Viðskipti innlent

Hagnaður Samherja nam 8,7 milljörðum króna
Hagnaðurinn af rekstri Samherja hf. nam 8,7 milljörðum króna á síðasta ári.

Hekla tapaði 31 milljón króna
Bílaumboðið Hekla tapaði 31 milljón króna fyrir skatta árið 2018. Til samanburðar hagnaðist fyrirtækið um 175 milljónir króna fyrir skatta árið áður. Mestu munar um að fjármunagjöld jukust úr 139 milljónum króna í 351 milljón króna.

Dráttur á notkun MAX-véla Icelandair helsta ástæða meiri svartsýni en áður
Tafir sem orðið hafa á því að Icelandair geti tekið Boeing 737 MAX þoturnar eru stærsta ástæða þess að Seðlabankinn er svartsýnni á það en áður hversu hratt ferðaþjónustan muni vinda ofan af áföllum sem yfir hana dunið að undanförnu.

Kaldalón skráð á markað á föstudaginn
Fasteignaþróunarfélagið Kaldalón verður skráð á First North markaðinn næstkomandi föstudag. Forsvarsmenn Kaldalóns hafa að undanförnu fundað með lífeyrissjóðum og markaðsaðilum til að kynna félagið.

Þjóðin stendur nú einkar vel að vígi
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá.

Bein útsending: Ásgeir Jónsson útskýrir fyrstu stýrivaxtalækkun sína
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að lækka meginvexti bankans um 0,25 prósentustig niður í 3,5 prósent á fundi sem hefst klukkan 10 í Seðlabankanum.

Nýr sölustjóri Völku fyrir Norðurlöndin
Norðmaðurinn Kim André Gabrielsen hefur verið ráðinn sem sölustjóri Völku fyrir Norðurlöndin.

Meta Arion 15 prósentum yfir markaðsgengi
Fjárfestar eru ekki að taka að fullu tillit til líklegrar sölu á Valitor ásamt frekari arðgreiðslum og endurkaupum á eigin bréfum í verðlagningu sinni á Arion banka

Íslandsbanki hættir föstu samstarfi um auglýsingar
Íslandsbanki hefur ákveðið ljúka föstu samstarfi við auglýsingastofuna Brandenburg og sinna markaðsmálum innanhúss í meiri mæli en áður hefur verið.

Stýrivextir lækka í 3,5 prósent
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,5%.

Myndu kljúfa markaðinn í tvennt
Fyrirhugaðar breytingar á verðtryggingunni munu veikja verðmyndun vaxta. Hagfræðingur segir hættu á að bankar muni eiga erfitt með að fjármagna fasteignalán á nýrri vísitölu og því verði lánskjör verri.

Eftirlaunasjóður Boeing með hálft prósent í Arion
Eftirlaunasjóður starfsmanna bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing er á meðal þrjátíu stærstu hluthafa Arion banka með eignarhlut að jafnvirði tæplega 600 milljóna króna.

Lífeyrissjóðir bættu við sig í Högum fyrir um 1,8 milljarð
Íslenskir lífeyrissjóðir keyptu að langstærstum hluta bréf FISK-Seafood, dótturfélags Kaupfélags Skagfirðinga, í Högum þegar útgerðarfélagið seldi allan 4,6 prósenta hlut sinn í smásölurisanum í síðustu viku fyrir samtals 2,3 milljarða króna

Heimilin sækja frekar í breytilega vexti
Algjör viðsnúningur hefur orðið á því hvers konar lánavexti heimili landsins sækjast í. Mikill meirihluti nýrra óverðtryggðra útlána banka er nú á breytilegum vöxtum. Vaxtabreytingar Seðlabankans hafa þannig meiri áhrif á heimilin.

Farþegum fjölgaði hjá Strætó og taprekstur minnkar
Farþegafjöldi hjá Strætó bs. jókst um sex prósent á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Strætó bs.

Rekstur Símans stöðugur en hagnaður minnkar lítillega
Tekjur á öðrum ársfjórðungi félagsins árið 2019 námu 7.115 milljónum króna samanborið við 7.153 milljónir króna á sama tímabili 2018 og lækkuðu um 0,5% milli tímabila.

Smálánafyrirtækið Ecommerce segir íslensk lög ekki gilda um sína starfsemi
Smálánafélagið Ecommerce er ósammála þeirri ákvörðun Neytendastofu að íslensk lög gildi um smálán félagsins og ætlar að kæra hana til áfrýjunarnefndar neytendamála.

CCEP eignast Einstök á Íslandi
Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemd við það að CCEP, Coca Cola European Partners Íslandi ehf., eignist vörumerkið Einstök á Íslandi af bandaríska fyrirtækinu Einstök Beer Company L.P.

Gerist upplýsingafulltrúi UNICEF
Sigurður hefur undanfarin 12 ár starfað sem blaðamaður, fyrst á DV en síðustu ár á Fréttablaðinu.

Akureyringar fá sína H&M
Um er að ræða fjórðu verslun sænsku keðjunnar sem opnar hér á landi.

Seldi fyrir 460 milljónir í Símanum
Bandaríski vogunarsjóðurinn Eaton Vance Management seldi í gær 100 milljón hluti í Símanum. Sjóðurinn átti 488 milljónir hluta en eru 388 milljón í dag.

Taka söluþóknanir fyrir fram
Ríkisskattstjóri hefur ekki tekið sérstaklega saman þær fjárhæðir sem tengjast erlendum bókunarsíðum á borð við Booking og Expedia. Ólíkt Booking þá tekur Expedia sínar söluþóknanir strax.

3,3 milljarða hagnaður hjá Orkuveitunni á fyrri helmingi ársins
3,3 milljarða hagnaður var á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur á fyrri helmingi þessa árs.

Þjónustuafgangur jókst þrátt fyrir fækkun ferðamanna
Þróunina má rekja til þess að Íslendingar ferðast minna.

300 þúsund króna peysa Herra Hnetusmjörs
Klárlega besta markaðsstönt ársins, segir Bjarni Ákason framkvæmdastjóri um frammistöðu rapparans Herra Hnetusmjörs í Garðpartýi Bylgjunnar á Menningarnótt.

Smálánafyrirtækið eCommerce braut gegn ákvæðum laga um neytendalán
Í úrskurði Neytendastofu í máli eCommerce 2020 er fyrirtækinu gert skylt að breyta stöðluðu eyðiblaði og lánssamningi.

Hrafnhildur til Skipulagsstofnunar
Hrafnhildur Bragadóttir lögfræðingur hefur verið ráðin sviðsstjóri stefnumótunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun.

Drífa nýr eigandi hjá Attentus
Drífa Sigurðardóttir hefur bæst í eigendahóp Attentus en hún hóf störf hjá félaginu sem ráðgjafi árið 2017.

Times fjallar enn um sæstrengsáhuga Bretans
Breski fjárfestirinn Edi Truell, sem vinnur að því að koma á fót sæstreng á milli Bretlands og Íslands, er í frétt breska blaðsins The Times í gær enn sagður þrýsta á bresk yfirvöld um að stjórnvöld þar í landi greiði götu verkefnisins.

Skoða flutning MAX-vélanna
Það er nú til skoðunar hjá Icelandair að flytja Boeing 737 MAX-vélar sínar úr landi.