyrir 225 milljónir Bandaríkjadala, eða um þrjátíu milljarða króna.

ESB sektar TikTok um rúmlega fimmtíu milljarða
Samfélagsmiðillinn TikTok hefur hlotið sekt upp á rúmlega fimmtíu milljarða króna vegna brota á gagnalögum Evrópusambandsins. Sektin er sú stærsta sem lögð hefur verið á forritið af eftirlitsaðilum.

Ósáttir við fullyrðingar um iPhone geislun
Apple hefur heitið því að uppfæra hugbúnað í iPhone 12 snjallsímum sínum í Frakklandi eftir að frönsk stjórnvöld felldu vöruna á sérstöku geislunarprófi. Fyrirtækið segist hinsvegar ekki sættast á niðurstöður franskra yfirvalda.

Verkföll hafin hjá bílarisunum í Bandaríkjunum
Verkalýðsfélag starfsmanna í bílaiðnaði í Bandaríkjunum hefur nú hafið verkfallsaðgerðir eftir að samningaviðræður við stóru bílarisana þrjá í Banndaríkjunum fóru endanlega út um þúfur.

Nýir símar, úr og heyrnartól
Forsvarsmenn Apple kynntu í dag nýja kynslóð snjallsíma, heyrnartóla og snjallúra á kynningu í Cupertino í Bandaríkjunum. Nýr iPhone, sem er nú búinn USB-C hleðslutengi, leit dagsins ljós, í fjórum mismunandi útgáfum.

Hlutabréf í Apple falla vegna fregna af iPhone-banni í Kína
Hlutabréf í Apple hafa fallið um sex prósent, næstum 200 milljarða dala, á aðeins tveimur dögum. Ástæðan eru fregnir af því að stjórnvöld í Kína hafi bannað opinberum starfsmönnum að nota iPhone.