Hugsanlega tímamót í hlýnun jarðar 11. október 2004 00:01
Koltvísýringsmengun í andrúmsloftinu hefur aukist mikið síðustu ár. Aukningin kemur mjög á óvart þar sem ekki er samhengi milli hennar og útblásturs koltvísýrings á sama tímabili. Þetta veldur vísindamönnum áhyggjum yfir því að hlýnun jarðar kunni að aukast hraðar en búist hefur verið við. Bandaríski vísindamaðurinn Charles Keeling sagði í viðtali við breska blaðið The Independent að aukning koltvísýrings í andrúmsloftinu væri áhyggjuefni þar sem hún kynni að vera til marks um kaflaskipti í hlýnun jarðar. Keeling hefur mælt koltvísýringsmagn í andrúmsloftinu um áratugaskeið. Hann segir það nú hafa gerst í fyrsta skipti tvö ár í röð að koltvísýringsmagn aukist um meira en tvo hluta af milljón í andrúmsloftinu, hingað til hafi það aðeins gerst á margra ára fresti og þá í tengslum við El Nino hafstrauminn. Nú eigi það hins vegar ekki við. Eitt af því sem Keeling telur mögulegt er að þetta sé til marks um breytingar á náttúru jarðar sem geri henni ókleift að sporna jafn vel gegn aukningu koltvísýrings og áður. Það geti leitt til hlýnunar loftslags með aukinni hættu á þurrkum, uppskerubresti, hækkun yfirborðs sjávar og tíðari óveðrum svo dæmi séu tekin.
Erlent Fréttir Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira