Hljómsveitin gafst upp 27. desember 2004 00:01 "
Þeir sem eru fastagestir hjá okkur ganga fyrir en þegar þeir eru búnir að taka sín sæti komast aðrir að," segir Stefán Sigurðsson, framkvæmdastjóri Perlunnar, um nýársfagnaðinn í ár. "Við gerum ráð fyrir um það bil 270 manns, en gestum verður boðið upp á sjö rétta máltíð og frábæra skemmtun." Mikil leynd hvílir yfir matseðlinum svo og öðru því sem fram fer í Perlunni þetta kvöld. "Við erum löngu búnir að ákveða matseðilinn, skemmtiatriðin og hljómsveitina en gefum ekkert upp, ekki einu sinni gestunum," segir Pétur. "Tvö skemmtiprógrömm verða í gangi, annað undir borðum og svo flugeldasýning síðar um kvöldið." Pétur segir að mikið fjör sé á nýársfagnaði Perlunnar og langt í frá að fólk sé svo fínt að það geti ekki skemmt sér. "Ég man eftir að minnsta kosti tveimur skiptum sem hljómsveitin var alveg búin að missa röddina og gestir tóku við söngnum. Við höldum áfram fram á rauða nótt en það er einmitt orðið algengt núna að fólk eyði gamlárskvöldi í faðmi fjölskyldunnar en fari svo og skemmti sér ærlega á nýarskvöld." Skemmtunin í Perlunni kostar 25.000 krónur á manninn, en innifalið er kampavín, léttvín og koníak og konfekt eftir matinn.
Jól Mest lesið Þorpið fær nýja ásýnd á hverju ári Jól Unnur Birna: Hugsar til ömmu á jólunum Jól Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá Jól Heitt súkkulaði í rúminu á jóladag Jól Ljóðið um aðventukertin fjögur Jólin Innri friður Jólin Jólakúlur Jólin Ferðatæki, tölvupopp og fótanuddtæki Jólin Aðventan er alltaf fallegur tími Jól Gleðilegt jólaglögg frá matreiðslumanni í heimsklassa Jól