Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2026 22:03 Til vinstri er raunverulegi José Luis Ábalos, fyrrverandi ráðherra sósíalista, þungur á brún í dómsal í spillingarmáli gegn honum. Til hægri er gervigreindarútgáfa af honum að tala um að vændiskaup og mútuþægni séu vinstrimennska í myndbandi sem Lýðflokkurinn birti. Vísir Gervigreind er nú í fyrsta skipti notuð sem vopn í kosningabaráttu á Spáni. Lýðflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkur landsins, notaði tæknina til þess leggja keppinautum sínum orð í munn, meðal annars um vændiskaup og spillingu.
Sósíalistaflokkurinn birti myndband af Pedro Sánchez, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins, þar sem hann sagðist stoltur vinstrimaður. Myndbandið var óbeint svar við Javier Milei, forseta Argentínu, sem heimsótti Spán í vikunni en hann hefur notað orðið orðið „zurdo“, sem bókstaflega þýðir „örvhentur“ sem skammaryrði yfir vinstrimenn. Sí, soy zurdo. #ZurdosYOrgullosos #ZurdasYOrgullosas https://t.co/VTGKqR9Mjg— Pedro Sánchez (@sanchezcastejon) October 21, 2026 „Ef það að hækka lífeyrisgreiðslur er að vera vinstrisinnaður, þá er ég vinstrisinnaður,“ segir Sánchez í myndbandinu og hreykir sér af fleiri aðgerðum ríkisstjórnar sinnar með sama hætti. Aðeins nokkrum klukkustundum síðar birti Lýðflokkurinn myndband í sama stíl þar sem gervigreindartól hafði verið notað til þess að líkja eftir nokkrum framámönnum sósíalista og leggja þeim vafasöm orð í munn. „Ef það að fara út að kaupa sér hórur og að þiggja ólöglegar þóknanir er vinstrisinnað, þá er ég vinstrisinnaður,“ heyrist maður sem lítur út og hljómar eins og José Luis Ábalos, fyrrverandi samgönguráðherra ríkisstjórnar Sánchez, sem hrökklaðist úr embætti í skugga spillingarmáls. Hann var einnig sakaður um að kaupa þjónustu vændiskvenna. View this post on Instagram A post shared by Partido Popular (@partidopopular) „Ef það að fá prófessorsstöðu þökk sé því að maðurinn minn sé forsætisráðherra er vinstrinsinnað, þá er ég vinstrisinnuð,“ segir fígúra sem líkist Begoñu Gómez, eiginkonu Sánchez, sem er ákærð fyrir misferli og að notfæra sér stöðu sína til framgangs í starfi við háskóla í Madrid. Tekið er fram í myndbandinu að það sé gert með gervigreind en með hálfgegnsæju og smáu letri sem er illgreinanlegt í stórum hluta þess. Íhuga málsókn Stjórnendur Sósíalistaflokksins segja spænska dagblaðinu El País að þeir íhugi að stefna Lýðflokknum vegna myndbandanna. „Þau hafa aldrei neina stefnu til að bjóða þessu landi upp á aðra en hávaða, lygar og svívirðingar,“ sagði Rebeca Torró, ritari sósíalista, í viðtali við útvarpsstöðina Cadena SER. Spænsku þingkosningarnar fara fram 29. nóvember. Sánchez boðaði til þeirra með skyndi eftir að minnihlutastjórn hans kom ekki í gegn frumvarpi um umbætur í húsnæðismálum í byrjun mánaðar. Fjöldamótmæli vegna húsnæðismála hafa geisað á Spáni undanfarnar vikur og hafa mótmælendur meðal annars slegið upp tjaldbúðum á Sólartorgi í miðborg Madridar og í fleiri stórborgum.
Spánn Kosningar á Spáni Gervigreind Samfélagsmiðlar Upplýsingatækni Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira