Lífið

Tryggðu sér sigurinn á ó­trú­legan hátt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörkuviðureign í síðasta þætti af Kviss.
Hörkuviðureign í síðasta þætti af Kviss.

Í fyrstu viðureigninni í 8-liða úrslitum Kviss mættust HK og Tindastóll. HK-ingar tefldu fram þeim Hjörvari Hafliðasyni og Andra Má Eggertssyni en fyrir hönd Stólanna mættu þeir Sverrir Bergmann og Auðunn Blöndal.

Úr varð heldur betur skemmtileg viðureign enda menn með mikið keppnisskap í báðum liðum.

Úrslitin ræðast í næstsíðustu spurningunni. Þá var spurt um mann sem starfað hefur með tónlistarmanninum Páli Óskari. Hann vann með honum að plötunni Stanslaust stuð sem kom út árið 1993. Tveir menn unnu plötuna með Páli. Annar þeirra var Jóhann Jóhannsson heitinn og spurt var um hinn. Sá er einkar hæfileikaríkur tónlistarmaður þótt hann sé almennt þekktari á öðru sviði.

Hér að neðan má sjá hvernig úrslitin réðust í viðureigninni og má með sanni segja að það hafi verið nokkuð ótrúlegt. Þeir sem vilja ekki sjá úrslitin og eiga eftir að horfa á þáttinn í heild sinni á Sýn+ ættu ekki að horfa á myndbrotið hér að neðan.

Klippa: Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.