Viðskipti innlent
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 334 ›
Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Störf á tímamótum er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem fram fer á Hilton Nordica og hefst klukkan 9. Hægt verður að fylgjast með dagskránni í beinu streymi. Viðskipti innlent 11.2.2025 08:35
Það besta og skrýtnasta í dýrasta auglýsingaplássi veraldar Auglýsingar í sjónvarpi standa enn fyrir sínu á öld samfélagsmiðla, ekki síst í tengslum við risaviðburði eins og bandarísku Ofurskálina í nótt. Þetta er mat sköpunarstjóra hjá auglýsingastofunni Ennemm. Við rýnum með honum í Ofurskálarauglýsingar, sem geta kostað auglýsendur marga milljarða. Viðskipti innlent 10.2.2025 21:02
Tólf hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 Tólf einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2025 sem veitt voru í dag við á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök hvatningarverðlaun en þetta er í sextánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent. Viðskipti innlent 10.2.2025 17:16
Bein útsending: Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi afhent Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 verða afhent á Grand Hótel klukkan 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með afhendingunni í beinu streymi. Forseti Íslands, Frú Halla Tómasdóttir , afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp. Viðskipti innlent 10.2.2025 15:32
Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Viðskiptakonan og bæjarfulltrúinn Brynja Dan Gunnarsdóttir er orðin eini eigandinn að Extraloppunni eftir að hún keypti út hjónin Andra Jónsson og Guðríði Gunnlaugsdóttur sem hafa átt fyrirtækið á móti Brynju frá stofnun fyrirtækisins árið 2019. Brynja þakkar þeim Andra og Guðríði fyrir samstarfið síðustu árin og segir margt spennandi framundan hjá fyrirtækinu, meðal annars er nýtt app á leiðinni sem muni auka þjónustu við viðskiptavinir. Viðskipti innlent 10.2.2025 14:52
Lokatilraun til að bjarga loðnuvertíð Hafrannsóknastofnun í samvinnu við loðnuútgerðir gerir núna lokatilraun til að finna loðnu við landið í nægjanlegu magni svo unnt sé að gefa út veiðikvóta áður en loðnan hrygnir og drepst. Að öðrum kosti blasir við loðnubrestur, annað árið í röð. Viðskipti innlent 10.2.2025 10:51
Varar við glötuðum tækifærum í kringum almyrkvann á næsta ári Hætta er á að Íslendingar missi af meiriháttar tækifæri með því að gera ekki ráðstafanir til þess að taka við ferðamönnum þegar almyrkvi á sólu sést hér á næsta ári, að mati fjármálaráðgjafa. Gistipláss og bílaleigubílar séu þegar fullbókaðir en lítið beri á undirbúningi fyrir aðsóknina. Viðskipti innlent 10.2.2025 10:37
Þau hlutu UT-verðlaunin í ár Íslensku gagnaverin atNorth, Borealis Data Center og Verne Global hlutu um helgina heiðursverðlaun UT-verðlauna Ský árið 2025 fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni. Þá fengu Bara tala, Noona, Treble Technnologies, HS Orka - Auðlindastýring, Laki Power og Festi verðlaun í undirflokkum UT-verðlaunanna. Viðskipti innlent 10.2.2025 07:46
Greiða Póstinum 618 milljónir fyrir alþjónustu Póstinum hefur verið falið það hlutverk fyrir hönd ríkisins að sinna alþjónustu á Íslandi til ársins 2030, fyrir póstsendingar bæði innanlands og til annarra landa. Undir alþjónustu fellur öll bréfaumsýsla upp að tveimur kílóum og pakkaumsýsla upp að 10 kílóum innanlands og 20 kílóum erlendis frá. Viðskipti innlent 9.2.2025 13:36
Geta breytt sér í kúreka eða kappaksturshetju með gervigreind Gestir UT messunnar, sem fer fram um helgina í Hörpu, geta látið taka af sér mynd og látið breyta henni um leið með gervigreind. Sem dæmi verður hægt að breyta sér í íþróttastjörnu, ofurhetju, geimfara eða kúreka svo dæmi séu tekin. Viðskipti innlent 8.2.2025 09:48
Landsbankinn lækkar vexti Landsbankinn hefur tilkynnt um breytta vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 13. febrúar næstkomandi. Arion Banki, Indó, Íslandsbanki og nú Landsbankinn hafa allir lækkað vexti eftir að stýrivextir Seðlabankans lækkuðu um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Viðskipti innlent 7.2.2025 18:59
Sýn sendir frá sér afkomuviðvörun Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir árið 2024 verði um sjö hundruð milljónir króna sem er undir fyrri spám um afkomu. Ástæðuna má rekja til eldsvoða hjá fyrirtækinu auk þess sem áskrifta- og auglýsingasala var undir væntingum. Viðskipti innlent 7.2.2025 18:15
Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Útvarpsstjóri segir til standa að auglýsa á næstunni starf dagskrárstjóra Ríkisútvarps sjónvarps eftir að Skarphéðinn Guðmundsson lét af störfum um áramótin. Viðskipti innlent 7.2.2025 13:13
Bein útsending: UTmessan Ráðstefnudagur hinnar árlegu UTmessu í Hörpu fer fram milli klukkan 10 og 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með útsendingu í beinu streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 7.2.2025 09:59
Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Rauð vaxtaviðvörun hefur verið í gildi á Íslandi í á þriðja ár. Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sem fagnar því að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti um fimmtíu punkta í gær en bendir þó á að stýrivextir standi í átta prósentum sem sé ansi mikið. Viðskipti innlent 6.2.2025 20:12
Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Landsréttur hefur snúið dómi héraðsdóms, sem dæmdi Kópavog til að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested 1,4 milljarða króna, við. Magnús Pétur krafðist alls 5,6 milljarða króna í málinu, sem faðir hans heitinn höfðaði upphaflega. Viðskipti innlent 6.2.2025 17:15
Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Gengið hefur verið frá samkomulagi um helstu skilmála um kaup Heima á öllu hlutafé Grósku ehf.og Gróðurhússins ehf.. Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Heildarvirði viðskiptanna er metið á 13,85 milljarða króna. Birgir Már Ragnarsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Andri Sveinsson verða stærstu eigendur Heima eftir viðskiptin. Viðskipti innlent 6.2.2025 16:29
Fjárfestar tóku vel í uppgjör Festi Hagnaður Festi, sem rekur meðal annars Krónuna og Elko, á fjórða ársfjórðungi 2024 dróst umtalsvert saman milli ára. Það er einna helst að rekja til 750 milljóna króna stjórnvaldssektar sem lögð var á félagið vegna samkeppnislagabrota. Hagnaður var þó talsvert meiri árið 2024 en árið á undan. Gengi hlutabréfa félagsins hækkaði umtalsvert í miklum viðskiptum í dag. Viðskipti innlent 6.2.2025 15:43
Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs Arna, Sky Lagoon, Stefán Einar Stefánsson, Elko og Alfreð voru verðlaunuð sem bestu íslensku vörumerkin árið 2024 við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá vörumerkjastofunni Brandr sem hefur staðið að verðlaunaafhendingunni undanfarin ár. Viðskipti innlent 6.2.2025 13:25
„Held þeir vilji hafa þetta á Samfylkingarpóstinum“ Stjórn Sameinaða útgáfufélagsins, sem aðallega heldur utan um útgáfu Heimildarinnar, er búin að samþykkja kaupin á vefnum Mannlífi. Reynir Traustason ritstjóri þar snýr sér senn að öðru. Viðskipti innlent 6.2.2025 13:19
Öllum skerðingum aflétt Landsvirkjun hefur tilkynnt öllum stórnotendum raforku á suðvesturhluta landsins að skerðingum á afhendingu raforku verði aflétt frá og með morgundeginum 7. febrúar. Viðskipti innlent 6.2.2025 12:57
Arion tilkynnir um lækkun vaxta Arion banki hefur nú tilkynnt um lækkun óverðtryggðra vaxta, kjörvaxta bílalána og yfirdráttarvaxta, líkt og Íslandsbanki og Indó, í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans að lækka stýrivexti um 50 punkta í gær. Viðskipti innlent 6.2.2025 12:48
Mayoral til Íslands Spænska barnafatakeðjan Mayoral opnar tvær nýjar verslanir á Íslandi í vor í gegnum umboðssamning. Annars vegar er um að ræða verslun í Smáralind, sem áðu hýst verslun Vodafone, og hins vegar netverslun. Viðskipti innlent 6.2.2025 12:29
Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís Rafn Heiðar Ingólfsson hefur verið ráðinn veitingastjóri Olís. Viðskipti innlent 6.2.2025 12:13
Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Í desember síðastliðnum seldi Kerecis hugverkaréttindi félagsins til danska móðurfélagsins Coloplast. 180 milljarða kaup Coloplast á íslensku hugviti eru að fullu skattskyld hér á landi og áætlaðar skattgreiðslur nema hátt í fjörutíu milljörðum króna. Viðskipti innlent 6.2.2025 11:38
Íslandsbanki tilkynnir vaxtabreytingu Íslandsbanki hefur ákveðið að breyta vöxtum inn- og útlána og taka mið af stýrivaxtalækkun Seðlabankans sem var kynnt í morgun og hljóðaði upp á 0,5 prósentustig. Breytingin mun taka gildi þann 12. febrúar næstkomandi. Viðskipti innlent 5.2.2025 21:50
Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa í átta prósentum eftir að peningastefnunefnd bankans lækkaði vexti um 0,5 prósentustig. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni. Annar tveggja eigenda Mikluborgar telur lækkunina munu auðvelda stórum hópi að komast í gegnum greiðslumat en segir um leið að betur megi ef duga skal. Viðskipti innlent 5.2.2025 20:03
Tollastríðið gæti haft gríðarleg áhrif á íslenskan efnahag Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig og standa vextirnir nú í átta prósentum. Seðlabankastjóri segir tollastríð Bandaríkjanna við helstu viðskiptaþjóðir geta haft mikil áhrif á efnahagsmálin hér á landi. Ísland ætti að forðast þátttöku í þeim deilum. Viðskipti innlent 5.2.2025 12:17
Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar Skagi hf. er nú formlega skráð sem nafn móðurfélags VÍS trygginga hf., Fossa fjárfestingarbanka hf. og Íslenskra verðbréfa hf. Viðskipti innlent 5.2.2025 10:22
Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að lækka stýrivextina um 50 punkta á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 5.2.2025 09:03