Menning

50 Cent á hollustubraut

Hipp-hopp stjarnan ógurlega 50 Cent vill skilja við ofbeldisfulla fortíð sína og verða talsmaður heilsusamlegs lífernis -- með því að setja á markað sína eigin tegund af vítamíni. 50 Cent hefur nú þegar látið til sín taka á heilsufæðismarkaðnum með því að hefja framleiðslu á vítamíndrykk sem kallast Formula 50. "Ég vildi ekki styðja við framleiðslu áfengra drykkja og orkudrykkir gera fólk brjálað. Ég vildi heldur ekki taka þátt í verkefni sem endurspeglar ekki lífsstíl minn. Ég æfi reglulega og held mér í formi. Menn ættu því ekki að verða undrandi þótt ég setji fjölvítamín á markað," segir 50 Cent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.