„Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Smári Jökull Jónsson skrifar 30. október 2026 13:40 Heimir Már vill að Macron sé klár með kjarnorkuvopnin. Vísir/Vilhelm/EPA Framkvæmdastjóri Flokks fólksins skrifar í ummælum við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta að hann skuli senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin.
Frakklandsforseti skrifaði færslu á samfélagsmiðilinn X í gær þar sem hann vottar Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Lenti dróninn á lestarpalli í borginni og létust þrettán og fjöldi til viðbótar særðist en fólkið var að bíða eftir að komast um borð í farþegalest sem stefnt var til Sapórisjía þegar árásin var gerð. Í færslunni skrifar Macron að nauðsynlegt sé að stefna á meira en staðbundið vopnahlé líkt og það sem nýlega var samið um í Olechky. Jafnframt skrifar Macron að óásættanlegt sé að Rússar haldi áfram að stuðla að stigmögnun átakanna með því að ráðast á óbreytta borgara. „Saman þurfum við að tvöfalda viðleitni okkar til að ná varanlegum friði og ná Rússum að samningaborðinu,“ skrifaði Macron. Þessi orð virðast hafa farið fyrir brjóstið á Heimi Má Péturssyni, framkvæmdastjóra Flokks fólksins. Í ummælum við færslu Macron biður Heimir Frakklandsforseta vinsamlega að gera meira en að halda ræður. „Hættu ræðuhöldunum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu og vertu með kjarnorkuvopnin til að skjóta, í eitt skipti fyrir öll,“ skrifar Heimir Már. Hvorki náðist í Heimi Má né Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, við vinnslu þessarar fréttar.
Innrás Rússa í Úkraínu Flokkur fólksins Frakkland Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira