Tveimur mönnum bjargað 20. maí 2005 00:01
Mannbjörg varð þegar Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfirði um 7 sjómílur austsuðaustur af Raufarhöfn. Tveir skipverjar höfðu komist í björgunarbát og var síðan bjargað um borð í björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Gunnbjörgu frá Raufarhöfn. Vaktstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá flugstjórn um að flugvél hefði tilkynnt um neyðarsendingar kl: 12:43. TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, lagði af stað um klukkan 13:21. Þyrlan snér hins vegar við þegar staðfestar upplýsingar bárust um að tveimur mönnum hafði verið bjargað um borð í Gunnbjörgu. "Við vorum komin rétt að Eiríksjökli þegar við fengum það staðfest að mönnum hafði verið bjargað, það voru að sjálfsögðu gleðifréttir" sagði Benóný Ásgrímsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Talsverður sjór var á Þistilfirði er báturinn sökk. Vindhraðinn var um 8-10 metrar á sekúndu í norðaustan kalda. Róbert Þorláksson, umsjónarmaður björgunarskipsins Gunnbjargar, sagði björgunarferðina hafa gengið vel. "Við vorum fljótir að finna bátinn og björgunin gekk hratt og vel fyrir sig. Skipsbrotsmennirnir voru ágætlega haldnir þó þeir hafi verið svolítið kaldir", sagði Róbert.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira