Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. ágúst 2026 07:01 Á höfuðborgarsvæðinu hefur sölutími íbúða verið lengstur í Garðabæ. Vísir/Vilhelm Íbúafjölgun á landinu er nálægt lágspá sveitarfélaganna um fólksfjölgun fyrir árið 2026. Íbúum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi en lágspáin gerir ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 5.000 á árinu öllu.
Gangi lágspáin eftir er þörf á 2.610 nýjum íbúðum árið 2026. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar segir að 5.800 íbúðir séu skráðar í byggingu á landinu öllu og þar af eru tæplega fimmtungur á 5. matsstigi. Alls var 864 kaupsamningum þinglýst í júnímánuði, sem er 9,5 prósent aukning frá því í maí en 13 prósent fækkun frá sama tíma í fyrra. Tæplega 4.900 kaupsamningum hefur verið þinglýst á landinu öllu á fyrstu sex mánuðum ársins, sem er 14 prósent fækkun frá því í fyrra. Meðalsölutími íbúða hefur lengst mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en í júní mældist þriggja mánaða meðaltal hans um 142 dagar. Að jafnaði tók um 87 daga að selja þær íbúðir sem seldust á höfuðborgarsvæðinu frá apríl og fram í júní en sölutíminn hefur verið lengstur í Garðabæ, um 137 dagar. „Á landsbyggðinni getur meðalsölutími verið mjög breytilegur á milli mánaða þar sem kaupsamningar eru að jafnaði fáir í hverjum mánuði. Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur meðalsölutími íbúða mælst að jafnaði um 108 dagar og hefur því lengst um fjórðung frá því á sama tímabili í fyrra,“ segir í skýrslunni. Þá segir að hlutfallslega fáar íbúðir seljist yfir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu, eða aðeins um tíu prósent. Hlutfallið er farið að nálgast það sem þekktist fyrir heimsfaraldurinn en þá var það átta prósent.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira