Menning

Listahátíð helguð samtímamyndlist

Listahátíð í Reykjavík árið 2005 verður að mestu helguð samtímamyndlist og verður þungamiðja hátíðarinnar umfangsmikil sýning á verkum svissnesk-þýska listamannsins, Dieters Roth.

Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík var kynnt í Listasafni Reykjavíkur í dag en hátíðin verður sett í safninu þann 14. maí næstkomandi og stendur til 5. júní. Þetta er í fyrsta skipti sem listahátíðin er haldin á oddatöluári en í fyrra var ákveðið að halda hátíðina árlega.

Meðal dagskráratriða eru barkasöngur frá Mongólíu, Fado-söngur frá Portúgal, finnskur dans og sænska söngkonan Anne Sofie von Otter heldur tónleika. 

Í tilefni hátíðarinnar verður efnt til hringflugs um landið svo fólki gefist tækifæri til að vera viðstatt opnanir sýninga víða um landið. Áhersla verður lögð á samtímamyndlist og verður þungamiðjan sýning á verkum þýsk-svissneska listamannsins Dieters Roth sem bjó á Íslandi um skeið.

Miðasala hófst á Netinu klukkan 16 í dag en almenn miðasala hefst 1. apríl. Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, segir þetta umfangsmestu hátíðina hingað til. Boðið sé upp á tuttugu sýningar í Reykjavík, nágrennnasveitarfélöguum og allan hringinn í kringum landið, að ónefndum eyjum og annesjum. Allt sé undirlagt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.