Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2025 21:37 Rupert (94) og Lachlan (54) Murdoch árið 2018. Getty/Drew Angerer Meðlimir Murdoch-fjölskyldunnar hafa lokið áratugalangri baráttu um hver fær að halda í stjórnartaumana á viðskipta- og fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch. Lachlan Murdoch hefur gert margra milljarða dala samkomulag við systkini sín um að hann muni áfram stjórna veldinu og í senn hefur hann áfram tryggt að fjölmiðlar eins og Fox, New York Post og Wall Street Journal verði áfram íhaldssamir.
Auðjöfurinn aldraði hóf rekstur á fjölmiðlamarkaði með einu dagblaði á sjötta áratug síðustu aldar en rekur nú dagblöð og sjónvarpsstöðvar víða um heim. Murdoch keyptu kvikmyndaframleiðsluverið Twentieth Century Fox árið 1985 og ári síðar keypti hann nokkrar sjónvarpsstöðvar og stofnaði Fox Broadcasting. Sjónvarpsstöðina Fox News stofnaði hann árið 1996 en hún er nú vinsælasta fréttastöð Bandaríkjanna. Auk þess að eiga Fox News, á hann einnig Times of London, Wall Street Journal, Sky News í Ástralíu og Sun, svo einhverjir miðlar séu nefndir. Þetta veldi felur í sér mikil pólitísk áhrif í þremur heimsálfum. Rupert Murdoch settist í helgan stein árið 2023 og Lachlan tók þá við sem formaður stjórna Fox og News Corp. Lachlan og Rupert reyndu í fyrr að gera einhliða breytingar á skilmálum sjóðs fjölskyldunnar sem áttu að tryggja yfirráð Lachlans yfir Murdoch-veldinu eftir að Rupert Murdoch fellur frá en hann er 94 ára gamall. Samkvæmt umræddum skilmálum áttu öll börn hans að fá jafnan atkvæðarétt. Rupert vildi hins vegar að Lachlan (54 ára), sem þykir hvað líkastur föður sínum, hugmyndafræðilega séð, yrði einráður yfir veldinu, á kostnað eldri systkina sinna Pru, Liz og James. Þau þrjú þykja mun frjálslyndari en Lachlan og Rupert. Dómstólar komu hins vegar í veg fyrir það í fyrra. Sjá einnig: Fær ekki að breyta skilmálum fjölskyldusjóðsins New York Times segir að eftir réttarhöldin í fyrra hafi fjölskyldan sest niður við samningaborðið og nú sé samningur í höfn. Samkomulagið felur meðal annars í sér að Lachlan verði áfram við stjórn veldisins til að minnsta kosti 2050 en hin systkinin þrjú fái hvert þeirra hlutabréf í félögunum að virði 1,1 milljarðs dala. Það samsvarar um 135 milljörðum króna. Hlutabréf þessi eru í áðurnefndum fjölskyldusjóð en hann verður leystur upp. Nýr sjóður verður stofnaður fyrir Lachlan og yngri systur hans tvær, þær Grace og Chloe, og mun hann innihalda meirihluta hlutabréfa í bæði Fox og News Corp.
Bandaríkin Bretland Ástralía Fjölmiðlar Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Viðskipti innlent Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira