Viðskipti innlent

Auður nýr framkvæmdastjóri hjá Advania
Auður Inga Einarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri innviðalausna Advania. Hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár og þar áður sem forstöðumaður notendalausna.

Fjórtán flugmenn Play sögðu upp í gær
Fjórtán af 125 flugmönnum flugfélagsins Play sögðu upp störfum í gær eftir að hafa fengið atvinnutilboð frá Icelandair.

Landsbankinn hækkar vextina
Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær.

Sekta Samskip um 4,2 milljarða vegna samráðs
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða og telur fyrirtækið hafa með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum með ólögmætu samraði við Eimskip. Samskip hafnar niðurstöðu eftirlitsins.

Einar Þórarinsson nýr framkvæmdastjóri Ljósleiðarans
Einar Þórarinsson hefur verið í ráðinn í starf framkvæmdastjóra Ljósleiðarans. Einar hefur áður starfað hjá Sidekick Health, Advania og Vodafone. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Buðu flugmönnum miklar launahækkanir í gær
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, staðfestir að flugmönnum félagsins og flugstjórum hafi verið boðnar launahækkanir í gær. Samkvæmt Túrista.is eru hækkanirnar allt að 53 prósent.

Ekki ein uppsögn borist
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir engan flugmann hafa sagt upp störfum nú fyrir mánaðamótin. Ef átján flugmenn myndu segja upp störfum á einu bretti yrði félagið að tilkynna það á markaði.

Róberti Aroni falið að markaðssetja Miðborgina
Róbert Aron Magnússon hefur verið ráðinn sem markaðs og verkefnastjóri Miðborgin – Reykjavík – Félagasamtök, nýs markaðsfélags miðborgarinnar sem var stofnað í mars síðastliðnum.

Fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna um vaxtahækkun
Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag.

Kvöldfundur vegna atvinnutilboðs Icelandair til átján flugmanna Play
Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag.

Hagnaður Regins jókst um 66 prósent
Hagnaður fasteignafélagsins Regins jókst um rúm 66 prósent á milli ára en fyrstu sex mánuði ársins nemur hann um 6,1 milljarð króna, samanborið við 3,7 milljarða á sama tíma í fyrra.

Tapið minna og sölutekjur meiri en í fyrra
Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra.

Atlantsolía á raforkusölumarkað
Atlantsorka hefur hafið sölu á rafmagni til heimila og fyrirtækja um land allt og er þar með nýtt fyrirtæki á raforkusölumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Thomas Skov lætur af störfum hjá Kviku
Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar.

Sameina svið hjá Icelandair
Leiðakerfis-og sölusvið og þjónustu-og markaðssvið flugfélagsins Icelandair verða sameinuðu í eitt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Ölfus stofnar Títan
Sveitarfélagið Ölfus hefur stofnað Orkufélagið Títan ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Arðsemi fyrst núna að nálgast arðsemi norrænna banka
Bankastjóri Arion banka segir að bankinn fagni skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra. Arðsemi stóru bankanna þriggja sé ekki of mikil. Arðsemi eigin fjár Arion banka var 14,5 prósent á fyrri helmingi ársins.

Veitingastaðnum El Faro lokað
Eigendur veitingastaðarins El Faro, sem staðsettur er við Lighthouse Inn, nærri Garðskagavita í Garði á Suðurnesjum, hafa ákveðið að loka staðnum í næsta mánuði.

Hagnaður Sýnar á fyrri hluta árs eykst
Rekstrarhagnaður Sýnar hf nam 1.002 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 39 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 574 milljónir króna samanborið við 322 milljónir á fyrra ári.

Sóttu eldisstjóra til Færeyja
Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Heðin N. Joensen frá Færeyjum í stöðu eldisstjóra fyrirtækisins. Í tilkynningu frá First Water segir að Heðin hafi yfir 30 ára reynslu af fiskeldi og endurnýtingu vatnskerfa.

Verðbólgan aftur á uppleið
Verðbólga mælist 7,7 prósent miðað við verðlag í ágúst og hækkar í fyrsta sinn milli mánaða eftir samfellda lækkun frá mælingu í apríl.

Bein útsending: Húsnæðisþing 2023
Húsnæðisþing HMS og innviðaráðuneytisins fer fram á Hilton Reykjavik Nordica í dag milli klukkan 9 og 12:30 og verður hægt að fylgjast með þinginu í spilara að neðan.

Væntir þess að bankastjórar láti neytendur njóta hagræðingar
Verðskrár viðskiptabankanna eru flóknar og ógagnsæjar og stofna ætti vefsíðu þar sem neytendur geta gert verðsamanburð. Þetta er meðal þess sem starfshópur um greiningu og arðsemi íslensku bankanna leggur til í nýrri skýrslu.

Bein útsending: Lilja kynnir skýrslu um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna
Menningar- og viðskiptaráðherra hefur til kynningar á skýrslu starfshóps ráðuneytisins um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Kynningin hefst klukkan 16:30.

Alvotech fær markaðsleyfi í Egyptalandi
Alvotech og Bioventure, dótturfyrirtæki GlobalOne Healthcare Holding LLC, tilkynntu í dag að lyfjaeftirlit Egyptalands hafi veitt leyfi til framleiðslu og sölu á AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira.

Landsvirkjun hagnaðist um tæpa sextán milljarða
Hagnaður Landsvirkjunar á fyrri helmingi ársins var 15,6 milljarðar króna, samanborið við 18,8 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Á síðasta ári skilaði hagnaður Landsnets hluta af niðurstöðu ársins.

Oddvar Haukur tekur við af Sigríði sem kveður eftir 23 ára starf
Oddvar Haukur Árnason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Farfugla ses. / HI Iceland og tekur hann við starfinu af Sigríði Ólafsdóttur sem kveður eftir 23 ár hjá félaginu.

Formaður Læknafélags Íslands til Hrafnistu
Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum, hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Hrafnistu frá og með 1. nóvember.

Sýn kaupir Bland
Sýn hefur keypt sölutorgið Bland af Heimkaupum. Mun Sýn í framhaldi taka yfir rekstur sölutorgsins.

Costco gert að greiða 20 milljón króna stjórnvaldssekt vegna olíuleka
Umhverfisstofnun hefur lagt 20 milljón króna stjórnvaldssekt á Costco Wholesale Iceland ehf. vegna brota á ákvæðum um mengunarvarnir.